Morgunblaðið - 04.05.2002, Side 35
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 35
FRÉTTIR bárust af því í vikunni að
sænskir vísindamenn hefðu uppgötv-
að að ýmis sterkjuríkur unninn mat-
ur á borð við kartöfluflögur, franskar
kartöflur, kex og brauð innihéldi
efnasambandið akrylamíð, sem talið
er geta valdið krabbameini í mönn-
um. Bandaríska dagblaðið The
Washington Post greinir til að mynda
frá því að Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin (WHO) hafi boðað til ráð-
stefnu í júní til þess að meta hugs-
anlega hættu sem almenningi geti
stafað af magni akrylamíðs í matvæl-
um. The Washington Post veltir einn-
ig upp ýmsum hliðum á þessum nið-
urstöðum í nýrri grein eftir tvo
blaðamenn sem skrifa heilsufréttir.
Er frásögnin sett upp með spurning-
um, sem líklegt er að vakni í huga les-
enda við fréttaflutning af sænsku
rannsókninni og fer hún hér á eftir í
lauslegri þýðingu.
Ekki mikið akrylamíð í pönnu-
kökum, vöfflum og pítsum
„Nú dynur enn ein matvælaógnin á
okkur. Á maður sem sagt að hætta að
borða brauð og franskar kartöflur?
Nei, alls ekki. Leif Busk, einn vís-
indamannanna sem önnuðust rann-
sóknina, og Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin (WHO) hvetja neytendur til
þess að halda matarvenjum sínum
óbreyttum. „Það er ekki hættulegra
að neyta þessara matvæla nú í dag en
fyrir ári,“ er haft eftir Busk, „og eng-
in ástæða til ótta eða róttækra breyt-
inga á neysluvenjum.“
Af hverju er þá verið að flytja
fréttir af þessum niðurstöðum?
Af því að hér er um að ræða áhuga-
verðar bráðabirgðaniðurstöður í vís-
indalegri rannsókn á matvælaöryggi
sem sænskum yfirvöldum þótti næg
ástæða til þess að greina frá áður en
niðurstöðurnar voru gefnar út. Ekki
verður hægt að draga endanlegar
ályktanir af þessari rannsókn fyrr en
hún hefur verið yfirfarin af öðrum
vísindamönnum, endurtekin, útskýrð
og gagnrýnd á alla enda og kanta.
En hvernig myndast akrylamíð í
matvælum?
Leif Busk segir að akrylamíð virð-
ist myndast í sterkjuríkum fæðuteg-
undum við matreiðslu. Því meiri hiti
sem eldað er við og því lengur, því
meira af akrylamíði myndast í matn-
um. Hæsta hlutfall akrylamíðs fannst
í ýmsum steiktum mat og lægsta
hlutfallið í mjúku brauði. Lágt hlut-
fall akrylamíðs fannst til að mynda í
pítsum, pönnukökum, vöfflum,
steiktum fiskistautum, kjötbollum,
jurtasnitseli og blómkálsgratíni.
Einnig var hlutfall akrylamíðs í
rauðu kjöti, fuglakjöti og fiski lágt þó
að maturinn hefði verið steiktur.
En hvað ef á daginn kemur að vís-
indamennirnir hafi haft rétt fyrir sér
og að steiktur sterkjuríkur matur
valdi krabbameini?
Sérfræðingar munu að líkindum
vara fólk við því að borða of mikið af
slíkum matvælum, líkt og þeir gera
nú þegar.
Skaðleg efni ekki
ný af nálinni
Hvers vegna koma niðurstöður af
þessu tagi upp á yfirborðið núna?
Vísindamenn verða æ flinkari við
að mæla alls kyns efnasambönd í
matvælum og vatni. Líkt og Leif
Busk segir sjálfur hafa þessi efni ver-
ið á sínum stað frá ómunatíð en vís-
indin hefur skort leiðir til þess að
hafa uppi á þeim til þessa. Með fyrr-
greindum niðurstöðum vonast rann-
sakendurnir til að hægt verði að finna
leiðir til þess að draga úr myndun
akrylamíðs í matvælum. Tilvist skað-
legra efna eða efna sem valda
krabbameini er ekki ný af nálinni.
Eitt dæmi er nítrat-sölt í unnum kjöt-
vörum og snefilefni á borð við kvika-
silfur í túnfiski. Skaðleg efni finnast í
örlitlu magni í vatnsuppsprettum og
fæðukeðjunni. Næringarefnin sem
við fáum úr matnum vega á hinn bóg-
inn margfalt þyngra en sú örlitla
hætta sem talin er vera fyrir hendi
vegna tiltekinna efnasambanda.
Er niðurstaðan sem sagt sú að ekki
sé ástæða til þess að taka bráða-
birgðaniðurstöður tiltekinnar vís-
indarannsóknar úr samhengi og að
hér eftir sem áður sé mikilvægast að
neyta fjölbreyttrar fæðu sem hvorki
beri að líta á sem skaðvald né allra
meina bót?
Einmitt,“ segir að síðustu á heilsu-
fréttasíðum The Washington Post.
Reuters
Varasöm efnasambönd í matvælum eru ekki ný af nálinni, segir The
Washington Post, og nefnir sem dæmi kvikasilfur í túnfiski.
Fregnir af akryl-
amíði í mat valda
fólki heilabrotum
HEILDSALAN
Eggert Kristjáns-
son hf. kynnir nýj-
ar háreyðingar-
vörur frá Veet,
Aquasystem-hár-
eyðingarvax og
tvenns konar hár-
eyðingarkrem
fyrir ólíkar húð-
gerðir. „Veet-háreyðingarvaxið er
hitað með kranavatni en ekki í potti
eða örbylgjuofni eins og tíðkast hefur.
Það fer ekki yfir líkamshita og því er
hættan á því að brenna sig úr sög-
unni. Vaxið er að uppbyggingu syk-
urefni sem leysist auðveldlega upp í
vatni,“ segir í tilkynningu frá fyrir-
tækinu.
Veet-háreyðingarkremið er með
rakagefandi Aloe Vera og E-vítamíni,
sem sagt er henta vel á þurra og við-
kvæma húð, svo og húð sem farin er
að eldast. „Einnig gott á veturna þeg-
ar húðin þarfnast viðbótarraka og
verndar. Jafnframt er til Veet-hár-
eyðingarkrem með sítrusávöxtum og
C-vítamíni, sem styrkir húðina og
hentar vel ungri húð. Veet-háreyðing-
arvörurnar fást í apótekum og öllum
helstu mat- og snyrtivöruverslunum.“
NÝTT
Háreyðingar-
vax hitað með
kranavatni