Morgunblaðið - 16.05.2002, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 83
DAGBÓK
Sumardragtir
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
Kjólar - Blússur
Laugavegi 63, sími 551 4422
GERRY WEBER
Útskriftardragtir
stærðir: 36-44
stærðir: 42-56
...fegurðin
kemur
að innan...
Árnað heilla
75 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 16.
maí, er 75 ára Bára Björns-
dóttir, húsmóðir, Hraun-
hvammi 4, Hafnarfirði. Eig-
inmaður hennar er Magnús
Þórðarson. Þau hjónin
verða að heiman á þessum
tímamótum.
Í HEFÐBUNDNU
Standardkerfi sýnir stökk
í þrjú grönd eftir alkröfu-
opnun 25-26 háspila-
punkta og jafna skipt-
ingu. Þótt sögnin sé
lýsandi er hún rúmfrek og
getur skapað vandamál
þegar svarhönd er veik
með 4-5 spil í hálit. Þá er
vonlaust að finna út úr því
hvort spila eigi þrjú
grönd eða fjóra í hálit.
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ DG3
♥ 74
♦ D32
♣DG943
Suður
♠ Á92
♥ ÁDG5
♦ ÁK96
♣ÁK
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 2 lauf *
Pass 2 tíglar Pass 3 grönd
Pass 6 grönd Allir pass
Hér gengur sögnin hins
vegar ágætlega upp. Suð-
ur sýnir minnst 25 punkta
og norður sér að efniviður
er í slemmu og stekkur
beint í sex grönd. Vestur
spilar út tígulgosa, sem
sagnhafi tekur heima og
leggur niður ÁK í laufi.
Báðir fylgja lit. Hvernig á
nú best að halda áfram?
Úrvinnslan snýst um
það að samnýta alla
möguleika – svíningarnar
í spaða og hjarta, og 3-3
legu í tígli (eða G10 tví-
spil). Það er best gert
þannig: Blindum er spilað
inn á tíguldrottningu og
spaðadrottningu svínað.
Spilinu er lokið ef hún
heldur slag, því þá eru 12
slagir öruggir með því að
gefa einn á hjartakóng.
En ef vestur tekur á
spaðakónginn og spilar
spaða til baka, tekur
sagnhafi með ás heima og
kannar leguna í tíglinum.
Ef liturinn skilar ekki
fjórum slögum verður að
svína fyrir hjartakóng.
Norður
♠ DG3
♥ 74
♦ D32
♣DG943
Vestur Austur
♠ K654 ♠ 1087
♥ 1092 ♥ K863
♦ G1087 ♦ 54
♣52 ♣10876
Suður
♠ Á92
♥ ÁDG5
♦ ÁK96
♣ÁK
Það væru mistök að
byrja á því að spila
hjartadrottningu að heim-
an. Austur tekur slaginn
og spilar spaða, og nú
þarf sagnhafi að geta sér
til um framhaldið. Hann
getur reyndar unnið
slemmuna með því að
taka á ásinn, spila ÁG í
hjarta, tígli inn á drottn-
ingu og taka laufin. Vest-
ur þvingast þá í spaða og
tígli. En þetta er óþarfa
ágiskun.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6.
e5 De7 7. De2 Rd5 8. c4 Rb6
9. Rc3 Ba6 10. b3 0-0-0 11.
Bb2 He8 12. f4 f6 13.
Re4 d5 14. Dg4+ Kb8
15. cxd5 Db4+ 16.
Rd2 Bxf1 17. Hxf1
fxe5 18. 0-0-0 cxd5 19.
Dh5 g6 20. De2 d4 21.
Rf3 Bg7 22. fxe5 c5
23. De4 He6 24. Kb1
a5 25. Hc1 Hhe8
Staðan kom upp á
Reykjavíkurskák-
mótinu sem lauk um
miðjan mars. Stefán
Kristjánsson (2389)
hafði hvítt gegn
Kristjáni Eðvarðs-
syni (2239). 26.
Bxd4! cxd4 27. Rxd4 Bxe5
27... Hxe5 gekk ekki upp
vegna 28. Rc6+ Ka8 29.
Dxb4 axb4 30. Hf7 og hvítur
stendur til vinnings. Fram-
haldið varð: 28. Hf7! H8e7
29. Hxe7 Dxe7 30. Rxe6 og
svartur gafst upp enda fátt
til varnar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
HRÍSLAN OG LÆKURINN
Gott átt þú, hrísla’, á grænum bala
glöðum að hlýða lækjarnið.
Þið megið saman aldur ala,
unnast og sjást og talast við.
Það slítur aldrei ykkar fundi,
indæl þig svæfa ljóðin hans,
vekja þig æ af blíðum blundi
brennandi kossar unnustans.
Svo þegar hnígur sól til fjalla,
sveigir þú niður limarnar
og lætur á kvöldin laufblað falla
í lækinn honum til ununar.
Hvíslar þá lækjar bláa buna
og brosandi kyssir laufið þitt:
„Þig skal ég ætíð, ætíð muna,
ástríka blíða hjartað mitt!“
Páll Ólafsson
Með morgunkaffinu
Jarðskjálftarnir í
San Francisco,
Titanikslysið,
konan mín.
90 ÁRA afmæli. Nk.laugardag, 18. maí,
er níræð Valgerður Hann-
esdóttir, fyrrum húsfreyja,
Torfastöðum 2, Grafningi.
Hún tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar, Vall-
arbraut 21, Seltjarnarnesi, á
afmælisdaginn eftir kl. 15.
50 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 18. maí nk.
verður fimmtugur Stefán
Sigurðsson, veitingamaður
á Vitanum í Sandgerði.
Stefán og eiginkona hans,
Brynhildur Kristjánsdóttir,
taka á móti gestum föstu-
dagskvöldið 17. maí milli kl.
20 og 23 á Vitanum að sjálf-
sögðu.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Mörgum finnst þú litríkur
og sjálfstæður persónuleiki.
Þú hefur einnig hæfileika til
þess að virkja aðra til dáða.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gerir þér grein fyrir því
í dag hversu lánsamur ein-
staklingur þú ert í raun,
ekki síst í ljósi þess hver
staða margra annarra er.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hafðu augun opin fyrir
tækifærum því þessi dagur
getur skipt sköpum í ein-
stökum málum í starfi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kemur til með að meta
það sem þú átt í raun og
veru. Í framhaldi munt þú
eiga auðveldara með að ná
fram markmiðum þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Áhugi þinn á andlegum og
trúarlegum málefnum fer
vaxandi. Þú gerir þér grein
fyrir því að ekki er hægt að
kaupa það sem mestu máli
skiptir í lífinu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hafðu samband við ein-
hvern nákominn þér og
eyddu deginum með hon-
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fólk sem hefur skipt þig
máli mun loks taka eftir
þér. Þessi breyting mun
skipta miklu máli fyrir þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Svo gæti farið að þú fengir
heimboð frá einhverjum
sem metur þig mikils. Þú
skalt fyrir alla muni þiggja
boðið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú átt skemmtilegar sam-
ræður við einhvern í dag
sem munu hafa góð áhrif á
þig það sem eftir er dags-
ins.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Spennandi möguleikar bíða
þín í vinnunni í dag. Þú
færð lof eða launahækkun
fyrir frammistöðu þína í
starfi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Allir uppskera eins og þeir
hafa sáð til. Sýndu því um-
hverfi þínu umhyggju og
hún mun skila sér margföld
til þín aftur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Notaðu daginn til samveru-
stunda með börnum og
reyndu að gera hluti sem
munu láta þig líða eins og
þú hafir gengið aftur í barn-
dóm.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Allir þurfa að finna hugsun-
um sínum farveg hvort sem
menn skrifa fyrir sjálfan sig
eða leyfa öðrum að njóta af-
rakstursins með sér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.