Réttur


Réttur - 01.01.1968, Side 2

Réttur - 01.01.1968, Side 2
HEIMSVALDASTEFNAN - HIN NtJA OG HIN GAMLA r ÞESSARI GREIN BENDIR LOFTUR GUTTORMSSON Á HÖFUÐDRÆTTI HEIMSVALDASTEFNUNNAR FYR- IR 1914. HANN LÝSIR OG SÉRKENNUM BANDA- RlSKRAR HEIMSVALDASTEFNU EINKUM Á TlMUM KALDA STRlÐSINS, OG TILRAUNUM ÞEIRRA TIL AÐ TRYGGJA „PAX AMERICANA" Þ. E. FRIÐ TIL ARÐ- RÁNS. Skýrgreining Lenins. Lenín tók sér ekki fyrir hendur að finna hin sameiginlegu einkenni sem kunna að hafa mótað útþenslustefnu stórveldanna á hinum ýmsu skeiðum sögunnar. Hann ein- beitti sér að því að draga fram auðkenni þess sem hann kallaði efsta stig auðvaldskerfisins. Heimsvaldastefnan, þetta fræðilega hugtak, endurspeglaði að hans dómi fjögur einkenni er greindu síðasta þróunarstig kapítalismans frá því sem á undan var gengið og heims- kreppan 1873 batt enda á. Þessi fjögur auð- kenni voru: 1. Samþjöppun framleiðslunnar í einokunar- samtök auðvaldsins, — samsteypur, sölu- samlög og hringa, — samþjöppun sem batt enda á hið frjálsa samkeppnisform, eins og það gerðist um miðja 19. öld. 2. Einokunin hefur sölsað undir sig veiga- mesm hráefnalindirnar, einkanlega í þágu undirstöðuiðnaðar auðvaldsþjóðfélagsins. 3. Einokun hefur þróazt í bönkunum. Þeir hafa vaxið úr lítilþægum miðlurum í ein- okara fésýsluauðmagnsins. Bankafjár- magn og iðnaðarfjármagn hafa runnið saman og myndað fjármálafáveldi. 2

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.