Réttur - 01.10.1949, Qupperneq 31
RÉTTUR
223
Hið nýa félag tók nú þegar til starfa og runnu samtök
þeirra Sigfúsar Eymundssonar og Þorsteins Egilssonar
þegar inn í samlagið. Er raunar líklegast, að þar hafi
eigi verið um formlega stofnuð hlutafélög að ræða, held-
ur skuldbindingar manna að afhenda samtökunum út-
flutningsvarning sinn og kaupa af þeim erlenda neyzlu-
vöru í staðinn. Ákvað samlagið að koma þegar á fót
þrem föstum verzlunum á íslandi: í Reykjavík, Hafn-
arfirði og Stykkishólmi. Var Sigfús ráðinn forstjóri
Reykjavíkurdeildarinnar, Þorsteinn deildarinnar í Hafn-
arfirði en Daníel Thorlacius skyldi stjórna Stykkis-
hólmsverzlun.
Þegar um sumarið sendi hið nýja félag þrjú kaupför
hlaðin varningi heim til íslands. Fóru þau á hina föstu
verzlunarstaði, en jafnframt var eitt þeirra sent á Ðrák-
arpoll, til að verzla við 'Borgfirðinga. Kornvara þeirra
Björgvinjarmanna þótti góð, reyndist miklu betri en
korn það, sem kaupmenn í Reykjavík og Hafnarfirði
höfðu á boðstólum. Jafnframt var verð hinna norsku
matvara lægra, svo að þær seldust ört. Þótti nú sel-
stöðukaupmönnum heldur en ekki vá fyrir sínum dyr:
um, enda leið eigi á löngu áður en þeir tóku að fjand-
skapast gegn samtökum þessum. Blaðið Þjóðólfur skýr-
ir svo frá, að fyrsti mótleikur kaupmanna hafi verið
í því fólginn, að snúa sér til. dönsku póststjórnarinnar
og ná á leigu sér til handa öllu lestarrúmi póstskips-
ins fram til ársloka, til að koma í veg fyrir að verzl-
unarsamtökin fengju fluttar með því vörur. Varð af
þessum sökum allmikill vöruskortur síðsumars í verzl-
unum þeirra Sigfúsar og Þorsteins, en í byrjun október-
mánaðar kom gufuskip beint frá Björgvin, með hlað-
fermi af vörum. 'Með því kom einnig Sigfús Eymunds-
son, sem haft hafði langa en giftusamlega útivist. Kemst
Jón Sigurðsson þannig að orði, í bréfi sem hann skrif-
ar Sigfúsi um þær mundir, sem hann lagði af stað