Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 55
HUNGRIÐ
GRÓÐINN
OG
HEIMSEINING
ALÞfÐU
I grein þessari er gert að umræðuefni
hvort verkalýður stóriðjulanda og blá-
fátæk alþýða „þriðja heimsins" geti starf-
að saman að því að bylta auðvaldsstétt-
um heims frá völdum. Þessvegna eru
athugaðar uppsprettur gróðans, vanda-
mál hungursins í þróunarlöndunum og sú
spurning hvort hinn vellaunaði hluti
verkalýðs iðnaðarlanda geti átt samleið
með hungrandi alþýðu þróunarlandanna.
En um allt þetta eru mjög skiftar skoðan-
ir meðal áhangenda sósíalismans.
Þegar reynt er að brjóta til mergjar hið
mikla vandamál nútímans: hungrið í hinum
„þriðja heimi" og gróðasöfnun auðvaldsins,
er nauðsynlegt að líta raunsæjum augum
hverjar uppsprettur gróðans eru og hvar.
Mun þá koma í ljós að hagsmunir verkalýðs
auðvaldslandanna og alþýðu þriðja heimsins
eru sameiginlegir gagnvart auðvaldinu, þótt
lífskjörin séu svo ólík að alþýðan í vanþróuð-
um löndum berjist við hungrið, en verkalýð-
ur háþróaðra auðvaldsríkja „aðeins" við hin
félagslegu vandamál spilts auðvaldsþjóðfé-
lags, en hafi yfirunnið hungrið.
Hungrið er ægilegt vandamál auðugrar
kjarnorkualdar. Tveir af hverjum þrem íbú-
um heims þjást af matarskorti. Með öðrum
orðum hungrið er vandamál fyrir þorra þess
fólks sem í þróunarlöndunum býr, en það
eru 2500 miljónir manna af 3400 miljónum,
sem jörðina byggja. Og þetta vandamál fer
versnandi. Líklega mun mannfjöldinn á
jörðunni árið 1980 verða 4500 miljónir, þar
af 3500 miljónir í þróunarlöndunum, — og
árið 2000 líklega 6600 miljónir jarðarbúa
alls, þar af 5400 í þróunarlöndunum. Hyl-
dýpið á milli hefur dýpkað, hungrið vaxið.
Og það fer vaxandi. Og það kemur harðast
niður á börnunum. Það eru nú 900 miljónir
barna undir 15 ára aldri í heiminum. Yfir-
gnæfandi meirihluti þeirra er á hungursvæð-
unum. I Indlandi t.d. deyja 40% allra barna
áður en þau verða 5 ára gömul.
Reyni þjóðir þróunarlanda að útrýma
hungrinu með því að koma á hjá sér skyn-
samlegu og réttlátu þjóðfélagi, sósíalisma, þá
er að mæta tortímingarherferð Bandaríkja-
auðvaldsins, er vægðarlaust myrðir börn sem
gamalmenni og eitrar gróður svo sem nú í
Vietnam.
Framferði auðvaldsins í þróunarlöndunum
hrópar til himins sökum þess hve kúgunin
er sár, hin dýrslega grimd þess mikil.
55