Morgunblaðið - 04.05.2002, Side 24
SUÐURNES
24 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Suðurlandsbraut
Til leigu í þessu glæsilega húsi tvær hæðir, samtals 1.700 til
1.900 fm. Mjög góð staðsetning. Glæsilegar, mjög vand-
aðar og góðar skrifstofur á 3. og 4. hæð.
Húsnæðið uppfyllir allar kröfur til nútíma skrifstofureksturs.
Eignin er í eigu traustra aðila.
Sanngjörn leiga fyrir rétta aðila.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
s. 588 4477 eða 899 9271
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Sími 575 8500 • Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
KAUPENDALISTINN
Opið í dag frá kl. 13:00 - 15:00.
EINBÝLISHÚS
Höfum fjársterkan kaupanda að einbýlishúsi í Þingholtunum.
Góðar greiðslur í boði fyrir rétta eign.
Heildsala vantar 150-200 fm einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr í
Grafarvogi. Bein kaup eða skipti á heilli húseign á útsýnisstað í
Hólunum.
RAÐ- OG PARHÚS
Vantar fyrir hjón sem eru að flytja af landsbyggðinni rað- eða
parhús helst á einni hæð.
Vantar rað- eða parhús með fjórum svefnherbergjum í Garðabæ
fyrir traustan kaupanda
SÉRHÆÐIR
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 120-150 fm hæð á
svæði 101 eða 107. Góðar greiðslur í boði.
Óskum eftir 5 herb. sérhæð í Norðurmýri, þ.e. Hrefnugötu,
Kjartansgötu, Guðrúnargötu, Bollagötu eða Gunnarsbraut.
4RA-7 HERB.
5 herb. íbúð í Fossvogi óskast fyrir traustan kaupanda. Góðar
greiðslur í boði.
Höfum traustan kaupanda að 4ra herb. íbúð í góðu fjölbýlishúsi í
Hlíðunum eða vesturbæ.
Vantar fyrir traustan viðskiptavin góða 4ra herb. íbúð, helst með
bílskúr, í Fossvogi, Gerðum eða Háaleitishverfi.
Harðan KR-ing vantar 4ra herb. íbúð í nágrenni heimavallarins.
Góðar greiðslur í boði.
Óskum eftir 5 herb. íbúð á svæði 101, helst við Freyjugötu,
Sjafnargötu, Fjölnisveg, Bergstaðastræti, Mímisveg eða Lokastíg,
en aðrar götur koma til greina.
2JA-3JA HERB.
Stýrimann vantar 3ja herb. íbúð á svæði 101 eða 105.
Ellilífeyrisþega vantar 2ja herb. íbúð á svæði 101 til 200. Góðar
greiðslur í boði.
GALLERY Hringlist hefur verið
opnað á nýjum stað við Hafn-
argötuna í Keflavík, Hafnargötu
16. Þar verður opnuð í dag sýning
á verkum eftir Hafdísi Björgu
Hilmarsdóttur.
Hið nýja húsnæði Gallerys
Hringlistar er minna en það eldra
og þar er ekki sérstakur sýning-
arsalur. Hildur Harðardóttur, eig-
andi Hringlistar, segir að á móti
komi að verslunin sé nú nær söfn-
unum sem verið er að koma upp í
Duus-húsunum og aðstöðu mynd-
listarmanna í Svarta pakkhúsinu.
Hildur segir að áfram verði
sýningar í Gallery Hringlist á
veggjum verslunarinnar. Hafdís
Björg sem nú sýnir hefur verið að
læra hjá Reyni Katrínarsyni
myndlistarmanni í Keflavík auk
þess sem hún hefur sótt ýmis
námskeið. Hún sýnir akríl-
málverk.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Hildur Harðardóttir í Hringlist í nýju húsnæði.
Gallery Hringlist
opnað á nýjum stað
Keflavík
„ÞAÐ er tilhlökkun í okkur að takast
á við komandi verkefni. Við erum hér
með alhliða þjónustu þar sem tekið
verður á öllum þáttum frá krókum
upp í stærstu troll. Nú er verið að
samnýta tæki, tól og mannskap
þannig að afkoman ætti að vera
betri,“ sagði Hörður Jónsson, annar
eigandi SH Veiðarfæra, sem samein-
ast hefur netagerð Þorbjarnar
Fiskanes undir nafninu Veiðarfæra-
þjónustan ehf.
Þorbjörn Fiskanes á 75% í Veið-
arfæraþjónustunni en eigendur SH
veiðarfæra 25%. Skrifað var undir
samning um sameiningu fyrirtækj-
anna um miðjan mars en starfsemin
hófst í raun um áramót.
Hjá SH Veiðarfærum var aðallega
verið í dragnótum og netafellingum
en þeir hjá netagerðinni hjá Þorbirni
Fiskanesi sáu um báta þess fyrir-
tækis.
Starfsemin er í mjög rúmgóðu
húsnæði eða alls 1.800 fermetrar að
flatarmáli og þar starfa nú 10 manns.
Sverrir Þorgeirsson er hinn eigand-
inn að SH Veiðarfærum og leist hon-
um vel á framhaldið. „Já þetta lítur
vel út, við flytjum nánast allt efnið
inn sem við notum, þar á meðal lása,
keðjur og net. Við teljum okkur því
geta boðið sambærilegt verð,“ sagði
Sverrir.
Frá krókum upp
í stærstu troll
Grindavík
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Sigurþór Ólafsson við saumaskap í hinu sameinaða netaverkstæði.
ÁRSREIKNINGUR Gerðahrepps
fyrir árið 2001, sem samþykktur hef-
ur verið af hreppsnefnd, einkennist
mjög af arðgreiðslu Hitaveitu Suð-
urnesja sem greidd var á árinu, að
því er fram kemur í skýrslu endur-
skoðenda hreppsins, Pricewater-
houseCoopers. Fulltrúar meiri- og
minnihluta líta misjöfnum augum á
stöðuna, eins og fram kom í bókun-
um þeirra í hreppsnefnd.
Gerðahreppur fékk á árinu tæp-
lega 67 milljóna króna greiðslu frá
Hitaveitu Suðurnesja, greiðslu sem
ákveðin var þegar veitunni var
breytt í hlutafélag og nýir eignarað-
ilar teknir inn. Hafa þessar greiðslur
áhrif á fjárhag allra sveitarfélaganna
á Suðurnesjum. Gerðahreppur fékk
liðlega 30 milljónir í peningum og 36
milljónir í skuldabréfi sem greiðist á
árinu 2002. Þá eru hlutabréf hrepps-
ins í Hitaveitunni nú færð á nafn-
verði og við það tífaldast verðmæti
þeirra í reikningunum, verður 344
milljónir kr. í stað 33 milljóna, ein-
göngu vegna þess að Hitaveitunni
var breytt í hlutafé.
Á síðasta hreppsnefndarfundi,
þegar ársreikningarinnar voru af-
greiddir, fögnuðu fulltrúar F-lista
framfarasinnaðra kjósenda sem
skipa meirihluta hreppsnefndar, já-
kvæðri niðurstöðu ársreiknings sem
þeir segja að sýni að staða Gerða-
hrepps sé mjög sterk til að halda
áfram uppi öflugri þjónustu og til að
ráðast í framkvæmdir. „Ársreikn-
ingurinn sýnir hversu mikið gæfu-
spor það er fyrir sveitarfélagið að
Hitaveita Suðurnesja skyldi gerð að
hlutafélagi og fá inn í félagið Raf-
veitu Hafnarfjarðar og Bæjarveitur
Vestmannaeyja. [...] Það er með ólík-
indum að fulltrúar minnihlutans í
sveitarstjórn Gerðahrepps skyldu
berjast gegn þessu framfaramáli,“
segir meðal annars í bókun þeirra.
Síðar segir: „Ársreikningurinn sýnir
að Gerðahreppur á mikla framtíðar-
möguleika, sem sjálfstætt sveitarfé-
lag, enda sýnir áhugi fólks fyrir lóð-
um og vilji til að byggja hér, að fólk
hefur trú á bjartri framtíð Garðs-
ins.“
Halda sveitarsjóði uppi
Í bókun fulltrúa H-lista sjálfstæð-
ismanna og annarra frjálslyndra
kjósenda er vakin athygli á því að
tekjutengd framlög Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga nema 55 milljónum kr.,
eða 27% af skatttekjum að frádregn-
um arði frá Hitaveitu Suðurnesja
upp á 69 milljónir. Ef breyting yrði á
framlögum Jöfnunarsjóðs til lækk-
unar hefði sveitarsjóður ekkert til
ráðstöfunar eftir rekstur mála-
flokka, það er að segja ekkert upp í
afborganir og vexti af lánum og til
fjárfestinga. „Staðan hér er sú að
Jöfnunarsjóður og Hitaveita Suður-
nesja halda sveitarstjóði uppi á
þessu ári,“ segir meðal annars í bók-
un H-listans.
Greiðslur frá Hitaveitu
setja mark á reikninga
Gerðahreppur
MÁLMBLÁSARAHÓPUR frá Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar verður
með tónleika í sal Tónlistarskóla
Garðabæjar sunnudaginn 5. maí kl.
16.
Í málmblásarahópnum eru níu
hljóðfæraleikarar úr hópi eldri nem-
enda Tónlistarskóla Reykjanesbæj-
ar, undir stjórn Davids Nooteboom.
Flutt verða verk eftir Susato, Moz-
art, Händel, Mendelssohn og fleiri.
Þá verður frumflutt á Íslandi verkið
Melody with Echo eftir Robin Hol-
loway en það er samið fyrir tvö
trompet.
Málmblásarar
með tónleika í
Garðabæ
Reykjanesbær
CRANIO-Sacral-skólinn heldur
kynningarnámskeið í höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð í húsnæði
Sálarrannsóknarfélags Suðurnesja
að Víkurbraut 13 í Keflavík, á morg-
un, sunnudag, klukkan 9.30 til 17.
Námskeiðið er á vegum Cranio,
félags höfuðbeina- og spjaldhryggj-
arjafnara og á því er hagnýt kennsla
í nálgun og meðhöndlun mannslík-
amans, segir í fréttatilkynningu.
Námskeið á
vegum Cranio
Keflavík
FÉLAGAR á Suðurnesjum í Ætt-
fræðifélaginu hittast á Bókasafni
Reykjanesbæjar nk. mánudags-
kvöld, 6. maí, kl. 20.
Þetta verður síðasti fundur vetr-
arins og allir áhugasamir um ætt-
fræði eru velkomnir, segir í frétta-
tilkynningu frá bókasafninu. Nánari
upplýsingar veitir Einar Ingimund-
arson.
Ættfræðingar
hittast
Keflavík
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦