Morgunblaðið - 16.05.2002, Side 44
UMRÆÐAN
44 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐ VORUM að
horfa á hina sígildu
kvikmynd Chaplins
,,The kid“ fyrir nokkr-
um dögum. Myndin
hefst á því að ung ein-
stæð móðir gengur nið-
urlút út af fæðingar-
heimilinu og
sjúkraliðarnir sýna
henni megnustu fyrir-
litningu. Á skjánum
birtist setningin: ,,Kon-
an sem drýgði þá synd
að verða móðir.“ Allt í
einu varð okkur ljóst að
enn í dag, í velferðar-
þjóðfélagi Íslands, er
þetta viðhorf ríkjandi í
sumum bæjarfélögum.
Í Hafnarfirði er nánast ómögulegt
fyrir unga einstæða foreldra að afla
sér menntunar. Einstæðir foreldrar
sem leigja sér íbúð geta fengið um
70.000 kr. á mánuði í skólastyrk, auk
15.000 kr. sem þeir fá í meðlag. Þar af
fara rúmlega 25.000 kr. í daggæslu-
gjöld, þar sem bæjarfélagið greiðir
þau einungis niður um 18.000 kr.
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur
barist fyrir breytingu á þessu og í
stefnuskrá þeirra segir meðal ann-
ars: ,,Niðurgreiðslur á daggæslu-
gjöldum verða hækkaðar til sam-
ræmis því sem gildir í
nágrannasveitarfélögum.“
Fyrir einstæða foreldra, sem eru í
námi og leigja íbúð, eru einungis eftir
60.000 kr. af framfærslueyri þeirra
til að borga fæði og húsnæði, þegar
búið er að borga daggæslugjöldin.
Vegna þessa og hversu lítið framboð
er af ódýru og hagkvæmu leiguhús-
næði búa ungir einstæðir foreldrar
gjarnan í foreldrahúsum, en þá virð-
ist það fara eftir fjárhagslegri og fé-
lagslegri stöðu foreldra þeirra hvort
þeir fái skólastyrk eða ekki. Þetta er
óþolandi staða. Það er gert ráð fyrir
því að ömmur og afar sjái fyrir
barnabörnum sínum. Þetta gengur
þvert á 1. grein reglna um fjárhags-
aðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ, en þar
segir: ,,Hverjum manni er skylt að
framfæra sjálfan sig, maka sinn og
börn yngri en 18 ára.“ Það er hverj-
um manni mikilvægt að vera fjár-
hagslega sjálfstæður en ekki upp á
ættingja sína kominn. Það hlýtur að
hafa áhrif á sjálfsmynd hvers manns
að vera fjárhagslega ófær um að sjá
fyrir barni sínu og neyðast til þess að
vera á framfæri foreldra sinna. Það
er því mjög erfitt fyrir unga einstæða
foreldra sem ekki fá skólastyrk að
halda áfram í námi. Það borgar engin
daggæslugjöld, bleiur, mat, föt og
skólabækur með 15.000 kr. barna-
meðlagi á mánuði. Ótal margir þeirra
hafa því orðið að hætta námi og fara
út á vinnumarkaðinn. Bæjarfélagið
er að senda ungum foreldrum þau
skilaboð að það sé óæskilegt að þeir
séu í námi og þar með markvisst að
búa til láglaunastétt og ýta undir lágt
sjálfsmat ungs fólks sem á sífellt erf-
iðara með að brjóta sig út úr víta-
hringnum sem hefur skapast.
Eitt af stefnumálum Samfylking-
arinnar í Hafnarfirði er að auka
stuðning við unga foreldra sem eru
að afla sér menntunar. Með því að
styðja við bakið á námsmönnum er-
um við að fjárfesta í framtíðinni. Þeg-
ar námi er lokið mun þetta fólk borga
margfallt til baka til þjóðfélagsins.
Menntun er máttur, það er ekki bara
fínt slagorð sem gott er að flagga á
hátíðastundum, heldur sannleikur.
Styðjum við bakið á ungu fólki og
hvetjum það áfram til menntunar og
starfsþjálfunar. Það er ekki til stór-
kostlegra hlutverk en foreldrahlut-
verkið. Bæjaryfirvöld ættu að meta
það að verðleikum og gera allt sem í
þeirra valdi stendur til þess að sýna
það í verki. Ef við viljum að bæjar-
félagið dafni sem bær grósku og veg-
semdar verðum við að hlúa að ein-
staklingnum og skapa mannleg
verðmæti. Kínverski gullaldarhöf-
undurinn Guan Zi útskýrði mikilvægi
þessa er hann sagði: ,,Mikilvægasta
ævistarf mannsins er að ala upp hæft
fólk.“
,,Konan sem
drýgði þá synd
að verða móðir“
Eyrún Ósk
Jónsdóttir
Eyrún Ósk skipar 13. sæti á lista
Samfylkingarinnar og
Birna Dögg er nemi.
Hafnarfjörður
Með því að styðja við
bakið á námsmönnum,
segja Eyrún Ósk
Jónsdóttir og Birna
Dögg Sigurðardóttir,
erum við að fjárfesta
í framtíðinni.
Birna Dögg
Sigurðardóttir
Í Morgunblaðinu
14. maí ritar Guð-
mundur Hallvarðsson
alþingismaður og
stjórnarformaður
DAS grein sem ber
heitið „R-listinn-
Vinstri grænir í sam-
starfi við fjárfesta
Frumafls“. Guðmund-
ur rekur það réttilega
hvernig þingmenn VG
gagnrýndu samning
sem ríkisvaldið gerði
á sínum tíma við Að-
alverktaka hf. og aðra
aðstandendur Sól-
túnsheimilisins. Í
samningnum fólst al-
varleg mismunun gagnvart öðrum
rekstraraðilum öldrunarheimila.
Guðmundur Hallvarðsson rifjar
upp röksemdir okkar: „Í rökum
VG kom m.a. fram að ný stefna
væri mörkuð hvar fjárfestum væri
nú gefið tækifæri á að koma inn í
rekstur öldrunarstofnana þar sem
arðsemis- og gróðasjónarmið fjár-
festa væru höfð að leiðarljósi. Hér
væri einnig verið að gera lítið úr
þeim öldrunarheimilum sem fyrir
væru og hefðu haft þau skýru
skilaboð frá ríkisvaldinu að þau
skyldu rekin án tekjuafgangs.
Ekki veit ég til þess að félagi Ög-
mundur Jónasson hafi skipt um
skoðun.“
Allt er þetta satt og rétt hjá
Guðmundi Hallvarðssyni og skal
ég játa að eins fór fyrir mér og
honum að fréttir fyrir fáeinum
dögum um að efnt skyldi til sam-
starfs við verktakafyrirtæki í at-
vinnurekstri um rekstur öldrunar-
heimila hljómuðu undarlega í
mínum eyrum. Síðan hefur málið
skýrst og vakti sérstaka ánægju að
heyra að til stendur að gera stór-
átak í málefnum aldraðra í Reykja-
víkurborg.
Í sama blaði og
Guðmundur birtir
grein sína kemur
fram að heilbrigðis-
ráðherra og borgar-
stjóri undirrituðu 13.
maí sl. sameiginlega
viljayfirlýsingu um
endurbætur og upp-
byggingu nýrra
hjúkrunarrýma í
Reykjavík á árunum
2003–2007. Sam-
kvæmt yfirlýsingunni
er gert ráð fyrir að
326 ný hjúkrunarrými
verði tekin í notkun í
Reykjavík á tíma-
bilinu, en 42 eldri rýmum lokað
eða breytt í sérbýli. Áætlaður
stofnkostnaður vegna þessara
framkvæmda er á fimmta milljarð
króna og þar af greiðir Fram-
kvæmdasjóður aldraðra 40%. Gert
er ráð fyrir að hlutur ríkisins verði
70% í nýbyggingum.
Áætlað er að reisa 100 rýma
hjúkrunarheimili í Sogamýri og
taka það í notkun árið 2005. Gert
er ráð fyrir stækkun Eirar og
fjölga hjúkrunarrýmum þar um 40
á tímabilinu 2003–2005. Einnig er
gert ráð fyrir stækkun Hrafnistu
og að raunfjölgun þar verði 30
rými. Hjúkrunarheimilið á Drop-
laugarstöðum verður stækkað og
breytt þannig að raunfjölgun rýma
verði þar 14. Þá er áformað að
hefja undirbúning að byggingu nýs
100 rýma hjúkrunarheimilis í
Reykjavík á tímabilinu 2003–2005
og taka það í notkun 2007, stað-
setning á að liggja fyrir á næsta
ári. Þá er tiltekið að heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið muni með
markvissum hætti efla Miðstöð
heimahjúkrunar í Reykjavík á
tímabilinu 2003–2007 með fjölgun
stöðugilda hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða. Þá muni Reykjavíkur-
borg skoða með hvaða hætti megi
koma upp aðstöðu til heimahjúkr-
unar í tengslum við þjónustuíbúðir
aldraðra.
Hvergi er í yfirlýsingunni
minnst á verktakafyrirtækið
Frumafl, hvað þá kröfur um arð-
semi og gróða í öldrunarþjónust-
unni, enda slíkt ekki á stefnuskrá
R-listans.
Guðmundur Hallvarðsson gerir
því skóna að fulltrúar VG á Alþingi
annars vegar og í R-listanum hins
vegar tali tungum tveim og sitt
með hvorri. Svo er ekki. Við viljum
halda samfélagslegum gildum á
lofti. Ástæða er hins vegar til þess
að hafa áhyggjur af samfélags-
þjónustunni ef Sjálfstæðisflokkur-
inn kemst til valda í borginni því
sá flokkur hefur haft þá yfirlýstu
stefnu að hafa markaðslögmál að
leiðarljósi, jafnt innan velferðar-
þjónustunnar sem annars staðar.
R-listinn og hjúkrunar-
rými fyrir aldraða
Ögmundur
Jónasson
Öldrunarheimili
Ástæða er til að hafa
áhyggjur af samfélags-
þjónustunni ef Sjálf-
stæðisflokkurinn kemst
til valda, segir Ögmund-
ur Jónasson, því hann
hefur þá yfirlýstu stefnu
að hafa markaðslögmál
að leiðarljósi.
Höfundur er alþingismaður og
þingflokksformaður VG.