Morgunblaðið - 16.05.2002, Page 31

Morgunblaðið - 16.05.2002, Page 31
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 31 BANDARÍSKA dómsmálaráðu- neytið hefur lagt fyrir hæstarétt landsins nýja túlkun á einu ákvæði stjórnarskrárinnar og vill með því rýmka verulega rétt einstaklinga til að bera vopn. Allar bandarískar ríkisstjórnir, jafnt repúblikana sem demókrata, hafa hingað til túlkað ákvæðið þröngt og aðeins talið það gefa þeim einstaklingum skýlausan rétt til vopnaburðar, sem tengjast skipulögðum, vopnuðum sveitum í þágu almennings. Nú vill ríkisstjórn George W. Bush, að rétturinn til byssueignar verði einstaklingsins að undanskildu „óæskilegu fólki“. Hin öflugu samtök bandarískra byssueigenda hafa lengi lagt hart að þinginu að rýmka lög um byssu- eign en Bill Clinton, fyrrverandi forseti, ljáði aldrei máls á því. Skoð- anakannanir eftir síðustu forseta- kosningar sýndu hins vegar, að meira en 60% byssueigenda kusu Bush. Vilja rýmka byssulögin Washington. AP. ÁSTRALSKIR og sænskir stein- gervingafræðingar hafa fundið ummerki lífveru sem talið er að hafi verið uppi fyrir 1,2–2 þúsund milljónum ára. Er hún því helm- ingi eldri en elstu steingervingar dýra sem áður hafa fundist. Örlitlar, steingerðar leifar af slímugri rák eftir veruna þar sem hún skreið um fundust í sandsteini í fjalllendi rúmlega 300 kílómetra frá Perth á vest- urströnd Ástralíu en þar var eitt sinn sjávarbotn. Lindýr eins og sniglar og einnig kóraldýr og ýmsir ormar geta skilið eftir sig rákir af þessu tagi. Birger Rasm- ussen, sem starfar hjá jarðfræði- deild Háskóla Vestur-Ástralíu, sagði að ummerkin myndu ekki sýna með vissu hvenær fyrstu dýrin hefðu komið fram á sjón- arsviðið. „Leifar geta sagt okkur heilmikið um hegðun lífveru en lítið um útlit hennar,“ sagði hann. Elsta dýrið? Perth. AFP. Skipst á sko›unum fiórdís Pétursdóttir Sími: 515-1700, netfang: disa@xd.is Björg fiór›ardóttir Sími: 515-1700, netfang: bjorgth@xd.is Ef flú vilt frambjó›anda/frambjó›endur Sjálfstæ›isflokksins á fund e›a í heimsókn haf›u flá samband vi› skrifstofu Sjálfstæ›isflokksins í síma 515-1700. Nánari uppl‡singar gefa:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.