Réttur - 01.02.1926, Side 77
Rjettur]
79
VÍÐSJÁ
annara. Við stofnunina vinna ýmsir starfsmenn, sem m.
a. hafa það starf á hendi, að undirbúa geysimikla og
vandaða útgáfu af ritum Marx og Engels í 42 bindum.
Verður þetta verk framkvæmt með aðstoð vísindamanna
jafnaðarstefnunnar um alla Evrópu og er 1. bindi þegar
út komið. Mun það verða heljarmikið rit og þrungið
þekkingu. — Bókasafni stofnunarinnar er skift niður í
15 deildir og eru í þeim alls 175,349 bindi; deildirnar eru
fyrir: 1) Marx og Engels, 2) lestrarsalinn, 3) heimspeki,
4) þjóðhagsfræði, 5) fjelagsfræði, 6) lögspeki, 7) jafnaðar-
stefnu, 8) utanríkisstjórnmál, 9) Þýskaland, 10) Frakkland,
11) England, 12) hin löndin, 13) Plechanov-stofa, 14) al-
menna sögu, 15) tímarit. Er þarna að finna afarmörg
merkileg handrit, fullkomin blaðasöfn, t. d. blaðanna úr
frönsku byltingunni og til eru þar og flesl jafnaðarmanna-
og verkalýðsblöð heimsins, fullkomin rit, sem orðin eru
ófáanleg, svo sem rit hugvitssosialistanna; meira að segja
flugblöð og smárit frá ensku byltingunni á 17. öld eru
þar til hundruðum saman. Er þarna ómetanlegur and-
legur auður samankominn fyrir hvern þann, er stunda
vill jafnaðarstefnuna og sögu hennar til hlítar.
Stofnunin gefur út tímarit, sem heitir Marx-Engels-
Archiv, ritstjóri þess er D. Rjazanov. Er það prentað á
þýsku og hefir hinn mesta fróðleik að geyma. Ritið er
heljarstórt, um 550 bls. í stóru broti. Af innihaldinu skal
minst á mikla grein eftir Dehorin um »Dialektik bei Kant«,
aðra eftir Volgin um sögulega aðstöðu franska spek-
ingsins St.-Simons, og þriðju eftir ritstjórann um upp-
runa 1. alþjóðasambands verkamanna. Auk þess er
prentað þar rit um Feuerbach eftir Marx og Engels, brjefa-
viðskifti Veru Sassulitz og Marx og fjöldi annara greina.
Tímarit þetta er hið nauðsynlegasta öllum þeim, sem
stunda vilja þjóðhagsfræði og fjelagsfræði til hlítar.