Morgunblaðið - 14.12.2001, Page 67

Morgunblaðið - 14.12.2001, Page 67
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 67 vera í samhljómi við Lenu Dam. Hann sagði til dæmis „Nemendur eru ólíkir og þeir taka við upplýs- ingum á mismunandi hátt. Hver nemandi lærir á sinn eigin hátt (I did it my way). Riley er prófessor í háskólanum í Nancy í Frakklandi. Í umræðuhópi sem Riley stjórn- aði lét hann þátttak- endur velta fyrir sér sambandi nemanda og kennara. Er kennarinn helper, adviser, ex- pert, tutor, knower, consultant, mentor, facilitator, counsellor? Þetta er mikilvæg spurning til að glíma við. Er kennarinn þjálfari, ráðgjafi, leið- beinandi eða eitthvað annað? Riley sagðist hallast að orðinu tutor en á frönsku merkir það að vera líkur plöntu í garði sem styður smærri plöntur. „Í hverri menningu þarf að velja og þróa kennsluaðferð- ir í tungumálanámi,“ sagði Riley í samtali við blaðamann, „það dugar ekki að flytja aðferðir á milli kúlt- úra vegna þess að markmiðin í sam- félögunum eru ekki þau sömu. Ekki er vænst sömu útkomu í öllum menntakerfum þjóða. Hvert menntakerfi vill sérstaka útkomu, og hvert samfélag verður því að þróa og rannsaka sitt eigið afbrigði af kennslu. Almenna reglan er samt sú að máta aðferðina við einstak- linginn, sem félagslegrar veru í mótun.“ Riley hefur m.a. ritað bók- ina Learning Styles (með Richard Duda), útg. PUN. 1990. Fyrirlestur hans er á Netinu. Fjölsótt ráðstefna Eyjólfur Már Sigurðsson, deild- arstjóri hjá Tungumálamiðstöð Há- skóla Íslands, var mjög ánægður með ráðstefnuna og í raun var „uppselt“ á hana, en um 200 tungu- málakennarar víðsvegar af landinu sóttu hana. Gjald var fyrir þátttöku á tungumálaráðstefnunni sem stóð í tvo daga, eða 11 og 12 nóvember var mjög lágt. En það var styrkn- um, sem fékkst fyrir tilstuðlan menntamálaráðuneytis frá Evrópu- sambandinu, að þakka. Áhrifanna á því eftir að gæta víða í íslenskum kennslustofum ef tungumálakenn- arar nýta sér hugmyndir fyrirles- ara. „Ég held að tungumálanám sé að þróast í takt við þjóðfélags- breytingar í mörgum löndum þar sem ein- staklingurinn er í fyr- irrúmi. Þarfir tungu- málanema eru mjög ólíkar því þeir eru sjálfir mjög mismun- andi,“ segir Eyjólfur, „það er líka aukin gróska í rannsóknum á sviði tungumálanáms og -kennslu hérlendis og má nefna til marks um það hina nýju stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur í erlendum tungumálum við Há- skólann.“ (Sjá líka Mbl. 7/11 ’01, bls. 8.) Ráðstefnan á Netinu er notuð af þjóðum í Evrópusam- bandinu og EES-löndunum, enda eru fyrirlesarar í fremstu víglínu í rannsóknum og þróun tungumála- kennslu, m.a. má nefna Bernd Rüschoff frá háskólanum í Essen í Þýskalandi, Emmu Arthur frá há- skólanum í Stavangri, Philippu Wright frá Englandi, Hafdísi Ingv- arsdóttur frá Háskóla Íslands, sem flutti fyrirlesturinn Learning Styles and Strategies: „Learning how to Learn. Enchangcing Learner Strategies in the Language Classroom“ og Birnu Arnbjörns- dóttur sem spurði og svaraði í fyr- irlestri: What is Language Profic- iency? Evrópsku tungumálaári 2001 var ætlað að vekja athygli á mikilvægi tungumálanáms við að efla gagn- kvæman skilning, umburðarlyndi og virðingu fyrir sérkennum og ólíkri menningu þjóða. Lögð var áhersla á mikilvægi tungumálakunnáttu fyrir virka þátttöku í þróun lýðræðis í Evrópu og fyrir frjálsa för Evr- ópubúa í leik og starfi. Slagorð Evr- ópsks tungumálaárs var: Tungumál opna dyr. Það gildir enn. Vigdís Finn- bogadóttir Draumur kaffiunnenda! Veitum faglega ráðgjöf um val á kaffivélum. Fjölbreytt úrval í mörgum litum og gerðum. SAECO er stærsti framleiðandi expresso-kaffivéla á Ítalíu. Expresso- Cappuccino kaffivélar Verð frá kr. 14.915 stgr. FAGURKERAR debenhams S M Á R A L I N D Nýttu þér sérþjónustu Debenhams. Þar er um margt að velja en sem dæmi má nefna: Persónulegur Stílisti Þú leggur línurnar og tekur því svo rólega á meðan PS finnur það sem best hentar hverju tilefni. Ókeypis þjónusta og án nokkurra skuldbindinga. Gjafainnpökkun Þú sýnir kassakvittun og færð gjöfinni pakkað inn á glæsilegan hátt. Frí þjónusta. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 1 62 31 12 /2 00 1 Vasi 2.790 kr. Skál 4.890 kr. Fat 6.800 kr. Púði 4.590 kr. Platti 2.890 kr. Púði 4.590 kr. Kerti 1.490 kr. og 990 kr. Glervasi 4.590 kr. Töskur 1.690 kr. og 1.290 kr. Páfuglafjaðrir 790 kr. Púði 5.600 kr. Krús 2.990 kr. Kerti 2.590 kr. Rauð keramik skál 4.890 kr. Skál 2.890 kr. Heimsþekkt merkjavara á hagstæðu verði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.