Morgunblaðið - 04.05.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 9
Vesti og stretsbuxur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Þunnar skyrtukápur
Sumarkjólar í stíl
Mjög smart — allar stærðir
Útskriftardragtir
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Langur laugardagur
Opið í dag kl. 10-16
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
Hágæða
undirföt
Skálastærðir B til H
Langur laugardagur
opið til kl. 17
VESTURBÆJAR
YOGASTÖÐ
þriðjudaga og fimmtudaga
þriðjudaga og fimmtudaga
mánudaga og fimmtudaga
þriðjudaga
fimmtudaga
mánudaga og miðvikudaga
GRUNNNÁMSKEIÐ HEFST 8. MAÍ:
anna@yogawest.is
10.30-11.30
12.00-13.00
17.25-18.25
17.30-19.00
18.35-20.05
19.00-21.00
SELJAVEGI 2, 101 REYKJAVÍK
innritun í síma 511-2777
Bankastræti 11
sími 551 3930
Brúðarkjólar
Stærðir 4-20
Opið í dag kl. 11-17
Laugavegi 25,
sími 533 5500
15%
afsláttur
á löngum
laugardegi
skór
GUÐRÚN Pétursdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gerði
byggingu fjölbýlishúss í Suðurhlíð-
um í Reykjavík að umtalsefni á
borgarstjórnarfundi á fimmtudag.
Hún sagði meirihlutann ganga frek-
lega á rétt íbúa í Suðurhlíðum með
því að leyfa byggingu fjölbýlishúss-
ins neðarlega í hverfinu.
Borgarfulltrúinn greindi einnig
frá verði íbúða í nýja húsinu sem
hún sagði að væri á bilinu 19 til 57
milljónir króna. Kvaðst hún forviða
á þessu háa verði sem hún sagði að
hefði mátt búast við ef um einbýlis-
hús hefði verið að ræða en hér væri
um að ræða íbúðir í fjölbýlishúsi. Í
samtali við Morgunblaðið sagði Guð-
rún að þetta sýndi að sú gagnrýni
sem sjálfstæðismenn hefðu lengi
viðhaft á lóðastefnu meirihlutans
ætti við rök að styðjast. Vegna lóða-
skorts væri íbúðaverð uppsprengt
og það hefði m.a. leitt til þess að erf-
iðlega gengi að selja íbúðir í Graf-
arholti.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér um
íbúðir í fjölbýlishúsinu í Suðurhlíð-
um verða íbúðir afhentar fullfrá-
gengnar að innan en án gólfefna.
Gert er ráð fyrir arni í öllum íbúð-
unum. Sameign og lóð verða fullfrá-
gengin við afhendingu. Algengt verð
íbúða er á bilinu 22-24 milljónir
króna og nokkrar kosta á bilinu 32
til 35 milljónir króna. Ódýrast er
verðið 18,8 milljónir og dýrasta
íbúðin á að kosta 57 milljónir.
Furðar sig á háu verði nýrra
íbúða við Suðurhlíðar
ÓLAFUR F. Magnússon, óháður
borgarfulltrúi, lagði fram á borgar-
stjórnarfundi á fimmtudag tillögu
um að borgarstjórn lýsti andstöðu
sinni við þátttöku Reykjavíkur í fyr-
irhugaðri Kárahnjúkavirkjun. Til-
lögunni var vísað frá með 12 at-
kvæðum gegn þremur.
Tillaga Ólafs er á þessa leið: „Með
vísan til samþykktar borgarstjórnar
Reykjavíkur frá 21. júní 2001 um
arðsemismat Kárahnjúkavirkjunar
og þeirrar leyndar og undanbragða
sem verið hafa uppi í tengslum við
fyrirhugaða Kárahnjúkavirkjun lýs-
ir borgarstjórn Reykjavíkur and-
stöðu sinni við þátttöku Reykjavíkur
í þessari framkvæmd.“
Í greinargerð með tillögunni segir
að þátttaka borgarinnar í slíkri
framkvæmd sé með öllu óverjandi,
þegar sterkar líkur bendi til þess að
tap hljótist af henni. Segir einnig að
ljóst sé að ábyrgð hvers borgarbúa
vegna framkvæmda við Kára-
hnjúkavirkjun verði ein milljón
króna.
Ólafur lagði fyrir borgarstjórn 21.
júní tillögu um að skilyrði fyrir þátt-
töku borgarinnar í virkjuninni yrði
að fram færu ítarlegar rannsóknir á
umhverfisáhrifum virkjunarinnar og
að fyrir lægi mat á arðsemi hennar.
Í breytingartillögu sem samþykkt
var samhljóða var fallist á orðalagið
„að fyrir liggi vandaðir arðsemisút-
reikningar“ vegna þeirra virkjunar-
framkvæmda sem borgin sé aðili að.
Þá segir í greinargerðinni að Ólafur
hafi flutt tillögu í borgarstjórn 6.
september um að borgarstjórn lýsti
andstöðu sinni við þátttöku borgar-
innar í virkjuninni vegna umhverfis-
áhrifa. Tillögunni hafi verið vísað til
borgarráðs þar sem hún hafi legið
óafgreidd síðan.
Helgi Hjörvar, borgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans og fulltrúi borg-
arinnar í stjórn Landsvirkjunar,
kvaðst hafa haft uppi varnaðarorð
um Kárahnjúkavirkjun og að fram-
kvæmdin væri ótímabær og óarð-
bær. Þrátt fyrir það sýndist sér að
tillaga Ólafs væri með sama marki
brennd og framkvæmdirnar sem
ráðast ætti í, hún væri ótímabær.
Ekkert kallaði á þessa tillögu nema
ef vera skyldi kosningabarátta
Ólafs. Kvaðst Helgi því mæla með
frávísun tillögunnar með því að
ítreka fyrri tillögu borgarstjórnar.
Árni Þór Sigurðsson, einn borg-
arfulltrúa Reykjavíkurlistans, taldi
mikilvægt að taka tillögu Ólafs til
efnislegrar umræðu og kvaðst ekki
styðja fram komna frávísunartil-
lögu. Sagðist hann hafa sem fulltrúi
Reykjavíkur í samvinnunefnd um
svæðisskipulag miðhálendisins ekki
stutt breytingu á miðhálendisskipu-
laginu sem leiddi af Kárahnjúka-
virkjun.
Krafðist nafnakalls
Ólafur krafðist nafnakalls til að
það lægi fyrir með skýrum hætti
hverjir vildu ráðast í niðurgreidd
náttúruspjöll eins og hann nefndi
það. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði borgarstjórn hafa
mótað stefnu sína og að hún myndi
missa umboð sitt á næstunni. Sagði
hún það hlutverk næstu borgar-
stjórnar að taka afstöðu til þessa
máls.
Árni Þór Sigurðsson, Guðrún
Erla Geirsdóttir og Ólafur F. Magn-
ússon greiddu atkvæði gegn frávís-
un en aðrir borgarfulltrúar beggja
lista voru henni fylgjandi og var hún
því samþykkt með 12 atkvæðum
gegn þremur
Telur þátttöku
Reykjavíkur-
borgar óverjandi
Ólafur F. Magnússon vill að borgin
lýsi andstöðu við Kárahnjúkavirkjun
UM 30 unglingar, nýbúar og
„síbúar“, eins og stóð í tilkynn-
ingu frá hópnum, lögðu af stað í
adrenalínferð gegn rasisma frá
Austurbæjarskóla í gær. Ætlunin
var að fara í hellaskoðunarferð á
Snæfellsnes, siglingu út í Flatey á
Breiðafirði, í veiðiferð o.fl. Þá
gistu ungmennin í Stykkishólmi.
Markmið ferðarinnar mun hafa
verið „að gefa nýjum Íslend-
ingum stökkpall inn í íslenska
unglingamenningu og uppruna-
legum Íslendingum tækifæri til
að auka víðsýni sína“.
Með í för voru ungir kvik-
myndagerðarmenn sem munu
vinna heimildarmynd um ferð
hópsins sem nota á í forvarn-
arstarfi í grunnskólum og víðar.
Ferðin var skipulögð af Miðborg-
arstarfi KFUM&K í samvinnu við
Laugarneskirkju, nýbúadeild
Austurbæjarskóla, félagsmiðstöð-
ina Þróttheima og fleiri aðila.
Morgunblaðið/Golli
Adrenalín
gegn
rasisma