Morgunblaðið - 23.03.2002, Qupperneq 66
DAGBÓK
66 LAUGARDAGUR 23. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
AÐGÁT skal höfð í nærveru sálar“segir gamalt máltæki og það
kom upp í huga Víkverja í gær þegar
hann las frétt um að hagsmunahópur
kvenna með átraskanir hygðist ræða
við fulltrúa norsku hirðarinnar um
áherslu fjölmiðla á líkama, útlit og
mataræði Mörtu Lovísu prinsessu.
Hafði fulltrúi samtakanna áhyggjur
af því hversu prinsessunni hefur ver-
ið mikið hampað fyrir að hafa grennt
sig og óttaðist að ungar viðkvæmar
stúlkur flykktust nú til að feta í fót-
spor hennar. Sagði fulltrúinn það
grundvallaratriði að prinsessan lýsti
því yfir að hún væri ekki í megrun til
að hindra að ungar stúlkur tækju nú
ekki upp á slíku.
x x x
EÐALBORNAR sálir virðast líkageta verið viðkvæmar því prins-
essan hafði orð á því að hún hefði
reiðst mikið fyrir nokkrum árum
þegar hún las einhvers staðar að hún
hefði mjúkar línur. Sagði hún slíkar
athugasemdir geta verið nóg til að
valda átröskunum. Reyndar hefur
hún ekki lent í slíkum hremmingum
svo vitað sé ólíkt stallsystur sinni,
prinsessu Viktoríu í Svíþjóð sem eins
og kunnugt er átti við átraskanir að
stríða á tímabili.
x x x
ÞAÐ er vandlifað í þessum heimi,“sagði kollegi Víkverja og stundi
þungan þegar Víkverji sýndi honum
greinina. Var hann þar ekki að vísa til
hremminga kóngafólksins heldur
miklu fremur þeirrar tilætlunarsemi
umheimsins að vilja takmarka rit-
frelsi blaðamanna í þá veru að þeir
geti ekki skrifað um útlit og líkama
hinna eðalbornu ef svo bæri undir.
Spunnust út frá þessu líflegar um-
ræður og voru kvenkyns þátttakend-
ur á því að allt of mikil áhersla væri á
útlit kvenna og reyndar væri of mikil
áhersla á þá staðreynd að þær séu
konur. Vísaði ein blaðakvennanna til
fyrirsagnar á frétt sem birtist fyrir
nokkrum árum þar sem stóð að kona
hefði verið kjörin lögmaður Færey-
inga. Benti kynsystir hennar á að
þetta væri argasti dónaskapur í garð
viðkomandi lögmanns þar sem hann
hefði nafn og sem einstaklingur ætti
hann skilið að vera hampað en ekki
vegna kynferðis síns.
Víkverji tekur undir þetta og á
reyndar erfitt með að þola endalaus
skrif um „afrek“ kvenna á borð við að
útskrifast úr verkfræði eða vinna á
vélaverkstæði. Konur eru daglega að
hasla sér völl á hefðbundnum sviðum
karla og þurfa síður en svo klapp á
bakið fyrir enda er það ekkert annað
en sjálfsagt mál að þær geri það.
x x x
HVAÐ varðar útlit og holdafarkóngafólks þá hefur Víkverja
alltaf fundist skrif um slíkt frekar
skondin. Reyndar getur Víkverji ekki
annað en dáðst að hugvitsemi blaða-
manna við að finna nýjan flöt á einka-
lífi þessa fólks og verður að viður-
kenna að honum hefur þótt þessar
fréttir vera ofurlítið krydd í til-
veruna, tilvaldar til að hlæja að. Hins
vegar getur Víkverji skilið að þeir
sem fréttirnar fjalla um líti þetta ekk-
isömu augum.
Auðvitað væri of langt gengið að
skerða ritfrelsi með því að banna slík-
ar fréttir. Hins vegar verða þeir sem
skrifa þær að eiga við eigin samvisku
og smekkvísi hversu langt þeir vilja
ganga í fréttaflutningnum.
Saga öryrkja
ÖRYRKI hafði samband við
mig og sagði mér frá
reynslu sinni. Hann sagðist
ungur hafa byrjað að vinna,
bæði til sjós og lands. Hann
sagði að það hefði verið
gaman að lifa þá. Detta í það
og fara út að skemmta sér
og kynnast sætum stúlkum.
Veikindi og elli voru óra-
fjarri huga hans þá, eins og
gengur með ungt fólk. Ef
slík mál báru á góma nennti
hann ekki að hlusta. Hann
var ungur og hraustur og
fannst ekkert geta komið
fyrir sig. Árin liðu. Það kom
að því að hann varð þrítug-
ur. Stuttu seinna kvæntist
hann yndislegri konu og
eignaðist barn. Lífið virtist
brosa við honum. Hann
keypti sér góða íbúð og vann
mikið við að standsetja hana
sjálfur. Þá veiktist hann
skyndilega og átti lengi í því.
Svo kom að hann varð ör-
yrki. Þá tóku við langir,
daprir dagar. Fjárhagurinn
varð erfiður og setti dimma
skugga á tilveru hans. Fal-
lega íbúðin, sem hann var
svo stoltur af, og var af-
rakstur dugnaðar hans, fór
undir hamarinn. Hann varð
sár og bitur og missti áhug-
ann á lífinu. Ástin þoldi ekki
þetta álag. Konan hans
kynntist öðrum manni og
skildi við hann. Hann endaði
í félagslegri leiguíbúð sem
var algjör kompa miðað við
fallegu íbúðina hans. Hann
segist nú hafa sætt sig við
örlög sín. Hann hefur fyr-
irgefið konu sinni og segist
skilja það núna að það hefði
ekki verið neitt líf fyrir hana
að fylgja sér. Hann segist
kvíða því að hann geti lifað
enn í 20–30 ár. Og það væri
allt í lagi ef bætur hans
væru ekki svona lágar.
Hann langar til að ferðast
smávegis og lyfta sér upp
annað slagið, sem er nauð-
synlegt hverri manneskju í
fábreytni hversdagsleikans.
Hann talaði um kosningar
nú í vor, segist ekki ætla að
kjósa því honum finnst að
það fólk sem hefur verið í
framboði hin síðari ár sé yf-
irleitt fljótt að gleyma lof-
orðum sínum við þá sem
minna mega sín þegar í stól-
inn er komið.
Sorgarsaga þessa manns
sem missti allt sitt kemur
við mann. Þess vegna finnst
mér frambjóðendur í kosn-
ingunum í vor sem lesa
þessa sögu ættu ekki að lofa
neinu þeim sem minna
mega sín nema þeir geti
örugglega staðið við það.
Nóg er nú samt.
Sigrún Ármanns
Reynisdóttir, samtökum
gegn fátækt.
Veit ekki til hvers
KVÖLD eitt nýlega var í
sjónvarpinu þáttur sem
fjallaði um dæmdan kyn-
ferðisafbrotamann. Ekki
veit ég til hvers sjónvarpið
var að bjóða fólki upp á að
horfa á svona mann sitja
fyrir framan myndavélarn-
ar og lýsa yfir sakleysi sínu.
Þessi maður er stórhættu-
legur börnum okkar og um-
hverfi, það vita allir lands-
menn. Finnst mér að
ráðamenn þjóðarinnar ættu
að sjá til þess að þessi mað-
ur gangi ekki laus, hann er
búinn að gera nógu mikið af
sér.
Skattgreiðandi.
Vel tekist til
FRJÁLSLYNDIR og og
óháðir eru komnir fram með
sinn lista í Reykjavik. Ég fæ
ekki betur séð en að vel hafi
tekist til að manna þann
lista. Þar er skynsamlega
raðað saman fólki og mun
ég styðja þennan lista í
komandi kosningum.
Þar sem ég hef verið
flokksbundinn í VG telst
þetta kannski til tíðinda.
Ég get ekki sætt mig við
að VG bauð ekki fram sér í
RVK. Það að vera að að-
stoða vonlausa flokka
(Framsókn – Samfylking)
við að koma fólki til áhrifa í
Reykjavík er alvarlegt mál.
Þess vegna styð ég
Frjálslynda og óháða í vor.
Páll.
Tapað/fundið
Kvenúr í óskilum
KVENÚR fannst í Öskju-
hlíðinni sl. sumar. Eigandi
hafi samband í síma
562 5537.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 snjóa, 4 nytsamt, 7
trölla, 8 kjánar, 9 þegar,
11 nöldur, 13 flötur, 14
kippi í, 15 ódrukkinn, 17
höfuð, 20 liðamót, 22 þríf-
ast vel, 23 loftgatið, 24
romsan, 25 tölur.
LÓÐRÉTT:
1 á, 2 notaðu, 3 skelin, 4
þrjóskur, 5 bregða, 6
ljúki mat, 10 æviskeiðið,
12 hyggja, 13 tjara, 15
bál, 16 glufan, 18 minnst
á, 19 vægur, 20 fornafn,
21 borðar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 grágletta, 8 tugga, 9 sulla, 10 fet, 11 flaga, 13
agans, 15 fugls,18 ástar, 21 tóm, 22 seiga, 23 ólötu, 24
skapnaður.
Lóðrétt: 2 ragna, 3 grafa, 4 efsta, 5 telja, 6 stúf, 7 fans,
12 gal, 14 gæs, 15 fúst,16 grikk, 17 staup, 18 ámóta, 19
trönu, 20 raus.
K r o s s g á t a
ÞAR sem enn og aftur
er farið að ræða um sölu
á áfengi í matvöruverzl-
unum vil ég benda á það
mál frá öðru sjón-
arhorni en oftast er not-
að í þeirri umræðu. Of-
notkun Íslendinga á
áfengi kostar ríkissjóð
ómældar upphæðir
vegna líkamlegra, and-
legra og félagslegra
hörmunga. Ríkissjóði
veitir því ekki af hverj-
um þeim eyri, sem inn
kemur fyrir áfengissölu.
Þjónustuviljugur
milliliður, sem vafalaust
vill fá eitthvað í sinn
hlut fyrir greiðasemina,
verður því óþarfur
ómagi á ríkissjóði. Sé
hins vegar hugmyndin
sú, að ríkissjóður fái sitt
sem fyrr og milliliðurinn
sitt til viðbótar, bendir
það til þess eins, að
álagningu ríkissjóðs
megi hækka, sem því
nemur og milliliðurinn
haldi sig við matvöruna.
13. marz 2002,
Leifur Jónsson læknir,
Heiðarlundi 6, Gbæ.
Áfengi í matvöruverzlunum
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
fara út Hvidbjörnen og
Irena Arctica.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun eru væntanleg
Karelia og Sevriba 2.
Mannamót
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga á föstudögum kl
11. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014, kl. 13-16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8-16
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Púttað í
bæjarútgerð kl. 10-
11.30 og félagsvist kl.
13.30.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Þriðjudaginn
26. mars nk. er spilað í
Holtsbúð kl. 13.30.
Gerðuberg, félagsstarf,
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug á veg-
um ÍTR á mánu- og
fimmtudögum kl. 9.30,
umsjón Edda Bald-
ursdóttir, íþróttakenn-
ari. Boccia á þriðjudög-
um kl. 13 og á
föstudögum kl. 9.30,
umsjón Óla Kristín
Freysteinsdóttir, gler-
málun á fimmtudögum
kl. 13. Myndlistarsýn-
ing Braga Þórs Guð-
jónssonar opin frá kl.
13-16. Veitingar í veit-
ingabúð. Félagsstarfið
er opið mánud., þriðjud.
og miðvikudag í næstu
viku. Fjölbreytt dag-
skrá. Veitingar í veit-
ingabúð.
Hæðargarður. Ath.
sunnudagana 24. og 31
mars er lokað.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
frá Gjábakka í Kópa-
vogi alla laugardags-
morgna.
Krummakaffi kl. 9. Allir
velkomnir.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur í
kvöld kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105.
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánud.
og fimtudaga.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Páska-
bingó í dag, laugardag,
kl. 14. Margir góðir
vinningar.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Uppl. á skrifstofu
GÍ, s. 530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla,
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA Síðu-
múla 3-5 og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laug-
ardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Kvenfélag Langholts-
sóknar heldur köku-
basar í Glæsibæ í dag,
laugardag kl. 12. Mikið
úrval af heimabökuðum
tertum. Allur ágóði
rennur til kirkjunnar.
ITC-deildin Melkorka
heldur fund mánudag-
inn 25. mars kl. 19 að
Borgartúni 22, 3ju
hæð. Samskipti, sjálfs-
traust, skemmtun,
skipulag, stjórnun. Stef
fundarins er: Hvað
ungur nemur, gamall
temur. Fundurinn er
öllum opinn. Ath.
breyttan fundartíma..
Nánari uppl. veitir Jó-
hanna Björnsdóttir í
síma 553-1762. Net-
fang: hannab@isl.is
Minningarspjöld
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrif-
stofutíma. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suð-
urgötu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552-2154. Skrif-
stofan er opin miðvi-
kud. og föstud. kl. 16–
18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861-6880
og 586-1088. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103
Rvk.Skrifstofan er opin
mán.-fim. kl.10-15. Sími
568-8620. Bréfs. 568-
8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd
alla daga í s. 533-1088
eða í bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: í
síma 588- 9220 (gíró)
Holtsapóteki, Vest-
urbæjarapóteki, Hafn-
arfjarðarapóteki, Kefla-
víkurapóteki og hjá
Gunnhildi Elíasdóttur,
Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í
síma 552-4440 frá kl 13-
17. Eftir kl. 17 s. 698-
4426 Jón, 552-2862 Ósk-
ar eða 563-5304 Nína.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562-5605, bréfsími 562-
5715.
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafn-
arfjarðar (K.H.),
er hægt að fá í Bóka-
búð Böðvars, Reykja-
víkurvegi 64, 220 Hafn-
arfirði s. 565-1630
og á skrifstofu K.H.,
Suðurgötu 44,II. hæð,
sími á skrifstofu 544-
5959.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540
1990 og á skrifstofunni
í Skógarhlíð 8. Hægt er
að senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma
og í öllum helstu apó-
tekum. Gíró- og kred-
itkortagreiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingadeildar Land-
spítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700 og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941 gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Landssamtökin
Þroskahjálp. Minning-
arsjóður Jóhanns Guð-
mundssonar læknis.
Tekið á móti minning-
argjöfum í síma 588-
9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16.
Utan dagvinnutíma er
tekið á móti minning-
argjöfum á deild 11-E í
síma 560-1225.
Hrafnkelssjóður (stofn-
að 1931) minningarkort
afgreidd í símum 551-
4156 og 864-0427.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru
fáanleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561-4307/fax
561-4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s. 557-
3333 og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s. 552-
2526.
Í dag er laugardagur 23. mars, 82.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Og hann sagði við þá: „Hví sofið
þér? Rísið upp og biðjið, að þér
fallið ekki í freistni.“
(Lúk. 23,46.)