Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 41
Donovan
ank þess ádeilusöngva. Lagið „The Universal
soldier" er ein skarpasta ádeila á stríð, sem
samin hefur verið. Þar segir hann m.a. „Her-
maðurinn veit að hann á ekki að drepa, en hann
veit einnig að hann mun alltaf gera það. Bræð-
ur sjáið þið ekki, að þannig bindum við ekki
endi á stríðið."
Vinsælastur ádeilusöngvaranna í dag er Bob
Dylan. Boðskapnum í söngvum Dylan hefur
verið jafnað við ádeilukvæði Byrons eftir Napo-
leonsstyrjaldirnar. Slík samlíking finnst ýmsum
ganga guðlasti næst, og margir eru það sem
fyrirlíta og reyna að gera þessa ádeilusöngva
hlægilega. En þrátt fyrir það hafa ádeilusöngv-
ararnir fengið hljómgrunn hjá æskunni.
Flest lönd Vestur-Evrópu hafa eignast sína
eigin ádeilusöngvara. í Svíþjóð má til dæmis
nefna vísnasöngvarana Cornelis Vreeswijks,
Fred Ákerstrpm og í Noregi tvær konur,
Áse Kleveland og Birgitte Grimstad. Á íslandi
hefur farið fremur lítið fyrir ádeilusöngvum.
Þó hefur lítið eitt verið þýtt af ádeilusöngvum,
en þeir oftast misst alla ádeilu við þýðinguna.
Tveir þýðendur hafa þýtt nokkra söngva, sem
Rímtríóið hefur söngið og „Litla leikfélagið"
notaði einnig í „Myndum" er sýndar voru í
Tjarnarbæ. Það eru þeir Þorsteinn Valdimarsson
og Jónas Árnason og þar hefur ádeilan fengið
að njóta sín. Eflaust eiga ádeilusöngvarnir eftir
að ná meiri útbreiðslu á íslandi, enda lýsa á-
deilusöngvarnir óró og ógnum samtímans.
(Ó. E. tók saman).
NOKKRAR HLJÓMPLÖTUR
ÁDEILUSÖNGVARA:
Pete Seeger:
We shall overcome. CBS BP6 62209.
I can see a new day. CBS BP6 64462.
Joan Baez:
Iin concert vol. 1 til vol. 5.
Farwell Angelina. Fást í Fálkanum.
Donovan:
The universal soldier. (EP).
PYE NEP 24219.
Bob Dylan:
Times they are a-changin.
CBS BP6 62251.
Bob Dylan. CBS CL 1179.
Phil Ochs:
I ain’t imarching any more.
Élektra EKL 269. '
Woody Guthrie:
Ballade of Sacco and Vansetti.
Folkways FH 5485.
Cornelis Vreeswijk:
Visor og oforskámdheter.
Metronom MLP 15176.
Birgitte Grimstad:
RCA LPNES 61.
Fred' Ákerström:
Dagsedlar át Kapitalismen.
MLP 15291.
Tom Lehrer:
An evening ,,wasted“ with Tom
Lehrer. Decca LK 4332.
41