Réttur - 01.10.1949, Qupperneq 5
RÉTTUR
197
eftirsóknarverða fyrir oss, bætist svo önnur við, sem verður enn þá
þýðingarmeiri. Ög hún er þessi:
Austur-Evrópulöndin hafa komið á hjá sér þjóðfélagi sósíalism-
ans. Kreppur verða því engar í þeim löndum. Þar af leiðir, að
markaðir fara sívaxandi í þessum löndum og að framleiðsla þess-
ara landa mun líka vaxa í sífellu. Þjóðfélag sósíalismans táknar
sífellda efnahagslega framför, þar sem auðvaldsþjóðfélagið, eink-
um í Vestur-Evrópu, er komið á hnignunarskeið.
En þetta er bara áróður, — munu margir segja. Það er rétt að
rifja upp nokkrar staðreyndir um iðnaðarþróun sósíalistisku ríkj-
anna annars vegar og auðvaldsríkjanna hins vegar, svo menn geri
sér ljóst, hvernig kreppur auðvaldsþjóðfélagsins eru að kyrkja
framfarirnar í þeim löndum, sem voru brautryðjendur iðnaðar-
ins í heiminum.
Iðnaðarframleiðsla Englands og Frakklands er nú svipuð og hún
var 1913. í þrjá og hálfan áratug hefur þessum gömlu iðnaðarlönd-
um ekkert farið fram, þegar öllu er á botninn hvolft. Framleiðsla
þeirra hefur aukizt ákveðið árabil, stöðvast svo við kreppurnar og
stórminnkað. Árangui'inn er, að þau hjakka nú í sama farinu og
1913 iðnaðarlega, en hlutdeild þeirra í iðnaðarframleiðslu heimsins
hefur minnkað.
Bandaríkin hafa frá 1913 tvöfaldað iðnaðarframleiðslu sína. Þau
hafa haft hinar beztu aðstæður til þess, sem hægt er að hugsa sér.
Þau hafa stórgrætt á tveim styrjöldum og ekki orðið fyrir neinum
eyðileggingum í þeim, en þvert á móti getað þanið út framleiðslu-
kerfi sitt, meðan verksmiðjur annarra landa voru lagðar í rústir.
Alþýðan tók við völdum í Bússlandi 1917. Rússland kcisarans var
langt á eftir öllum öðrum auðvaldsstórveldum i iðnaðarþróun. 1913
var það fjórum sinnum lakar búið iðiltækjum en England, tífalt
lakar en Bandaríkin. Og hið auma iðnaðarástand sem var í Rúss-
landi 1913, stórversnaði við 4 ára stríð og 4 ára borgarastyrjöld.
1921 var iðnaðarframlciðslan aðeins einn sjöundi af því sem hún
var 1913. Þá fyrst fekk russneska alþýðan frið til þess að byggja
upp á grundvelli sósíalismans. 1927 var búið að byggja það mikið
upp, að iðnaðarframleiðslan var komin á sama stig og 1913. Þá var