Morgunblaðið - 19.05.2001, Side 66
FÓLK Í FRÉTTUM
66 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ má sanni segja að áður en
Jagúar fönkdýrið byrjaði að læðast
inn á tónleikastaði borgarinnar hafi
fönkbeinið í íslenskum tónlistar-
áhugamönnum verið óuppgötvað.
Hljómsveitin Jagúar gaf út sinn
fyrsta geisladisk fyrir einu og hálfu
ári og hefur síðan, hægt en bítandi,
verið að læra inn á óeðli íslenska
tónlistarmarkaðarins. Hann er eng-
um öðrum líkur, því hafa þessir pilt-
ar fengið að kynnast.
En Jagúar fönkdýrið urrar þótt á
móti blási og er staðráðið í því að lifa
af þeim hæfileikum sem Guð gaf því.
„Stjórnum okkur sjálfir“
Meðlimir Jagúar hafa komið sér
upp hljóðveri í æfingahúsnæði sínu
og eru nú að leggja lokahönd á sína
aðra plötu sem er væntanleg í búðir
með sumrinu.
„Við erum núna að klára að hljóð-
blanda plötuna,“ segir Daði Birgis-
son hljómborðsleikari Jagúar. „Við
erum búnir að vera gera þetta alveg
sjálfir, meira að segja spilað á hljóð-
færin sjálfir(hlátur).“
Menn eru jafn ólíkir og þeir eru
margir. Við það frelsi sem það gefur
að eiga sitt eigið hljóðver er ekki
óalgengt að menn falli í þá gildru að
gleyma sér í þægindunum og af-
kasta minna en þeir myndu gera ef
þeir þyrftu að borga fyrir hvern
klukkutíma. Platan hefur verið í
vinnslu í fimm mánuði sem þykir
langur tími fyrir plötuvinnslu á Ís-
landi, eru þeir félagar búnir að vera
í afslöppun?
„Við bara stjórnum okkur sjálfir
og það er enginn að bögga okkur,“
segir Samúel Jón Samúelsson yngri,
eða Sammi eins og hann er kallaður,
básúnuleikari ákveðinn.
„Við erum sex sem þrýstum hver
á annan þannig að það er engin
hætta á að þetta verði gert með
hangandi hendi,“ útskýrir Daði.
„Það er alltaf til staðar þegar það
eru 6 manns í bandi. Maður hefur
a.m.k. svigrúm til þess að verða
veikur. Hérna verðum við ekki að
vinna þegar við erum í slæmu skapi
eða eitthvað svoleiðis bara vegna
þess að við áttum bókaða hljóðvers-
tímana. Það er rosalega gott.“
En skilar þetta frelsi sér í gæð-
um?
„Það verða eiginlega bara aðrir að
dæma um það hvernig þessi plata
er. Ég er ánægður,“ segir Börkur
Birgisson gítarleikari hógvær.
„Þessar upptökur eru tilrauna-
starfssemi,“ segir Daði bróðir hans.
„Enginn okkar hefur lært að taka
upp og enginn okkar hefur unnið við
slíkt. Útkoman er örugglega eftir
því, mjög skemmtileg. Grunnarnir
voru allir teknir upp „læf“ en svo er
þetta endalaus yfirvinna, klippingar
og hreinsanir.“
Kúlan nálgast
Þennan síðasta mánuð hafa þeir
þó verið að vinna undir tímapressu,
því húsið, þar sem æfingaaðstaða
þeirra er, átti að rífa í byrjun maí og
stöðugt er verið að þrýsta á þá
félaga að klára verkefnið til þess að
hægt sé hleypa krananum með kúl-
una að því.
„Við vitum í raun ekki hvort við
náum að klára þetta áður en þeir
taka rafmagnið af. Það gæti verið
tekið af á meðan við erum að hljóð-
blanda síðasta lagið,“ segir Daði.
„Þá verður það bara svona óraf-
magnað lag,“ bendir Sammi spek-
ingslega á. Hér myndast þögn í eina
sekúndu, svo fatta allir brandarann
og skella upp úr.
„Svo höfum við bara smá tíma til
þess að fara út, svo kemur kúlan,“
segir Daði.
Sum laganna á nýju plötunni eru
búin að vera á tónleikadagskrá
hljómsveitarinnar í rúmt ár og því
vel þroskuð. Önnur eru rétt skriðin
út úr egginu.
„Það urðu nokkrar hugmyndir til
í upptökuferlinu. Tvær eða þrjár
sem urðu bara algjörlega að nýjum
lögum,“ útskýrir Daði.
„Það er einn af þessum kostum
við að vera með sitt eigið hljóðver,“
bendir Börkur á. „Sex manns eru
kannski að „djamma“ saman og síð-
an bara gerist eitthvað. Og núna
getum við fangað andartakið í upp-
töku! Sem er afar sjaldgæft.“
Fjölbreyttari plata en síðast
Fyrsta plata þeirra félaga var
mestmegnis tekin upp beint, þ.e.a.s.
hljóðfærin voru tengd og svo var
bara talið í og spilað. Með því var
verið að reyna fanga þá hráu orku
sem myndast á tónleikum. Nýja
platan er tekin upp á þveröfugan
hátt og hefðbundnari, þ.e. eitt hljóð-
færi tekið upp í einu.
„Okkur langaði núna til þess að
taka upp hljóðversskífu þar sem við
gætum breytt hlutunum,“ útskýrir
Daði. „Gætum sett annan kafla ef
við vildum. Svona getum við bætt
við slagverki ef okkur finnst það allt
í einu vanta. Þetta er bara allt önnur
aðferð og ekkert betri en aðrar.“
En snúum okkur nú að aðalatrið-
inu, tónlistinni. Við hverju mega
fönkþyrstir búast?
„Þetta er miklu fjölbreyttari plata
en síðast,“ segir Sammi.
„Þetta er kannski ekkert enda-
laust stuð allan tímann,“ segir Daði.
„Það eru þarna a.m.k tvö róleg lög.
Þetta er eiginlega bara tilrauna-
starfsemi-plata. Gerðum bara það
sem okkur fannst gaman að gera.“
„Okkur langaði bara til þess að
gera alvöru plötu,“ segir Sammi.
„Síðast vorum við fastir í því að
reyna að skrásetja hljómsveitina
eins og hún hljómaði þá á tónleik-
um.“
„Ef okkur langar einhvern tíma
að ná þeirri stemningu sem hljóm-
sveitin nær á tónleikum, þá ætlum
viðbara að taka upp tónleikaplötu,“
segir Daði.
„Síðast fórum við eitthvert svona
millistig, það virkaði ekki alveg,“
bætir Börkur við.
„Já, það má segja það. Við „fílum“
millistigið ekki. Þetta ferli er
skemmtilegt. Og að spila á tónleik-
um er skemmtilegt. En millistigið
virkar ekki,“ segir Daði að lokum.
Þá er bara að krossleggja fing-
urna og vonast til þess að Jagúar
fönkdýrið nái að ljúka sér af og
forða sér út áður en kúlan kemur til
þess að mölva heimili þess.
biggi@mbl.is
Ný Jagúarskífa í vændum
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Hálfur Jagúar, (f.v.) Daði, Sammi og Börkur.
Urrr…
Meðlimir Jagúar eru að leggja lokahönd á
breiðskífu í húsnæði sem á að rífa á næstu
dögum. Birgir Örn Steinarsson hitti þá
Börk, Daða og Samma og athugaði hvort
þeir félagar væru í einhverri hættu staddir.
!:A)' !@
' >E)'
" '>C)'
"2>F)'
;#
6
#60
6
6<
6
6
6 )
6)
6 )
!!
"""
MIðasala í Hallgrímskirkju frá kl. 13-18
alla daga. Sími 510 1000
27. maí - Kl. 20.00
Jósúa, óratóría eftir Händel
Dramatísk óratóría um fall
múranna í Jeríkó í flutningi
fremstu listamanna:
Nancy Argenta, sópran,
Matthew White, kontratenór,
Gunnar Guðbjörnsson, tenór,
Magnús Baldvinsson, bassi,
Schola cantorum,
Barokkhljómsveit.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
24. maí - 4. júní
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Í KVÖLD: Lau 19. maí kl. 19 – NOKKUR SÆTI
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Þri 22. maí kl. 20-FORSÝN.- Miðinn kr. 1000
Mið 23. maí kl. 20- FORSÝN.- UPPSELT
Fim 24. maí kl. 20 - FRUMSÝN.- UPPSELT
Fös 25. maí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 26. maí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 1. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 2. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 15. júní kl. 20– NOKKUR SÆTI
Lau 16. júní kl. 20 – NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
ATH. UPPSELT Á ALLAR SÝNINGAR Í MAÍ.
MIÐASALA Á SÝNINGAR Í JÚNÍ Í FULLUM
GANGI:
Fös 1. júní kl. 20 - UPPSELT
Fös 1. júní kl. 23 - NOKKUR SÆTI
Lau 2. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 2. júní kl. 22 - NOKKUR SÆTI
Mán 4. júní kl. 19 - NOKKUR SÆTI
Fim 7. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 8. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 9. júní kl. 19 - NOKKUR SÆTI
Lau 9. júní kl. 22 - NOKKUR SÆTI
Sun 10. júní kl. 19 - NOKKUR SÆTI
Fim 14. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 15. júní kl. 20 -NOKKUR SÆTI
Lau 16. júní kl. 19 -NOKKUR SÆTI
Lau 16. júní kl. 22 -NOKKUR SÆTI
Þri 19. júní kl. 20 Á STÓRA SVIÐI
Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní, eftir
sýningu flytur Ragnheiður Eiríksdóttir,
hjúkrunarfræðingur og kynlífspistla-
höfundur, erindi tengt Píkusögum.
ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir að
sýningin hefst
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
3. hæðin
Í HLAÐVARPANUM
EVA - bersögull sjálfsvarnareinleikur
30. sýn. mið. 23. maí kl. 21.00
31. sýn. fös. 25. maí kl. 21.00
Síðustu sýningar.
Fimmtudaginn 24. maí kl. 21.00
Bjargræðiskvartettinn
með Lög Ómars
Ósóttar pantanir seldar samdægurs.
#$%%&%'' %(()!((
*+"""
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
,-./%-0#'1#.-#-.2--#
3
4.
45
"
6
; )4((!! 7
=06 7 #60=0 4((!! 7
6<=06 7 )=0 7 # =< 7
48
*97 #>=< 7
=<
7 =<8
*97 #0=< 7
<=< 7
6=<8
*9
6)=< 6=<8
*97 6>=<
9 #6=<
5&:#;-<==21#--
%
9
&6 =0 7 6=08
*9
%
>
?$62&&%@%%%6.1/A=#
/
&6 =0 7 6)=0 7 6=0 7 ) =0
6=< 7 =< )=<
9 #66=<
Áhugaleiksýning ársins 2001:
=B0?-=%&?#C;B#$
+
2-.#1 ?--:2DD&?#$
&*
EF
F
? ( @A
7(9
(
4(%
>
&#=%C&B5521&?#C;BC/%&&%1%-*
4( !!+
=G&%-0 D?1&%- ' %2=1# 0
* =9
9
""" H
*! 7 8
*
I>
J7
I !
552 3000
opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
lau 19/5 örfá sæti laus
fim 24/5 næstsíðasta sýning
lau 2/6 síðasta sýning
Sýningargestum er boðið upp á
snigla fyrir sýningu.
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
lau 26/5 næstsíðasta sýning
fös 1/6 síðasta sýning í Reykjavík
SÍÐUSTU SÝNINGAR
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG
fös 25/5 kl. 23 MIÐNÆT. AUKASÝN.
Misstu ekki af síðustu sýningu!
HEDWIG FRUMSÝNDUR Í JÚNÍ
530 3030
Opið 12-18 virka daga
Hádegisleikhús kl. 12
RÚM FYRIR EINN
Frums. þri 22/5 UPPSELT
mið 23/5 UPPSELT
fös 25/5, mið 30/5, fim 31/5, fös 1/6
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
ATH. Takmarkaður sýningarfjöldi!
lau 19/5 örfá sæti laus
sun 20/5 nokkur sæti laus
fös 25/5 örfá sæti laus
sun 27/5 nokkur sæti laus
fös 1/6
Á sýningardögum er miðasalan opin fram að
sýningu og um helgar er hún opnuð í viðkom-
andi leikhúsi kl. 16 ef sýning er um kvöldið.
Hópasala er í síma 530 3042 frá kl. 10-16
virka daga.
midasala@leik.is — www.leik.is
VEÐUR
mbl.is
mbl.is
STJÖRNUSPÁ