Morgunblaðið - 16.05.2002, Qupperneq 26
LANDIÐ
26 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fallegt ca 240 fm einbýlishús
ásamt bílskúr á þessum góða stað.
Séríbúð er í kjallara, möguleiki á að
hafa þrjár íbúðir í húsinu.
Verð aðeins 19,9 millj.
Áhv. ca 4,9 millj
Langafit - Garðarbæ
Skúlagata 17 Sími 595 9000
Fax 595 9001 - holl@holl.is
500 gestir
á Húsavík
vegna
handbolta-
móts barna
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sigurlið í flokki A-liða drengja, FH, ásamt þjálfurum sínum.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sigurlið í flokki A-liði stúlkna, ÍR, ásamt þjálfurum sínum.
NÚ fyrir skömmu var haldið fjöl-
mennt handboltamót á Húsavík,
þar kepptu 44 lið frá 10 félögum í
5. flokki drengja og stúlkna. Auk
Völsungs voru þetta lið frá Ak-
ureyri og höfuðborgarsvæðinu.
Ætla má að um 500 gestir hafi ver-
ið í bænum í tengslum við mótið,
þar af voru keppendur um 420.
Þetta er í 12. skipti sem Húsavík-
urmótið er haldið og hefur það fest
sig í sessi sem stærsti árlegi
íþróttaviðburðurinn á Húsavík. Að
sögn Lindu Baldursdóttur for-
manns Völsungs fór mótið mjög vel
fram að þessu sinni og voru krakk-
arnir sjálfum sér, félögum sínum
og handboltaíþróttinni til mikils
sóma.
Keppt var í flokkum A-, B- og C-
liða á mótinu og urðu úrslit þessi:
Drengir A-lið: 1. sæti FH, 2. sæti
KA, 3. sæti Þór. Drengir B-lið: 1.
sæti Grótta, 2. sæti ÍR, 3. sæti KA.
Drengir C-lið: 1. sæti Grótta, 2.
sæti KA 1, 3. sæti Þór. Stúlkur A-
lið: 1. sæti ÍR, 2. sæti Grótta 1, 3.
sæti Valur. Stúlkur B-lið: 1. sæti
Grótta 2, 2. sæti KA, 3. sæti Hauk-
ar. Stúlkur C-lið: 1. sæti ÍR, 2. sæti
Haukar, 3. sæti Grótta 2.
Þá voru einnig veitt verðlaun
fyrir prúðasta liðið og þau hlaut
Valur. Skemmtilegasta liðið var
líka valið á kvöldvökunni og verð-
launin fékk Völsungur B drengir.
Atriði Birgis Sævarssonar í hæfi-
leikakeppni var valið það skemmti-
legasta og skóp það þennan eina
sigur heimamanna á mótinu að
þessu sinni.
Það voru þau Reinhard Reyn-
isson bæjarstjóri á Húsavík og Inga
Fríða Tryggvadóttir besti leik-
maður Essódeildar kvenna í vetur
sem afhentu verðlaunin. Inga
Fríða þjálfar Haukastúlkurnar sem
kepptu á mótinu og lét hún sig ekki
muna um að skjótast suður í loka-
hófið og aftur norður að morgni til
að stjórna liðum sínum.
RAUÐA KROSSDEILD Vestur –
Barðastrandarsýslu stóð fyrir barn-
fóstrunámskeiði og lauk því um
helgina en námskeiðið var alls 16
klukkustundir. 25 stúlkur frá suður-
fjörðum Vestfjarða tóku þátt í nám-
skeiðinu, sem haldið var á Patreks-
firði. Þuríður Ingimundadóttir
hjúkrunarfræðingur og Helga
Bjarnadóttir leikskólastjóri voru
kennarar á námskeiðinu. Rauða
krossdeildin á staðnum greiddi nið-
ur námskeiðið um 4.300 krónur á
barn og þurftu því barnfósturnar á
námskeiðinu einungis að borga
1.000 krónur. Á námskeiðinu var
farið yfir ábyrgð þeirra við umönnun
barna, framkomu við þau, þroska,
leiki og föndur, umönnun, mataræði
skyndihjálp o.fl. Verklegar æfingar
voru t.d. við skyndihjálp og þurftu
stúlkurnar að blása í dúkku og æfa
hjartahnoð. Gekk þeim öllum vel og
útskrifuðust þær með glæsibrag.
Í lok námskeiðisins afhendi Sig-
urður Pétur Guðmundsson, formað-
ur RKI Vestur-Barð, stúlkunum
tösku með helstu nauðsynjum við
skyndihjálp. Morgunblaðið/Sigurbjörn Sævar
25 stúlkur
sóttu barn-
fóstru-
námskeið
Patreksfjörður
GRÁSLEPPUVERTÍÐIN á
Drangsnesi fór vel af stað í ár.
Hrognin eru verkuð hjá Fiskvinnsl-
unni Drangi. Er búið að verka í yfir
300 tunnur það sem af er vertíðinni
þrátt fyrir langan leiðindagarð og
netatjón sem gerði í apríl. Er það
mjög gott miðað við undanfarin ár
þar sem saman hefur farið léleg veiði
og lágt verð.
Grásleppuveiðar hafa alltaf verið
snar þáttur í atvinnulífi Drangsnes-
inga en þeir voru frumkvöðlar í verk-
un grásleppuhrogna um miðja síð-
ustu öld. Þegar best lét verkuðu
Drangsnesingar yfir 1.000 tunnur af
hrognum á vertíð. Þótt grunnaðferð í
verkun sé sú sama þá eru vinnuað-
ferðirnar gjörbreyttar bæði á sjó og
landi. Í dag koma bátarnir með
hrognin í tunnum í land. Þeim er dælt
upp í hrognaskilju sem skilar þeim á
sigti þar sem mesti vökvinn rennur af
þeim. Síðan eru þau hrærð saman við
saltið í stórri hrærivél. Söltuð hrogn-
in fara svo tilbúin í tunnu og eru þar
með orðin verðmæt útflutningsvara.
Það eru þær Valgerður Magnús-
dóttir og Guðrún Guðjónsdóttir sem
verka hrognin fyrir Fiskvinnsluna
Drang en rúmlega 10 bátar leggja
þar upp.
Morgunblaðið/Jenny Jensdóttir
Valgerður Magnúsdóttir kannar ástand hrognanna í körunum.
Grásleppuvertíð-
in í góðum gír
Drangsnes
BJART veður hefur verið
sunnanlands undanfarna
daga, frekar kalt og vinda-
samt en skemmtilegt glugga-
veður.
Sólarlagið heillar alltaf og
þetta skemmtilega upplýsta
ský, sem var það eina yfir
Víkurþorpi, var mikið augna-
yndi. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Glugga-
veður
Fagridalur