Morgunblaðið - 04.05.2002, Page 65
FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 65
Victor Vogel -
Auglýsingamaður
Victor Vogel - Commercial Man
Gamanmynd
Þýskaland 2001. Skífan VHS/DVD. (109
mín.) Ekki við hæfi ungra barna. Leik-
stjórn Lars Kraume. Aðalhlutverk Alex-
ander Scheer, Götz George og Maria
Shrader.
SKRAMBI kom hún mér á óvart
þessi þýska gamanmynd, já þýska!
Ég held ég hafi bara ekki hlegið
að þýskri mynd
síðan álfurinn
hann Ottó var
næstum búinn að
ganga frá mér í
Regnboganum um
miðbik níunda
áratugarins. Það
má ekki misskilja
mig samt – þessi
nær engum Ottó-hæðum og kemst
ekki einu sinni hálfa leið en hún er
samt fyndin á köflum – aðallega
meinfyndin – og húmorinn er eitt-
hvað svo innilega þýskur án þess
að ég hafi nokkra hugmynd um
hvernig hægt er að útskýra hann
nánar með orðum. Hér er gert
stólpagrín af frumskógarlögmálum
auglýsingabransans og hvernig
þar takast á hagsmyndir Mamm-
ons og Apollo - peningahyggjan og
listrænn metnaður. Victor Vogel
(skemmtilega leikinn af Alexander
Scheer – Davíð Þór Jónssyni
þeirra Þjóðverja) er ungur, hress
og luralegur náungi sem langar að
ná langt í auglýsingageiranum.
Fyrir slysni landar hann starfi hjá
stórri auglýsingastofu og fær það
verkefni að búa til auglýsingaher-
ferð fyrir Opel-bifreiðaframleið-
andann. Í örvæntingu yfir hug-
myndaleysi álpast hann til að ræna
snilldargjörningi kærustunnar og
stendur allt í einu frammi fyrir
valinu eilífa á milli framans og ást-
arinnar.
Ég var næstum búinn að láta
margtuggna fléttuna skemma fyrir
mér skemmtunina þegar rann upp
fyrir mér að hún er ekkert annað
en sniðug vísun í Capra-minnið sí-
gilda úr It’s A Wonderfull Life.
Við það varð hún bara ennþá
skemmtilegri og ekki einu sinni
farsæll og fyrirsjáanlegur endirinn
gat spillt fyrir því. Nú er ég ansi
hræddur um að heill hellingur af
fólki sé algjörlega ósammála mér –
en hvað með það!
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Allt er falt
Lyklakippur
Litir: Gyllt, silfrað
aðeins 350 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is