Morgunblaðið - 04.05.2002, Qupperneq 33
Háskóli Íslands og Minnesotaháskóli
Formleg sam-
skipti í 20 ár
Morgunblaðið/Steinþór
Mark G. Yudof, rektor Minnesotaháskóla, og Páll Skúlason, rektor Há-
skóla Íslands, skrifa undir nýjan samstarfssamning til næstu fimm ára.
FORMLEG samskipti Háskóla Ís-
lands og Minnesotaháskóla í Banda-
ríkjunum hafa staðið yfir í 20 ár og
af því tilefni var sérstök athöfn í
Minnesotaháskóla í Minneapolis í
tengslum við ársþing Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga í Vesturheimi,
sem fór fram í húsakynnum háskól-
ans.
Mark G. Yudof, rektor Minne-
sotaháskóla, sagði m.a. við þetta
tækifæri að samstarfið hefði verið
mjög gott, en fyrst og fremst hefur
verið um nemendaskipti að ræða
auk þess sem starfsmenn skólanna
hafa notið góðs af samvinnunni.
Páll Skúlason, rektor Háskóla Ís-
lands, gat þess að samstarfið hefði
byrjað fyrir um hálfri öld, en á
undanförnum árum hefðu um
10 íslenskir nemendur stundað
nám við Minnesotaháskóla að
meðaltali á ári. Hann notaði
tækifærið og færði Carol Paz-
andak, fyrrverandi námsráð-
gjafa, íslenska skotthúfu og sér-
stakt handprjónað sjal að gjöf frá
HÍ auk skjals sem staðfesti störf
hennar í þágu skólanna.
Fyrrverandi styrkþegar, Skarp-
héðinn B. Steinarsson, skrif-
stofustjóri í forsætisráðuneytinu,
John Askelson og Jónína Kárdal,
greindu frá því hvernig styrkirnir
hefðu nýst þeim, og rektorarnir
skrifuðu undir nýjan samstarfs-
samning til fimm ára. Samstarfsins
var síðan sérstaklega minnst á
þinginu þar sem eitt kvöld var helg-
að þessum tímamótum en við það
tækifæri fluttu Páll Skúlason og Örn
Arnar, aðalræð-
ismaður í Minnea-
polis, áhrifamikl-
ar ræður.
ÚR VESTURHEIMI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 33
VÍKINGASÝNING Smithsonian-
stofnunarinnar í Bandaríkjunum
verður opnuð í Ottawa, höfuðborg
Kanada, á þriðjudag. Hún hefur
verið víða um Bandaríkin undan-
farin tvö ár en flyst nú í fyrsta og
eina sinn til Kanada.
Sýningin „Víkingar: Saga Norð-
ur-Atlantshafsins“ var fyrst sett
upp í Náttúruminjasafni Smith-
sonian í Washington í apríl árið
2000, en hefur síðan verið í New
York, Denver, Houston og Los
Angeles, en hún verður opin al-
menningi í Þjóðmenningarsafni
Kanada í Ottawa frá 8. maí til 14.
október í haust. Elisabeth Ward,
aðstoðarsýningarstjóri sýningar-
innar frá Smithsonian-stofnuninni,
kynnti sýninguna á ársþingi Þjóð-
ræknisfélags Íslendinga í Vestur-
heimi, sem fram fór í Minneapolis
á dögunum, en þangað fer hún frá
Ottawa.
Einn helsti bakhjarl sýningar-
innar er Norræna ráðherranefndin
og verða norsku konungshjónin
fulltrúar Noregs við opnunina í
Ottawa, en þau verða í opinberri
heimsókn í Kanada. Aðrir opinber-
ir fulltrúar Norðurlandanna verða
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar,
sem verður
fulltrúi Dan-
merkur,
mennta-
málaráð-
herra Finnlands og sendiherrar
Íslands og Svíþjóðar í Kanada.
Vegna sýningarinnar verða
Norðurlöndin með ýmsa kynningu
á þriðjudag og í því sambandi má
nefna að gestum verður m.a. boðið
upp á saltfisk frá SÍF í Kanada,
sem Hilmar B. Jónsson mat-
reiðslumeistari útbýr, og íslenska
vatnið Iceland Spring verður á
boðstólum.
Fjölbreytt menningarlíf
Margir menningarviðburðir
verða í Ottawa í tengslum við sýn-
inguna. Í því sambandi má nefna
að á mánudag opnar Hjálmar W.
Hannesson, sendiherra Íslands í
Kanada, ljósmyndasýningu Páls
Stefánssonar, „Ísland, land víking-
anna“, og verður hún opin almenn-
ingi frá 7. maí til 1. júlí, en hún
hefur verið sýnd víða vestra. Nor-
rænt menningarkvöld verður 10.
maí og lesið verður upp úr nor-
rænum barnabókmenntum daginn
eftir. Landnámssýningin „Scand-
inavian Roots – American lives“
verður opnuð í þjóðskjalasafninu
22. maí, ári eftir að Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra opnaði
formlega sendiráð Íslands í Ott-
awa, en starfsemi hófst þar 1. maí
í fyrra. Hönnunarsýningin „Gen-
eration X – Young Nordic Design“
verður 12. júlí til 20. ágúst, söng-
leikurinn „Hetjan Gunnar“ eða
„Gunnar the Hero“ með söng-
hópi frá Suðurlandi verður
sýndur 1. og 2. ágúst,
heimildasjónvarpsmynd-
ir verða sýndar í sept-
ember og 11. til 17.
október verður norræn
kvikmyndahátíð.
Víkingasýn-
ingin í Kanada
í fyrsta sinn HÁTT í tvö hundruð mannssóttu sumarfagnað Brúarinnar íSelkirk í Kanada á sumardaginn
fyrsta en þetta var í 108. skipti
sem þessi deild Þjóðræknis-
félagsins í Manitoba gengst fyr-
ir skemmtun af þessu tilefni.
Samkoman var í safnaðar-
heimili kirkju hins góða hirðis í
útjaðri Selkirk, sem er skammt
frá Winnipeg. Margt var til
skemmtunar og var það einkum
ungt fólk sem annaðist
skemmtiatriðin, sem voru kór-
söngur, einsöngur, fiðluleikur,
píanóleikur, trompetleikur og
sögufluningur. Ungt fólk flutti
frumsaminn leikþátt á íslensku
og Óli Narfason, bóndi á stórbúi
skammt frá Gimli, stjórnaði
fjöldasöng.
Eiður Guðnason sendiherra,
sem nú starfar sem aðalræðis-
maður Íslands í Winnipeg, flutti
sumarkveðju frá Íslandi, en ekki
var sérlega sumarlegt á þessum
slóðum á sumardaginn fyrsta.
Vetur og sumar frusu rækilega
saman í átta stiga frosti og að
morgni sumardagsins fyrsta var
alhvít jörð í Selkirk og Winni-
peg.
Sumar-
fagnaður
í Selkirk
Óli Narfason, bóndi, stjórn-
aði fjöldasöng með glæsi-
brag og tilþrifum.