Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 49
yrði hlutur hans vitanlega langtum stærri að
tiltölu.
A því skeiði er dró úr hagvexti banda-
rísks efnahagslífs, reyndust hinir erlendu
markaðir einmitt veita því marga útþenslu-
möguleika. Enda þótt sala iðnaðarvarnings
ykist ekki nema um 50% á árunum 1955—
65, jókst sala á bandarískum iðnaðarvörum,
framl. erlendis, um 110%. Það er óvefengj-
anlegt að þýðing hinna erlendu markaða hef-
ur vaxið mjög fyrir iðnaðinn, og þá um leið
fyrir aðra geira efnahagslífsins sem eiga
gróða sinn kominn undir velgengni hans.
Hinir erlendu markaðir eru orðnir helzta ör-
yggúopið sem tryggir að samdráttur innan-
landsmarkaðarins leiði ekki til meiriháttar
kreppu hjá auðhringunum.
Bandarískir kaupsýslumann gera sér vel
grein fyrir þessu. I ræðu sem aðalgjaldkeri
General Electrics, J. D. Lockton, flutti fyrir
Iðnaðarráði Bandaríkjanna í maí 1965, skýrði
hann frá því hvers vegna „american business
hefði þörf fyrir að halda áfram útþenslu sinni
erlendis" . .: „I þessu sambandi held ég að
atvinnulífið hafi náð áfanga sem ekki verður
horfið aftur frá. Hin undursamlega tækni
bandarísks iðnaðar og hin gífurlegu auð-
magnsumráð hafa gert okkur kleift að skapa
mesta velgengnisskeið sem saga okkar grein-
ir frá á friðartímum. Til þess að viðhalda
þessum vaxtarhraða höfum við í allmörg ár
leitað viðbótarmarkaða fyrir auðævi okkar á
erlendum mörkuðum. Þessir markaðir bjóða
fjölda auðfélaga, t.d. General Electrics, arð-
vænlegustu útþenslumöguleika sem völ er á."
Hernaðarútgjöldin og útflutningurinn
Hernaðarútgjöldin — sem „varnaráætlan-
irnar" hafa í för með sér — eru nátengd efna-
hagshlutverki hinna erlendu markaða.
I orði kveðnu lúta hernaðarframkvæmdir
þörfum varnanna og öryggis þjóðarinnar, en
þessar þarfir reynast vera nákvæmlega hinar
sömu og hagsmunir einokunarhringanna
segja til um. Eins og fyrr segir afmarkast
„hinn frjálsi" heimur landfræðilega af þeim
hluta heims sem gefur auðmagnseigendum
nokkurn veginn frjálsar hendur um verzlun
og fjárfestingu. Herstöðvanet Bandaríkjanna
sem spannar allan auðvaldsheiminn, herleið-
angrar til fjarlægra landa, s.s. Vietnam, og
hinir margvíslegu útgjaldaliðir sem hljótast
af hvoru tveggja í Bandaríkjunum sjálfum,
hafa höfuðþýðingu fyrir hagsmuni kaupsýsl-
unnar:
1) vernda núverandi hráefnalindir og aðrar
sem enn eru ófundnar.
2) vernda erlenda markaði og bandaríska
fjárfestingu innan þeirra.
3) tryggja öryggi verzlunarleiða, bæði í lofti
og á legi.
49