Réttur - 01.10.1949, Qupperneq 18
210
RÉTTUR
Sósíalistaflokkurinn tók þessar blekkingar fyrir og afhjúpaði
þær. í „eldhús“-umræðunum í marz 1948, flutti ég ræðu fyrir
flokksins hönd, þar sem ítarlega var rætt, hvað fram undan væri
með áframhaldi á fjandskapnum við Sovétríkin og kalda stríðinu
gegn þeim, — og hvernig verið væri að leika á okkur íslendinga
og gefa okkur svo sparkið á efnahagssviðinu, þegar Vesturveldun-
um þætti henta. Þar segir m. a. (birt í Þjóðviljanum 25. marz
1948), fyrst um markaðina, sem verið sé að glata í Austurvegi:
„Með öðrum orðum: Meðan skæðustu keppinautar okkar, eins
og Norðmenn og Englendingar vaða um öll þessi Austur-Evrópu-
lönd og margfalda viðskipti sín við þau, jafnvel með margra ára
viðskiptasamningum, þá sitja stjórnendur utanríkisverzlunar fs-
lands eins og litlir, penir dollaradrengir, skrifa níð um þessi ríki
eftir fyrirsögnum frá Washington og láta keppinauta okkar, sem
taka fyrirskipanir dollaraauðvaldsins ekki eins alvarlega, ná frá
okkur öruggustu framtíðarmörkuðunum.
Takist þessum herrum það skemmdarverk, sem þeir nú eru að
reyna að vinna í markaðsmálunum, þá leiða þeir eftir tvö ár slíka
kreppu yfir sjávarútveginn, að það getur riðið honum og þar með
efnahag íslands að fullu.“
Síðan segir um tálvonirnar um Vestur-Þýzkaland:
„Hvernig er svo framtíðarútlitið um Vestur-Þýzkaland, sem
markað, — þó við getum selt þar nú, meðan Þjóðverjar hungra?
Þegar engilsaxnesku hernámsvöldin komu upp þýzkri auðmanna-
stjórn í Frankfurt fyrir skömmu, var aðeins ein tilkynning birt um
efnahagslegar viðreisnarfyrirætlanir þeirra í íslenzka útvarpinu.
Hún var þessi: Það á að koma upp stórum þýzkum fiskveiðaflota.
Hvað þýðir sköpun voldugs þýzks togaraflota fyrir okkur?
SÍíkur togarafloti verður ekki látinn veiða í Norðursjónum.
Bretar vilja nú þegar friða hann sem mest.
Slíkum þýzkum togaraflota verður sigað á íslandsmið. Það er nú
þegar byrjað.
Viðreisn þýzka togaraflotans, sem ákveðin var í Frankfurt, er
stríðsyfirlýsing gegn sjávarútvegi íslendinga. Það, sem nú er undir-
lrnið í Vestur-Þýzkalandi, er ránsherferð á fiskimið íslendinga. Og
það eru engilsaxnesku veldin, sem stjórna henni.
Við eigum að fá að selja fiskinn til Þýzkalands, meðan hungraðir