Morgunblaðið - 04.05.2002, Side 37

Morgunblaðið - 04.05.2002, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 37 Lítill drengur sat hann oft á læri afa, sem reri með hann og kvað rímur. Nú er dreng- urinn orðinn miðaldra og Steindór Andersen rær sjálfur, þó einungis yfir sumarið; er á hand- færum á eigin trillu frá Súgandafirði. Og kveð- ur þá rímur fyrir þorskinn og múkkann. „Ég þarf ekki á útvarpi að halda, enda hefur tækið um borð lengst af verið bilað og ég hef engan áhuga á að lagfæra það.“ Segist bara hringja í Veðurstofuna. „Báturinn er hæggengur, ég er lengi á miðin og enn lengur á leið í land. Þá er gott að geta gripið til þess að kveða svolítið. Þægilegt.“ Þorskurinn fælist ekki, segir hann. „Hann bítur að minnsta kosti á, forðar sér ekki.“ Hann segir það afskaplega skemmtilegt líf að vera á trillu og honum líkar vel að vera á Súg- andafirði. „Það er indælis pláss og fólkið þar er skemmtilegt og gott.“ Steindór er búsettur í Hafnarfirði og elur þar manninn yfir vetrartímann. Er hættur á línu, segir það ekki borga sig en sem formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar hefur hann haft nóg fyrir stafni við að breiða út fagnaðarerind- ið. Treður upp með heimsfrægum hópi, ís- lensku síðrokksveitinni Sigur Rós, hér og þar um heimsbyggðina. Telur það eins og hverja aðra skyldu sína að koma kvæðalögunum á framfæri. „Þetta er þáttur í því að efla vitund almennings um íslenska grunntónlist.“ En það er reyndar ekki hægt að neita því, segir hann, að samstarfið við Sigur Rós hefur verið sér- staklega skemmtilegt. Og íslenska ríman hefur farið víðar en hann átti von á. „Blessaður vertu. Manni datt aldrei í hug að þetta yrði eitthvað í líkingu við það sem raun ber vitni.“ Upphaf samstarfs Steindórs og Sigur Rósar má rekja til sjónvarpskonunnar Evu Maríu Jónsdóttur. Þegar hún sá um þáttinn Stutt í spunann fyrir nokkrum árum bað hún formann Kvæðamannafélagsins Iðunnar að benda sér á fólk sem kynni eitthvað fyrir sér í rímnalistinni. „Ég benti á fólk út um allan bæ, ungt og gam- alt,“ segir Steindór en hann endaði sjálfur í þættinum, ekki síst vegna þess að Eva María komst á snoðir um að hann var með á sínum snærum hóp fimm ára leikskólabarna úr Hafn- arfirði sem lært höfðu að kveða rímur og þau komu líka fram. „Svo spurði hún hvort ég nennti ekki að kenna einhverjum poppara að kveða eins og eina stemmu. Jú, jú ég var alveg til í það, og þannig vildi til að Jónsi var fenginn til þess að læra. Þannig kynntumst við og ég fór að sýna strákunum inn í þennan rímnaheim, fyrst Jónsa og svo hinum og þeir voru strax mjög hrifnir.“ Jónsi er Jón Þór Birgisson gítarleikari og söngvari Sigur Rósar. „Hann lærði fyrst eina stemmu og varð svo hrifinn af öðru sem ég leyfði honum að heyra að hann vildi spila á gít- arinn og láta mig kveða. Það tókst ágætlega. Svo hringir hann einhverjum dögum seinna og spyr hvort ég vilji ekki koma á æfingu...“ Steindór fór. Og spurt var eftir æfinguna: Viltu ekki bara koma með okkur á tónleika, á morgun? „Jú, jú.“ Þeir fyrstu voru í Nýlistasafninu og tónleik- arnir eru orðnir margir síðan. „Strákarnir eru ekki alveg heyrnarlausir. Það væri betra ef fleiri væru svona áhugasamir. Fólk er misfljótt að átta sig á hlutunum en þeir sem fara inn í þennan rímnaheim – þeir sem hlusta á gömlu upptökurnar sem við eigum – geta ekki annað en hrifist með. Þetta er af svo rammíslenskum kjarna að maður heyrir í ömmu sinni! Finnur fúggalyktina í gamla torf- bænum!“ Lítið sem ekkert hefur verið vitað um ís- lenska rímnahefð erlendis, nema innan þröngs hóps, segir Steindór, en leggur áherslu á að með velgengni utan landsteinanna hafi Sigur Rós ekki einungis öðlast frægð og frama heldur unnið annarri íslenskri tónlist ómetanlegt gagn. Íslenskar rímur eru fjársjóður sem miklu meira á eftir að verða úr en marga órar fyrir í dag. Um það er Steindór Andersen viss. „Þetta er ákveðin tónlistarstefna sem heimurinn veit ekki af. En það er mikið fóður í þessu. Til eru upptökur af gömlum rímnakveðskap á Netinu; upptökur með Vestur-Íslendingum í Bandaríkj- unum frá því upp úr 1940. Afskaplega góðar upptökur,“ segir Steindór. „Þegar við skoðum íslensk tónskáld 20. ald- arinnar má mjög víða heyra einkenni úr ís- lenskri rímnahefð. Öll þessi íslensku tónskáld hafa á einhverju tímabili og í einhverjum verk- um sínum dregið dám af íslensku rímnahefð- inni.“ Sigur Rós, Steindór og Hilmar Örn Hilm- arsson fluttu tónverk samið af hópnum við Eddukvæðið Hrafnagaldur Óðins í Barbican- tónleikahöllinni í London á dögunum og þar segir Steindór steinaspil Páls á Húsafelli til að mynda hafa vakið mikla athygli. „Það myndast ákveðin stemmning í kringum steinaspilið í Hrafnagaldri og auðvitað er gaman að þetta skuli koma úr íslensku grjóti. Úr íslensku lípar- íti sem tínt er í gili í Húsafelli. Er til nokkuð ís- lenskara?“ Íslenska ríman var við það að deyja út á síð- ustu öld, segir Steindór. „Var í raun að smádre- past allan tímann þó svo kvæðamannafélögin væru starfandi. Ríman hlaut til dæmis enga náð hjá Ungmennafélögunum; þar var það bara glíman ef talað var um íslenskar hefðir.“ Og menn fóru hálfpartinn að skammast sín fyrir þennan hluta arfleifðarinnar. Ríman þótti hallærisleg. „Samanborið við evrópskan söng sem menntað tónlistarfólk flutti þótti þetta nú svolítið aftan úr forneskju. Ramminn, íslenska bændasamfélagið, var líka horfinn. Fólk flutti á mölina og rímur voru ekki lengur áhugaverðar sem skemmtiefni því nóg var af öðru.“ Ekki er mjög langt síðan Steindór fékk áhuga á rímunni. Og þó; afinn fór með rímur þegar drengurinn sat á lærinu, sem fyrr segir. „Það var þó allt horfið og gleymt, held ég. Veit svo sem ekki með vissu hvort eitthvað blundaði í manni frá þeim tíma.“ En fyrir tveimur árum rifjaðist upp fyrir honum lag sem afinn kvað oft, eftir að móðir Steindórs spurði hann hvort hann myndi ekki eftir þessu tiltekna lagi. Það var á ofanverðum níunda áratug síðustu aldar sem togarasjómaðurinn Steindór Ander- sen fór að velta rímum fyrir sér sem bókmennt- um. „Ég hafði með mér rímur í kassavís á sjó- inn og las allt sem ég komst yfir af því tagi.“ Hann var að leita að nafni. Vildi vita hvaðan Eleseus kæmi, því hann hafði verið með göml- um karli með því nafni á trillu. Það vatt upp á sig. Hann rakst á rímur af Eleseusi spámanni og ákvað þá að styrkja sig í bragfræði, því þá sé einfaldara að lesa vísna- handrit. Hjólið fór svo af stað þegar hann var sannfærður um það af einum félaga í Kvæða- mannafélaginu Iðunni að það að lesa rímur væri aðeins helmingurinn; hinn helmingurinn væri að heyra þær kveðnar. Þar með gekk hann í félagið. „Og ekki varð aftur snúið eftir að ég fór að hlusta á upptökur og kynntist andanum í kvæðalögunum.“ Hann segir því, og brosir út um skeggið: „Það er skrýtin saga og afskaplega tilviljana- kennd, hreint og beint draugaleg á köflum, hvernig maður lenti í þessu!“ Trillukarlinn í Hafnarfirði er hæstánægður með hve „strákarnir“ eru óragir. „Strákarnir“ eru Sigur Rós. „Þetta er einkenni á góðum listamönnum, að þora.“ Jánkar því að gamalt og nýtt séu í raun hug- tök sem skipta engu máli þegar listin er annars vegar. „Og það er langeðlilegast að Íslendingar sem eru að vinna að tónlist geri það á íslenskum forsendum. Heimurinn vill heyra það. Við þurf- um ekki að fara með Mozart til annarra landa, það hljómar eins og öfugmæli.“ Trillukarlinn sem treð- ur upp með Sigur Rós Eftir Skapta Hallgrímsson PÁLL GUÐMUNDSSON á Húsafelli teiknaði þessa mynd af Steindóri Andersen á dögunum í London, þar sem þeir sátu skammt frá British Museum. Og Steindór skrifaði með myndinni í bók Páls: Drekk- ur bjór á barnum hjá/British Museum/Páli þótti sjón að sjá/setti þetta blaðið á. dið, jafnvel þótt þeir hafi fengið á silfurbakka í upphafi og hann sé völlur þess gróða sem menn hampa kýrslum nú um stundir. En þessum um hlýtur að líða betur á sálinni, þeir greiða hóflegt verð fyrir afnot sem fólkið í landinu á sameiginlega, sem gjaldið er hverju sinni. fur hafði ég sem ungur blaðamaður ánægju af því að eiga samtöl við eft- nilega sjósóknara en flest annað fólk nu. En þeir eru ekki í tízku lengur, ndilega. ræður engum úrslitum, hvert þetta dagjald er, heldur viðurkenningin á grundvallaratriðum, að ekki er hægt sa undir sig sameiginlega eign þjóð- ar, þótt með lögformlegum hætti sé, r sé greitt fyrir afnot sem eru öllum gsbóta, athafnamönnum og almenn- landinu. Slík bolabrögð hafa áreið- a ekki ýtt undir einkavæðingu, þar ún er réttlætanleg. nn mættu vel muna það sem eitt var sagt, að þau lög sem almenn- ingur virðir einskis og telur ólög geta aldrei fest rætur í nokkru samfélagi, hvað sem löggjafarvaldinu líður. Forréttindi eiga ekki að vera á dagskrá í nútíma sam- félagi, heldur jafn réttur þegnanna; þ.e. réttlæti. Allt annað er tímaskekkja og aft- urhvarf til lénsskipulags. Efni í átök og sundrung. Grikkland er hrunið, Hómer lifir, var eitt sinn sagt. Hið sama mætti segja um Morgunblaðið, þegar talað er um stór- málin tvö um okkar daga, hrun komm- únismans og fiskveiðistjórnunina. Lýð- ræðið og réttlætið. Evrópusambandið er svo verkefni fram- tíðar. Það mun einnig snerta auðlindina og hagnýtingu hennar. Þá er nauðsynlegt að hafa það á hreinu, hver er eigandi hennar. Ef Alþingi hefði ekki borið gæfu til að taka af skarið á elleftu stundu og marka rétta fiskveiðistefnu til frambúðar, hefð- um við getað lent í þeim ógöngum sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde, lýsti nýlega í útvarpssamtali, þegar rætt var um vatnsréttindi á Suður- landi, en hann sagði eitthvað á þá leið, að málið væri harla flókið, því að menn hefðu á sínum tíma verið að selja það sem þeir áttu ekki! Með samþykkt Alþingis hefur verið komið í veg fyrir að slík mál eigi eftir að rísa og rugla allt samfélagið einhvern tíma í náinni framtíð. Auðlindanefnd Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra, undir formennsku Jóhann- esar Nordals, vann þarft starf og farsælt, en í henni var Styrmir Gunnarsson, nú- verandi ritstjóri Morgunblaðsins, og hélt merkinu á loft. Ég fagna því að þing og stjórn skyldu hafa siðferðilegt þrek til að stíga þetta spor og enginn vafi á því að það á eftir að verða til heilla; efla trú manna á réttlátt samfélag og siðlega afstöðu þeirra sem nú stjórna þjóðarskútunni, vonandi á sléttari sjó. Án Morgunblaðsins hefði þetta mál að öllum líkindum ekki verið til lykta leitt, eins og við lá. Ég óska blaðinu til ham- ingju með sigurinn. Hann verður lengi í minnum hafður. Hann er vísbending um það hlutverk sem til er ætlazt af blaði allra landsmanna, ef það á að rísa undir nafni. Matthías Johannessen útvegsins, s í landinu ytinganna kastri sátt istjórnun- ó gætt að um skyn- ætta um- né heldur gkvæmni í mfjöllunar- vort leggja g í hvaða ð vera. mikilvægt og afnota- ávar yrðu kyldi farin d lagði til, rir afnota- komu fisk- meirihlut- því að ukið svig- t kleift að iða niður Til að svo að frjáls- rútvegi og g festa í lagaumhverfi og framkvæmd laga á sviði greinarinnar verði haft í önd- vegi,“ segir síðan. Mikilvægt að gjaldið sé afkomutengt Fram kemur að til þess að koma til móts við óvissuna sem óhjá- kvæmilega sé fyrir hendi í rekstrargrundvelli sjávarút- vegsins sé mikilvægt að hafa veiði- gjaldið afkomutengt. Það sé í frum- varpinu gert með því að miða gjaldið við reiknaða afkomu síðasta árs og tengja gjaldið við það magn veiðiheimilda í þorskígildum talið sem úthlutað sé á næsta fiskveiði- ári. Með þessu móti náist fram hvort tveggja í senn, tenging við af- komu og magn veiðiheimilda hverju sinni. Rakið er í greinargerðinni hvert veiðigjaldið hefði verið undanfarin ár samkvæmt ofangreindum út- reikningsreglum og miðað við 9,5% veiðigjald. Kemur fram að gjaldið í ár hefði þá numið rúmum 2,1 millj- arði kr., 1,6 milljarði kr. 2001, 1,3 milljörðum árið 2000 og tæpum 1,6 milljörðum kr. árið 1999. Síðan segir í greinargerðinni: „Þannig er sýnt að verði frumvarp- ið að lögum hefur það auknar álög- ur á útveginn í för með sér. Það sýn- ist vera í samræmi við fyrirliggjandi stefnumótun, bæði auðlinda- og endurskoðunarnefnd- ar, sem m.a. styðst við þann skiln- ing að almenningi beri sýnileg hlut- deild í hagnaði af nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. Jafnframt kemur þar til sá skilningur að at- vinnugreinunum beri hverri fyrir sig að taka aukinn þátt í útgjöldum sem hljótast beint af starfsemi þeirra. Það atriði er mikilsvert til að draga úr útgjöldum hins opinbera.“ Jafnframt er vitnað til skýrslu auð- lindanefndar, en þar segir að „nefndin er þeirrar skoðunar að rétt sé að stefna að greiðslu fyrir af- notarétt af öllum auðlindum sem eru í eigu ríkis eða þjóðar af tvenn- um ástæðum: annars vegar til að greiða kostnað ríkisins af stjórn og eftirliti með viðkomandi auðlind, hins vegar til að tryggja þjóðinni í heild sýnilega hlutdeild í þeim um- framarði (auðlindarentu) sem nýt- ing hennar skapar“. Morgunblaðið/Ásdís breytingu á lögum um stjórn fiskveiða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.