Morgunblaðið - 14.12.2001, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 14.12.2001, Qupperneq 39
BILIÐ á milli ríkra og fátækra hef- ur sjaldan verið auðsærra í Reykja- vík, en á fimmta, sjötta og allt fram á sjöunda áratuginn. Heil hverfi voru sannkölluð fátækrahverfi, þetta voru braggahverfin, dapurleg sár, sem herseta Breta og Bandaríkjamanna á stríðsárunum skildi eftir sig. Ekki svo að skilja að þar hafi búið eingöngu fá- tæklingar og vandræðafólk, fjarri því. Mikið af íbúum þeirra, sem flest voru kennd við örnefni; Laugarnesið, Múla, Skólavörðuholtið, svo og Tríp- ólí og Kamp Knox, var harðduglegt fólk, en hafði ekki í önnur hús að venda. Stór hópur, níðfátækur, kom héðan og þaðan, uppflosnað lands- byggðarfólk, sem sárlega vantaði vinnu og kom undir sig fótunum í „bretavinnunni“, sem fylgdi þeim tug- þúsundum breskra hermanna sem sátu hér frá 1940, og síðar banda- rískra. Stríðinu fylgdi uppgangur í at- vinnulífinu og útgerðin blómstraði, þar sem verð á erlendum mörkuðum margfaldaðist á tímum heimsstríðs- ins. Vöxturinn takmarkaðist að lang- mestu leyti við höfuðborgarsvæðið. Minnti á „gullæði“, með kostum þess og göllum. Mörkin milli braggabúa og annarra betur hýstra Reykvíkinga voru hróp- andi. Ólafur Sveinsson hefur borið gæfu til að sækja upplýsingar til glöggra einstaklinga, flestra bragga- búa, sem rifja upp minningar frá tím- um herskálanna, nafnið sem var not- að á hátíðastundum yfir bragga- ræksnin. Viðtölin fléttar hann smekklega við myndefni og kvik- myndir frá tímum hernámsins og Reykjavík frá áratugunum eftir stríð, á meðan herskálarnir leystu hrika- lega húsnæðisþörf. Í þessum viðtölum kemur skýrt fram aðkastið sem braggabúar máttu þola frá þeim sem betur máttu sín húsnæðislega. Fyrst og fremst bitnaði mismununin á börn- um og unglingum. Braggabúarnir áttu nefnilega erfitt með að fela sig, líkt og litað fólk. Ástæðan saggalyktin sem loddi við þá sýknt og heilagt og kom jafnan upp um þá. Ástæðan sagginn í þessum heilsuspillandi íbúð- um, sem lengi vel voru kyntar með kolaofni. Umhverfis hann var ólíft af hita sem smám saman minnkaði eftir því sem fjær dró og endaði í fimb- ulfrosti við útveggi á köldum vetrar- dögum. Trétexið í einangrun og inn- réttingum dró í sig raka, skít og óþef sem ekki var hægt að losna við en mengaði allan fatnað íbúanna. Öllum er hollt að gera sér grein fyr- ir hvað fólk mátti þola, félagslega og veraldlega, í þessum óaðlaðandi báru- járnsheimi. Vatn af skornum skammti, útikamrar miður geðslegir, rottugangur, vatnselgur, kuldi. Að- kast, niðurlæging. Afleitu húsnæði fylgir oft ámóta ástand íbúanna. Óregla, heimilisofbeldi, hávaði, óham- ingja. Saga bragganna hefur nú verið skrásett af fagmennsku og myndar- skap. Á bók af Eggert Þór Bernharð- ssyni sagnfræðingi, í skáldsögum, byggðum á staðreyndum, af Einari Kárasyni, síðar kvikmynduðum af Friðrik Þór Friðrikssyni. Nú síðast kemur Ólafur Sveinsson með firna- sterka og ýtarlega heimildarmynd um þennan sérstæða kafla í lífi þjóð- arinnar, þegar hluti hennar fékk ekki rönd við reist. Mannlíf herskálanna Sæbjörn Valdimarsson SJÓNVARPSMYND Ríkissjónvarpið Stjórn upptöku, handritsþulur og fram- leiðandi: Ólafur Sveinsson. Kvikmynda- taka: Björn Sigurðsson. Hljóð: Helgi Sveinsson. Viðmælendur: Arnfríður Jón- atansdóttir, Sveinn H. Ragnarsson, Jó- hann Geirharðsson, Margrét S. Bárð- ardóttir, Sveinn Þormóðsson, Þórunn Magnúsdóttir. Íslensk heimildarmynd. Styrkt af Kvikmyndasjóði o.fl. Sjón- varpið, 9. des. 2001. Ólafur Sveinsson í samstarfi við G.L. útgáfuna 2001. BRAGGABÚAR LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 39 Rauðarárstíg 14, sími 551 0400 Kringlunni, sími 568 0400 Smáralind, 535 0400 NJÓTTU ÞESS AÐ FJÁRFESTA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST MÁLÞING um Njáls sögu verður haldið í sendiherrabú- staðnum í París á morgun, laug- ardag. Mál- þingið verður hald- ið með svip- uðu sniði og Málþing um Heims- kringlu sem haldið var á sama stað í desember á síðasta ári. Uppspretta hugmyndarinnar er starfsemi Endurmenntunarstofnunar Há- skóla Íslands sem dregið hefur til sín fjölda áhugamanna og fræðimanna á námskeið, m.a. um Njálu, og er ætlunin að gera efninu þannig skil að áhugavert sé fyrir hinn almenna lesanda. Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands 1980–1996, verður heið- ursgestur, en Íslandsvinafélag- ið mun gera hana að heiðurs- forseta sínum við þetta tækifæri. Áhersla verður lögð á stöðu íslenskra fornbókmennta í nútímanum, en nokkrir ís- lenskir nútímahöfundar sem eiga bækur þýddar á frönsku munu verða viðstaddir bók- menntaþingið. Málþingið fer fram á frönsku og ensku. Fyrirlestra halda Pétur Gunnarsson, Jón Böðvarsson og Régis Boyer. Njáluþing í París Vigdís Finnbogadóttir Signý Ormarsdóttir hefur verið ráðin menningarfulltrúi Gunnarsstofn- unar. Signý er kennari og fatahönn- uður á Egilsstöðum og hefur hún störf um áramót. Hún mun vinna að þeim verkefnum sem þjónustu- samningurinn við menningarráð Austurlands kveður á um, s.s. þró- unarstarfi í menningarmálum, efl- ingu samstarfs, verkefnastjórnun og faglegri ráðgjöf. Þá mun hún einnig annast daglega umsýslu vegna starfsemi menningarráðs Austurlands. Signý hefur um árabil vakið at- hygli fyrir framleiðslu sína á fatnaði úr hreindýraleðri sem hún hefur hannað og saumað. Þá var hún um tíma skólameistari Hússtjórnarskól- ans á Hallormsstað og hefur síð- astliðin ár kennt list- og hönn- unargreinar við Menntaskólann á Egilsstöðum. Fólk TVÖFALDUR tréblásturskvart- ett óbóa, klarínetta, horna og fagotta (engar flautur) var ein algengasta áhöfnin í veizlutónlist Miðevrópu sunnanverðrar í garðteitum og við borðhald síðla á 18. öld. Afurðirnar nefndust því illþýðanlega orði Harm- onimusik. Ef við getum slitið okkur augnablik frá nútíma og ímyndað okkur umhverfi án útvarps, sjón- varps og grammófóna, má kannski renna í grun hvaða þýðingu þessi skemmtitóngrein hafði forðum fyrir útbreiðslu t.d. vinsælla aría og ball- ettþátta úr óperum – jafnvel þótt að- eins breiðustu bök aðals og vel- stæðra borgara hefðu efni á slíkri útgerð. Óperuaríur voru popplög síns tíma, og líkt og djasssveitir margefldu vinsældir eyrnaorma Broadways, sáu harmóníusveitir 150 árum fyrr til þess að helztu smellir óperusviðsins yrðu óðara á hvers manns vörum í léttfættum útsetn- ingum. Oft kusu óperuhöfundar að vinna þær sjálfir, enda tekjur í húfi, og í fjarveru höfundarréttarlaga varð að hafa hraðan á, áður en ein- hver annar tæki að sér ómakið í leyf- isleysi. Þegar Brúðkaup Fígarós sló í gegn, varð Mozart þannig að snara út harmóníuútsetningum á aðal- smellum verksins í hvelli, eins og kemur fram af einu bréfanna til föð- ur hans. Ekki var þó Mozart sjálfur ábyrg- ur fyrir lagasyrpunni úr Töfraflaut- unni, með hverri meðlimir Blás- arakvartetts Reykjavíkur ásamt félögum hófu árlegu dagskrá sína s.l. miðvikudagskvöld undir fyrirsögn- inni „Kvöldlokkur á jólaföstu“ við fjölmenni. Þar var að verki Joseph nokkur Heidenreich, og eftir alkunn- an forleikinn mátti síðan heyra fis- léttar styttar blásaraútgáfur af níu atriðum úr ævintýraóperunni. Út- setningar Heidenreichs voru snyrti- legar þótt litlu sem engu bitastæðu væri bætt við, og virkuðu bezt á hlustandann ef frumgerðin náði að hljóma með í innra eyranu. Fjarri fór að öll harmóníumúsík væri aðeins útsetningar. Margt var einnig frumsamið, þó að einn og einn þáttur úr eldra verki slæddist stund- um með í endurvinnslu. Hvort sem það hafi endilega átt við Serenöðu Mozarts í c-moll K388, jafnvel þótt virðist hafa verið samin í snarhasti sumarið 1782. Það er eitt af meg- insérkennum Mozarts hvað hann gat tilneyddur kastað fram leikandi þokkafullri tónlist á methraða sem þar að auki leynir oftar en ekki á sér við ítrekaða hlustun. Þannig er um þessa litla perlu sem rís hvað hæst í hreint paradísiskum andante-þætt- inum (II.), þar sem m.a.s. földu fimmundirnar í byrjun bragðast sem nektar og ambrósía. Að kappinn skuli síðan í í III. þætti („Menuetto in canone“) – í bullandi tímahraki (nema hafi verið um eftirstöðvar frá kontrapunktnáminu hjá Padre Martini í Bologna að ræða) – hafa getað skvett frá sér kliðmjúku pólý- fónísku þrekvirki eins og tvöföldu spegilkeðjunni í seinni hlutanum, er engu lakara en þegar Alexejev setti heimsmet í þungaviktarlyftingum á öðrum fæti. Blásaraoktettinn lék af miklu öryggi, ekki sízt snarpan loka- þáttinn með úthaldskrefjandi fag- ottrunum og öðru góðgæti, og sakn- aði maður aðeins kontrabassans (sem var með í fyrsta atriði) til að gefa forte-stöðum aukna dýpt. Lokaatriðið, F-dúr Partíta Franz Krommers fyrir blásaraoktett með kontrafagott, kom verulega á óvart. Hinum lúsiðna tónsmið, sem skv. tónleikaskrá fæddist í ,Moravíu‘ [í okkar heimshluta nefnt á Mæri (Mähren)] 1759 og lézt 1831, var að vísu á sínum tíma jafnað við Haydn og m.a.s. við Beethoven(!), en gleymdist síðan gjörsamlega fram að smámeistarauppgrefti geisladiska- væðingar. Eftir frísklegan og and- ríkan I. þátt kom skondinn „Menú- ett“ (í hraðri 6/8) sem vísaði fram á hljómskálaglettur skúfaldar og fagraskeiðs (1870–1910) með kostu- legri krómatík og höstugum hemíól- um. Adagíóið (III.) stappaði nærri Beethovenskum útfararmarsi að dýpt, að vísu ögn upplitað með áð- urnefndu krómatísku skensi, og líf- legur Alla Polacca fínallinn skartaði m.a. virtúósum vélbyssuhríðum úr óbóum. Þetta bráðskemmtilega verk var víða gætt furðumiklu hljómrænu (harmónísku) hugviti og afburðavel skrifað fyrir blásarana. Leikur þeirra níumenninga var eftir því, og skorti hvorki samtaka snerpu né smitandi gleði. M.a.s. Tobbi túba tví- blöðungafjölskyldunnar, kontra- fagottið (ljónsöskrið í Sköpun Haydns), lét eins og fótnettasta lip- urtá, og hefði í hálfþurri en skýrri akústík Fríkirkjunnar ekki verið með öllu óviðeigandi að hljóðrita ná- kvæma og innlifaða túlkun þeirra fé- laga með útgáfu í huga. Lokkandi jólaföstublástur Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Fríkirkjan Mozart: Atriði úr Töfraflautunni (umr. Heidenreich); Kvöldlokka í c K388. Krommer: Partíta í F Op. 57. Daði Kol- beinsson, Peter Tompkins, óbó; Einar Jó- hannesson, Sigurður Ingvi Snorrason, klarínett; Jósef Ognibene, Þorkell Jóels- son, horn; Hafsteinn Guðmundsson, Brjánn Ingason, fagott; Rúnar Vilbergs- son, fagott & kontrafagott; Richard Korn, kontrabassi. Miðvikudaginn 12. desember kl. 20:30. KAMMERTÓNLEIKAR Morgunblaðið/Þorkell Blásarakvintett Reykjavíkur og félagar æfa Kvöldlokkurnar. HALLDÓR Eiríksson, lokaárs- nemi í arkitektúr við háskólann í Virginíu, vann á dögunum fyrstu verðlaun í nemasamkeppni SARA, félags bandarískra arkitekta. Hlaut hann verðlaunin fyrir verkið Layered Membranes, En- riched Spaces, sem útleggja má á íslensku sem Lagskipt himna, auðguð rými. Önnur verðlaun komu í hlut Kah Wai við háskól- ann í Singapore og þriðju verð- laun hlaut Yuko Suizike við Coop- er Union-arkitektúrskólann í New York. Verðlaunin veitir félagið fyrir hönnun sem telst bæði góð og hagkvæm í útfærslu. Verðlaunin, sem veitt eru ár- lega, nema rúmlega 300.000 krón- um. Íslenskur arkitekta- nemi verðlaunaður Þrep til jóla! opið frá 10-18 / laugavegi 49 / sími 561 5813 38
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.