Morgunblaðið - 04.05.2002, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.05.2002, Qupperneq 26
LANDIÐ 26 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á AÐALFUNDI Ungmennafélags- ins Þórs í Þorlákshöfn var Karen Ýr Sæmundsdóttir valin íþrótta- maður ársins 2001. Karen hefur stundað badminton í mörg ár og náð góðum árangri. Efnilegasti íþróttamaður Þórs 2001 var valinn Elísabet Ásta Bjarkadóttir frjáls- íþróttakona. Hver deild sem starfar í félaginu velur sinn íþróttamann og annan sem er efnilegur, úr þeim hópi er síðan valinn íþróttamaður félags- ins. Þeir sem valdir voru að þessu sinni voru: Badmintondeild: Karen Ýr Sæmundsdóttir og Heiðrún Helga Hjörleifsdóttir og Jón Auð- unn Haraldsson efnilegir ungling- ar. Fimleikar: Hugrún Vignisdóttir og efnileg Júlíana Ármannsdóttir. Frjálsíþróttir: Jón Guðni Gylfason og efnileg var Elísabet Ásta Bjarkadóttir. Körfuknattleikur: Hallgrímur Brynjólfsson og efni- legur var valinn Grétar Ingi Er- lendsson. Badmintondeildin hlaut við- urkenningu fyrir öflugt starf á árinu. Edda Ríkharðsdóttir, sem verið hefur gjaldkeri félagsins í fjöldamörg ár, hlaut viðurkenningu fyrir fórnfúst og óeigingjarnt starf fyrir félagið. Stjórn félagsins var endurkjörin. Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson Íþróttamaður Þórs 2001. Standandi frá vinstri: Jón Auðunn Haraldsson, Hallgrímur Brynjólfsson, Grétar Ingi Erlendsson, Sæmundur Stein- grímsson, Edda Ríkharðsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Elísabet Ásta Bjarkardóttir, frjálsíþróttakona, valin efnilegur íþróttamaður Þórs, Karen Ýr Sæmundsdóttir, badmintonkona, íþróttamaður Þórs, Júlíana Ármannsdóttir, Heiðrún Helga Hjörleifsdóttir, Hugrún Vignisdóttir. Karen Ýr íþróttamaður Þórs Þorlákshöfn ÁRBORGARSVÆÐIÐ STÚLKUR úr þriðja flokki kvenna í knattspyrnu munu hlaupa boðhlaup frá Selfossi til Reykjavíkur í dag 4. maí. Tilgangur hlaupsins er að afla fjár vegna utanlandsferðar hópsins til þátttöku í knattspyrnumóti í Dan- mörku í júlí. Stúlkurnar hafa sinnt æfingum vel, eru mjög áhugasamar um íþrótt sína og náðu þeim árangri að verða Íslandsmeistarar í keppni sjö manna liða í fyrra. Mjög öflugt félagsstarf er í kringum flokkinn og vel stutt við bakið á stúlkunum af foreldrum. Aðalstyrktaraðili stúlknanna í hlaupinu til Reykjavíkur er Húsa- smiðjan og munu stúlkurnar hefja hlaupið hjá Húsasmiðjunni á Selfossi og enda við Húsasmiðjuna í Súðar- vogi í Reykjavík. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Þriðji flokkur ásamt þjálfara og framkvæmdastjóra Húsasmiðjunnar. Hlaupa til Reykjavíkur Selfoss UNDANFARNA daga hefur snjóað mikið í Siglufirði og er snjórinn sennilega heldur meiri núna en mest varð í vetur. Það er því ekki margt sem minnir á þá staðreynd að það er komið sumar. Að sögn kunnugra er það ekki einsdæmi að snjói um þetta leyti og oft er það svo að enn er mikið eftir af snjó vetrarins um mánaða- mótin apríl-maí. Það sem er á hinn bóginn óvenju- legt er að veturinn hefur verið frem- ur snjóléttur og snjó hafði nær alger- lega tekið upp áður en þessi flétta veðurguðanna hófst nú í sumarbyrj- un. Það er enn dálítil ofankoma og ekki búist við miklum breytingum fyrr en um eða eftir helgina. Börnin á Siglufirði tóku þessum veðrabreyt- ingum nokkuð vel. Snjór með mesta móti Siglufjörður Morgunblaðið/Halldór Halldórsson BARNFÓSTRUNÁMSKEIÐIN á vegum Þórshafnardeildar Rauða krossins eru jafnan vinsæl og að þessu sinni voru átta stúlkur á nám- skeiðinu. Kennarar voru hjúkrunar- fræðingurinn Hjördís Gunnarsdóttir og Hjördís Hendrikssen leikskóla- kennari og fór kennslan fram í grunnskólanum um helgi. Námskeiðið var 16 klukkustundir og í lok þess fengu nemendurnir bakpoka með fyrstuhjálparbúnaði að gjöf frá Þórshafnardeild Rauða krossins og eru nú reiðubúnir í barnagæslustörfin. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Stúlkurnar á barnfóstrunámskeiði RKÍ ásamt kennurum sínum, þeim Hjördísi Gunnarsdóttur og Hjördísi Hendrikssen. Gaman á barnfóstru- námskeiði Þórshöfn MEÐAL margra tónlistarviðburða tengdra Sæluviku er vert að nefna konset ungs kórs, Kammerkórs Skagafjarðar, sem haldinn var í há- tíðarsal Fjölbrautaskólans við upp- haf gleðiviku Skagfirðinga. Kórinn sem stofnaður var í jan- úar árið 2000 og er því rétt tveggja ára hefur innan sinna vébanda rúmlega tuttugu söngvara, en stjórnandi er Sveinn Arnar Sæ- mundsson. Að þessu sinni var fyrri hluti söngskrárinnar þekkt íslensk þjóð- lög frá ýmsum tímum, og mörg hver sem ekki heyrast daglega en síðari hlutinn, sem var tónlist úr ýmsum áttum hófst á lagi eftir Odd- geir Kristjánsson við texta eftir Ása í Bæ, og endað á lagi eftir Eirík Jónsson við texta Sigurðar Hansen, en báðir eru þeir Skagfirðingar. Gestaeinsöngvari með kórnum var Óskar Pétursson frá Álftagerði og urðu bæði hann og kórinn að syngja mörg aukalög fyrir fjöl- marga ánægða gesti. Kammerkór Skagafjarðar syngur í vorið Sauðárkrókur Morgunblaðið/ Björn Björnsson Óskar Pétursson og Kammerkór Skagafjarðar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.