Morgunblaðið - 04.05.2002, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HeildsöluLAGERSALA
Laugavegi 82 á horni Laugavegs og Barónsstígs
Barna-, dömu- og herrafatnaður
Merkjavara á verði sem ekki hefur áður sést
Check in
Loki
Bad boys
Bad girls
Vila
Fransa
Uniface
Filati
Belika Carnet
Nýjar vörur á
hverjum degi
Afgreiðslutími:
Mán.-fös. kl. 12-19
Lau.-sun. kl. 12-17
BRÚIN yfir Tjörnina var upp-
runalega úr tré. Síðar var hún
steypt en nú standa yfir steypu-
viðgerðir á brúnni. Ríflega 80 ár
eru síðan Skothúsvegur var lagður
á þessari brú yfir Tjörnina en það
var gert árið 1920.
Í bókinni Reykjavík – sögustaður
við Sund má lesa um það hvernig
Tjörnin hefur þróast í gegnum tíð-
ina Er þar m.a sagt frá því að
Tjörnin hafi talsvert minnkað að
umfangi á síðustu öld. Fyrir alda-
mótin 1900 náði hún norður undir
hússtæði Alþingishússins en vegna
húsgrunna, sem myndaðir voru
með uppfyllingu í Tjörninni og
Ljósmynd/Magnús Ólafsson
Á þessari mynd, sem tekin var um 1916, sést hvar framkvæmdir við uppfyllingu vegna Skothúsvegar eru hafnar en brúin er ekki komin. Horft er til
suðurs yfir tjörnina í átt að Keili en í forgrunni má sjá þekktar byggingar eins og Alþingishúsið og dómkirkjuna. Myndina tók Magnús Ólafsson.
Brúin
orðin 82
ára gömul
Tjörnin
ELLEFU umhverfis- og nátt-
úruverndarsamtök veittu leik-
skólanum Mánabrekku á Seltjarn-
arnesi viðurkenningu fyrir störf
að verndun umhverfis og nátt-
úruvernd á degi umhverfisins
þann 26. apríl síðastliðinn.
Segir í fréttatilkynningu frá
Seltjarnarnesbæ að stefna leik-
skólans hafi frá upphafi verið
umhverfis- og náttúruvernd. Leit-
ast sé við að flétta stefnuna inn í
allt starfið með börnunum, t.d.
með endurvinnslu, flokkun á
sorpi, heimajarðgerð, papp-
írsgerð, ræktun, náttúruupplif-
unum og beinni fræðslu inni og
úti í vettvangsferðum o.fl. Þá lúti
öll innkaup, endurnýting, þvottar,
hreinsiefni, þrif og umgengni við
hús og húsbúnað sömu lögmálum.
Morgunblaðið/Golli
„Hver er að trampa á brúnni minni?“ æpti tröllið á geithafurinn þegar
krakkarnir á Mánabrekku voru með samverustund í gær.
Mánabrekka fær umhverfisverðlaun
Seltjarnarnes
KYNNINGARFUNDUR var hald-
inn í vikunni um býlið Krók á Garða-
holti og umhverfi hans. Krókur er
lítill bárujárnsklæddur burstabær
sem var endurbyggður úr torfbæ ár-
ið 1923 og var búið í honum allt til
ársins 1985.
Afkomendur síðustu íbúanna í
Króki gáfu Garðabæ bæjarhúsin í
Króki ásamt útihúsum og innbúi árið
1998 með því skilyrði að bærinn yrði
endurbyggður sem nú hefur verið
gert. Þykir bærinn gott dæmi um
húsakost og lifnaðarhætti alþýðu-
fólks í þessum landshluta á fyrri
hluta 20. aldar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á myndinni má sjá Steinar J. Lúðvíksson rithöfund lesa úr óútgefinni
ritgerð sinni um sögu Garða og Garðaholts á kynningarfundinum en við
pontuna sitja Páll Hilmarsson og Sigurður Björnsson sem báðir eiga
sæti í menningarmálanefnd Garðabæjar.
Krókur
kynntur
Garðabær
BRETTAFÉLAG Reykjavíkur er
nú aftur á vergangi með starfsemi
sína eftir að eigandi gömlu Sindra-
stálsskemmunnar í Borgartúni
sagði upp leigusamningi við það og
reif húsið en félagið var með hjóla-
brettaaðstöðu þar. Aðstoðafram-
kvæmdastjóri Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur segir þó
þá fjármuni sem borgin lagði til
starfseminnar ekki hafa farið for-
görðum þar sem búnaður félagsins
sé geymdur á vísum stað.
Síðastliðið sumar byggði félagið
upp aðstöðu á 800 fermetrum í
Sindrastálsskemmunni með styrk
frá Reykjavíkurborg en samhliða
brettaaðstöðunni var rekin go-kart
bílabraut á um 2.000 fermetra
svæði af öðrum aðila. Fólst styrkur
Reykjavíkurborgar í að greiða
leigu á húsnæðinu til eins árs auk
Brettafélagið hús-
næðislaust á ný
Morgunblaðið/Sverrir
Búið er að rífa Sindrastálsskemmuna í Borgartúni og er nú auður bygg-
ingarreitur þar sem hún stóð.
Tún
Fjármunir borgarinnar ekki
tapaðir, segir fulltrúi ÍTR