Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 54
hefur hvert matvörukaupmaður, hver bensín-
stöðvareigandi það á tilfinningunni að hagur
hans velti á áframhaldandi rekstri hergagna-
verksmiðjanna. Yið slíkar aðstæður vekur
minnsti niðurskurður, eða minnsta hótun um
niðurskurð (fjárveitinga), mótmælaöldu með-
al verkamanna hverra atvinna er í húfi, með-
al fjölmargra atvinnurekenda hverra gróði
er í húfi, meðal stjórnmálamanna hverra at-
kvæði eru í veði. Þannig er ásýnd hernaðar-
ríkisins."
Þessi niðurstaða er staðfest af ummælum
stjórnmálamanna. Fulltrúadeildarþingmaður-
inn George A. Goodling sagði hreinskilnis-
lega á þingi 1962: „Enginn stjórnmálaflokk-
ur hefur efni á afvopnun. Mér þykir leitt að
segja það. Eg vildi óska að við hefðum það."
(Niðurlag í næsta hefti).
Loftur Guttormsson.
HEIMSVALDASTEFNAN
„Bandaríkin standa ekki í því erfiði að brjóta undir sig lönd á sama
hátt og Bretland gerði, er það lagði Indland undir veldi sitt. Þeim leikur
einungis hugur á að græða, og þess vegna neyta þau allra bragða til
þess að ná í sínar hendur stjórninni á fjármálum landanna. Þegar þau
hafa náð tökum á fjármálastjórninni, þá veitist þeim auðvelt að neyta
hennar til að stjórna þjóðunum og þar með auðvitað löndum þeirra.
Þannig stjórna Bandaríkin löndum og draga sér af auði þeirra án mikils
erfiðis og árekstra við ákafa þjóðernissinna. Þessi hugvitssama drottn-
unaraðferð nefnis heimsvaldastefna auðdrottnunarinnar. Hennar sér
enga staði á landabréfum. Land getur virzt frjálst og fullvalda samkvæmt
landafræðum og kortabókum. En ef þú skyggnist bak við tjöldin, þá
muntu sjá, að það er í greipum annarrar þjóðar eða öllu heldur banka-
stjóra hennar og stóriðjuhölda. Þessu ósýnilega heimsveldi stjórna
Bandaríki Norður-Ameriku . . . Þetta er hættulegt atferli og við verðum
að vara okkur á því.“
JAWAHARLAL NEHRU
forsætisráðherra Indlands, 1942.
54