Morgunblaðið - 04.05.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.05.2002, Blaðsíða 21
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 21 meistar inn. is GULL ER GJÖFIN BJÖRN Snæbjörnsson var endur- kjörinn formaður Einingar-Iðju á að- alfundi félagsins í vikunni. Fram kom á fundinum að rekstr- arhagnaður félagsins var 13 milljónir króna á liðnu ári, en var ein milljón ár- ið á undan, þannig að afkoman hefur batnað til muna. Sjúkrasjóður félagsins var rekinn með tveggja milljóna króna tapi, en hagnaður varð upp á eina milljón árið á undan. Sjóðurinn er félaginu mjög þungur en mikil hækkun á greiðslum dagpeninga úr sjúkrasjóði var sam- þykkt á aðalfundi í fyrra og eru þær nú með því sem best gerist innan Starfsgreinasambandsins. Rekstur orlofssjóðs var neikvæður um eina milljón króna en ástæðan er einkum sú að öll orlofshús félagsins hafa verið endurbætt á síðustu þrem- ur árum. Vaxandi umsvif eru í rekstri orlofshúsanna en eftirspurn er þó hvergi nærri fullnægt. Aðeins er hægt að verða við ríflega helmingi umsókna sem berast. Björn vakti athygli á því að þeim atvinnurekendum hefði fjölgað sem vísvitandi reyndu að hlunnfara fólk. „Það er meira um það en áður að búið sér til jafnaðarkaup og þegar dæmið er reiknað til enda kemur í ljós að það stenst ekki kjarasamninga, launin sem fólk er að fá eru undir lágmarks- launum,“ sagði Björn. Hann sagði þetta einkum vera ungt fólk sem fyrir þessu yrði, en það væri því miður ekki mikið að velta réttindum sínum fyrir sér. Oft gengi fólk inn í einhvern samning, tæki hann góðan og gildan, en síðar kæmi í ljós að ekki væri allt með felldu. Björn nefndi einnig að reglur um hvíldartíma væru oft ekki virtar og sagði að enn töluðu menn um að „þetta væri kjaftæði frá Evrópu,“ eins og hann orðaði það. Björn sagði þetta valda áhyggjum. Á fundinum ræddi hann einnig um mikilvægi verkalýðshreyfingarinnar í baráttunni gegn verðbólgunni og kvaðst fagna þeim árangri sem náðst hefði þrátt fyrir sofandahátt sem ein- kennt hefði stjórnvöld mest allt síð- asta ár.Viðleitni verkalýðshreyfingar- innar á Eyjafjarðarsvæðinu sagði hann hvarvetna hafa verið vel tekið ef undan væri skilinn Ólafsfjarðarbær. Afkoma Einingar-Iðju hefur batnað til muna á síðasta ári Atvinnurekendum sem reyna að hlunnfara fólk hefur fjölgað VORTÓNLEIKAR Kórs Akureyr- arkirkju verða haldnir í Akureyrar- kirkju á morgun, sunnudaginn 5. maí kl. 17. Á efnisskránni er „Messe Solen- nelle“ fyrir kór og tvö orgel eftir Louis Vierne og kórtónlist við Dav- íðssálma eftir Egil Hovland, Hein- rich Schütz, Friederich Kiel og César Franck. Antonia Hevesi og Daníel Þorsteinsson leika á orgel. Stjórnandi og orgelleikari er Björn Steinar Sólbergsson. Vortónleik- ar í Akur- eyrarkirkju SÍÐUSTU tónleikar Tónlistar- félagsins á Akureyri starfsárið 2001– 2002 verða haldnir nk. sunnudag, 5. maí, í Félagsheimilinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit. Það er Guðrún Óskarsdóttir semballeikari sem lýkur starfsárinu með flutningi fjölbreyttrar efnis- skrár á sembal þann sem er í eigu Akureyrarbæjar og varðveittur er við Tónlistarskólann á Akureyri. Guðrún lauk píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1986. Stundaði hún síðan nám í semballeik hjá Helgu Ingólfsdóttur og framhaldsnám í Amsterdam, Ba- sel og í París. Hún hefur leikið með Bach-sveitinni í Skálholti, Kammer- sveit Reykjavíkur og með Sinfóníu- hljómsveit Íslands svo og verið semballeikari CAPUT-hópsins frá 1992. Tónleikarnir hefjast kl. 15:00 og er miðasala við innganginn. Sembaltónleikar í Laugaborg MINJASAFNIÐ á Akureyri efnir til skoðunarferðar um Gásir og Möðru- velli í Hörgárdal á sunnudag, 5. maí. Gásir eru einn elsti verslunarstaður sem þekktur er á landinu. Minjarnar þar eru friðlýstar, ná yfir 14.000 fer- metra svæði og eru einstakar í sinni röð. Guðrún María Kristinsdóttir safnstjóri verður leiðsögumaður hópsins og mun fjalla um miðalda- kaupstaðinn og hlutverk hans í sögu landsmanna fyrr og nú. Síðan verður ekið að Möðruvöllum þar sem séra Solveig Lára Guð- mundsdóttir tekur við leiðsögn og rekur helstu þætti úr sögu trúar- og menntasetursins á Möðruvöllum í Hörgárdal. Þátttakendur eru beðnir að koma á eigin bílum að bílastæðinu á Gásum kl. 14.00. Þátttaka er ókeypis og öll- um heimil. Skoðunarferð um Gásir og Möðruvelli ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.