Morgunblaðið - 04.05.2002, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 04.05.2002, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Skeifan 17 • Sími 5504000 •www.atv.is ALÞINGI samþykkti í gær frum- varp Árna M. Mathiesen sjávarút- vegsráðherra um breytingar á lög- um um stjórn fiskveiða. Í frumvarpinu er m.a. kveðið á um að lagt verði 9,5% aflagjald á handhafa aflaheimilda. Ákvæði laganna taka gildi í áföngum á ár- unum 2004 til 2009 og hækkar gjaldið úr 6% í 9,5% af aflaverð- mæti að frádregnum olíu-, rekstr- ar- og launakostnaði á því tímabili. Frumvarpið var samþykkt með 29 atkvæðum en 23 þingmenn greiddu atkvæði á móti. Þingmenn stjórnarflokkanna greiddu atkvæði með frumvarpinu. 22 þingmenn stjórnarandstöðunnar voru á móti og sömuleiðis einn stjórnarþing- maður, Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum. Samkvæmt frumvarpinu er veiðigjaldið afkomutengt. Fram kemur í greinargerð með því að miðað við útreikningsreglur frum- varpsins hefði veiðigjaldið í ár numið rúmlega 2,1 milljarði, 1,6 milljörðum árið 2001, 1,3 milljörð- um árið 2000 og tæpum 1,6 millj- örðum árið 1999. Samkvæmt frumvarpinu skal ráðherra ákvarða veiðigjald kom- andi fiskveiðiárs fyrir 15. júlí ár hvert og skal til grundvallar gjald- inu leggja aflaverðmæti næstliðins árs miðað við tímabilið 1. maí til 30. apríl. Gjaldið skal inna af hendi með þremur jöfnum afborgunum. Viðurkenning á grundvallaratriðum Morgunblaðið leitaði í gær til Matthíasar Johannessen, fyrrver- andi ritstjóra Morgunblaðsins, en hann var höfundur að stefnu blaðs- ins í fiskveiðistjórnunarmálum. Matthías fagnaði samþykkt frum- varpsins og sagði m.a.: „Það ræður engum úrslitum, hvert þetta auð- lindagjald er, heldur viðurkenning- in á þeim grundvallaratriðum, að ekki er hægt að sölsa undir sig sameiginlega eign þjóðarinnar, þótt með lögformlegum hætti sé, heldur greitt fyrir afnot sem eru öllum til hagsbóta, athafnamönn- um og almenningi í landinu. Slík bolabrögð hafa áreiðanlega ekki ýtt undir einkavæðingu, þar sem hún er réttlætanleg. Menn mættu vel muna það, sem eitt sinn var sagt, að þau lög, sem almenningur virðir einskis og telur ólög, geta aldrei fest rætur í nokkru sam- félagi, hvað sem löggjafarvaldinu líður.“ Sorgardagur fyrir íslenska útgerð Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir að gærdagurinn hafi verið sorgardagur fyrir sjávarút- veginn. Útvegsmenn hafi lýst sig samþykka hógværu gjaldi ef það mætti skapa frið en nú sjái menn það að aldrei verði um málið sátt. Frumvarpið sé mistök sem muni veikja atvinnustarfsemina á lands- byggðinni og herða á fólksflutn- ingum þaðan. Sigur Morgunblaðsins Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor segir að Morgunblaðið geti þakkað sér það að auðlinda- gjald hafi verið tekið upp. „Þetta er sigur blaðsins og ósigur okkar hinna sem teljum eðlilegast, að all- ar auðlindir séu í hendi einkaaðila, enda fari þannig sérhagsmunir og almannahagsmunir saman.“ Hann segir að veiðigjald sé gjald á landsbyggðina og því sé um að ræða tilfærslu frá lands- byggðinni til suðvesturhornsins. Þorvaldur Gylfason prófessor segir að veiðigjaldið sé of lágt og það komi of seint. Nú sé bara eftir að þjarka aðeins um verðið. Veiðigjald á aflaheim- ildir samþykkt á Alþingi Morgunblaðið/Golli Halldór Blöndal, forseti Alþingis, lýsir yfir að frumvarp sjávarútvegs- ráðherra, þar sem m.a. er gert ráð fyrir auðlindagjaldi, sé orðið að lögum.  Veiðigjald/10/11  Forystugrein og miðopna FÆREYSKUR skipstjóri af togaranum Enniberg var sóttur á haf út vegna veikinda og fluttur með þyrlu varnarliðsins á Land- spítalann í gærkvöld. Togarinn var á úthafskarfaveiðum um 200 sjó- mílur suðvestur af Reykjanesi þegar hjálparbeiðni barst Land- helgisgæslunni og taldi þyrlulækn- ir Landhelgisgæslunnar öruggast að sækja manninn með þyrlu. Þar sem báðar þyrlur Landhelgisgæsl- unnar voru ekki tiltækar vegna skoðunar og viðgerðar var óskað eftir aðstoð varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli. Tvær þyrlur og eldsneytisflug- vél héldu frá Keflavík laust eftir kl. 16.30 og komu með sjúklinginn á Landspítalann um kl. 20. < G# < G# G( G( <G( =G( < G# 3$"4*#0 3$#%$$#  5*6"4*                         !   Sóttur á haf út vegna veikinda ALVARLEGT vinnuslys varð við Vesturvör í Kópavogi í gærkvöld þegar maður kramdist undir vörubíl sem hann var að vinna við. Hann missti meðvitund en vinnufélagi hans hljóp til og tókst að lyfta bílnum ofan af hinum slasaða með gaffallyft- ara. Hinn slasaði var fluttur á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi, tal- inn mjaðmagrindarbrotinn. Fulltrúi frá Vinnueftirliti ríkisins og rannsóknarlögreglumaður frá lögreglunni í Kópavogi voru kvaddir á vettvang slyssins til að kanna að- stæður. Kramdist undir vörubíl LÍFEYRISSJÓÐUR Norðurlands (LSN) hefur ásamt fjárfestingar- félaginu Nordica S.A. í Lúxem- borg höfðað mál gegn iDigi Communications í Flórída í Bandaríkjunum. Ástæður mála- ferlanna eru meint óvönduð vinnu- brögð stjórnenda iDigi og meint færsla á verðmætum úr iDigi í fé- lag í eigu framkvæmdastjóra iDigi. Þróar tækni til að auka hraða í fjarskiptum Fyrirtækið iDigi vinnur að því að þróa tækni til að auka hraða í fjarskiptum, sérstaklega að því er viðkemur Netinu. LSN fjárfesti í fyrirtækinu í útboði sem haldið var fyrir tveimur árum og var meðal annars kynnt fjárfestum hér á landi. LSN seldi síðan hlut sinn inn í Nordica, þar sem sjóðurinn á 15% hlut en afgangurinn er í eigu breskra aðila. Lífeyrissjóður Norðurlands Höfðar mál í Flórída  Óvíst hve miklir/ 27 KÁRI Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, segir að nú þegar sé farið að vinna að því hjá fyrirtækinu að setja sam- an efnasambönd til að þróa lyf við sjúkdómum, s.s. geðklofa, heilablóðfalli og æðakölkun. Hann segir að ef og þegar rík- isábyrgðin, sem Alþingi sam- þykkti í gær að heimila fjár- málaráðherra að veita fyrirtækinu, verður afgreidd, verði hafist handa við að ráða starfsfólk og byggja upp aðstöðu til að hefja lyfjaþróun af fullum krafti. Kári segir það gleðilegt fyrir Íslenska erfðagreiningu og starfsmenn fyrirtækisins að rík- isstjórnin skuli hafa komist að þeirri niðurstöðu að líta á það sem skynsamlegan og eðlilegan vettvang fyrir uppbyggingu í þeirri atvinnugrein sem lyfjaþróun er. Umræðan um þessi mál hafi að hans mati ver- ið mjög ósanngjörn og gagn- rýnin á ríkisstjórnina vegna þessa mikið á misskilningi byggð. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi í gær með 27 atkvæðum. 13 þingmenn greiddu atkvæði gegn frumvarpinu, þar á meðal einn stjórnarþingmaður, Pétur H. Blöndal. 12 þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, þar af þrír stjórnarþingmenn. Undirbúning- ur lyfjaþró- unar hafinn  Gagnrýni/12 ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.