Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 40
Almenningi þykir oft óþægilegt að alltaf sé
verið að minna hann á sprengjuna, sem getur
þurrkað heiminn út. En hjá ádeilusöngvurunum
er engin miskunn. Þeir vilja vekja fólk til um-
hugsunar um ógnir kjarnorkuvopna og stríðs
yfirleitt. Margir þeirra standa framarlega í sam-
tökum friðarsinna (pasifista) t.d. Bob Dylan og
Joan Baez, og þessi grein er unnin upp úr blaði
norskra friðarsinna, PAX.
Pete Seeger er elztur ádeilusöngvaranna.
Hann var settur á svartan lista á tímum Mc.-
Charthy og var neitað um afnot af hljómleika-
sölum og hjá plötufyrirtækjum. Hann stofn-
setti þá eigið plömfyrirtæki „The Folkway’s" og
gaf út þjóðlög. Hann hefur safnað þjóðlögum
og ádeilusöngvum og sungið sjálfur mikið inn
á hljómplötur og farið í fjölda hljómleikaferða.
Hann hefur með starfi sínu veitt öðrum inn-
blástur og aðrir hafa grætt meir en hann á starfi
hans. Seeger vann mikið með Woody Guthrie
og syngur marga af ádeilusöngvum hans. Hann
hefur sagt um starf sitt: „Ég syng söngva, sem
munu sannfæra þig um að þetta er þinn heim-
ur. Og ef þér finnst þessi veröld okkar óréttlát
og hún veiti þér mörg þung högg — og jafn-
vel þó hún troði þig niður í svaðið, þá ætla ég
mér að syngja söngva, sem gera þig, hvort sem
þú ert hvítur eða svartur, stoltan af sjálfum þér
og verkum þínum."
Bandarískur stærðfræðikennari, Tom Lehrer
hætti kennslu við Harvard háskólann, þar eð
hann var orðinn vinsæll vísnasöngvari. Hann
semur sjálfur hina háðsku texta og beitir háð-
inu á stórkostlegan hátt til að ráðast á ýmislegt,
sem er að gerast í kringum okkur.
Ádeilusöngvararnir hafa gengið í fararbroddi
mannréttindagangnanna í Bandaríkjunum og
safnað fé fyrir hreyfinguna, m.a. Harry Bela-
fonte og söngflokkurinn „Freedom Singers". En
baráttan gegn kynþáttamisrétti er háð á fleiri
stöðum en í Bandaríkjunum. í Suður-Afríku er
hún enn harðari. Suður-Afríkanska söngkonan
Miriam Makeba yfirgaf föðurland sitt árið 1961
og syngur nú og safnar fé í sjóð gegn aðskiln-
aðarstefnu ríkisstjórnarinnar. í mörgum söngv-
um sínum lýsir hún þjáningum blökkumann-
anna, frelsisþrá og mótmælum. í Bandaríkjun-
um hefur hún tekið þátt í mannréttindahreyf-
ingunni.
ADEILUSÖNGVAR
OG STRÍÐIÐ 1 VlETNAM
Það er engin tilviljun að ádeilusöngvararnir
náðu miklum vinsældum eftir 1964. Stríðið í
Vietnam kom ádeilusöngvunum á topp vin-
sældalistanna, bæði austan hafs og vestan. Það
sem kjarnorkuvopnaandstæðingarnir höfðu að-
varað um og mótmælt virtist nú geta skeð. Ung-
ir menn voru sendir til Vietnam til að drepa
eða drepast. Myndirnar á sjónvarpsskerminum
urðu að veruleika og mótmælin létu ekki á sér
standa. í júní 1965 söng pípulagninganeminn
Marry McCurie „Eve of Destruction" inn á
plöm og hún varð þegar metsöluplata. Lagið
var álitið kommúnistaáróður og margar útvarps-
stöðvar í Bandaríkjunum og Evrópu neituðu að
Ieika plötuna. Þar segir meðal annars: „Þú ert
nógu gamall til að drepa, en ekki til að kjósa".
Áður höfðu aðeins þeir sem áhuga höfðu á þjóð-
félagsmálum hlustað á ádeilusöngvana. Nú
komu lög eins og þetta í fyrsta sæti á vinsælda-
listum æskunnar.
Einn róttækasti ádeilusöngvarinn er Phil
Ochs. Hann útskrifaðist frá sama háskóla og
Barry Goldwater, en varð þar róttækur og samdi
róttæka ádeilusöngva. Að undanförnu hefur
hann samið harðorða söngva gegn stríðinu í
Vietnam.
Donovan er einn fulltrúi þessa friðarsinna-
hóps. Hann er enskur og syngur einföld barna-
lög, ástarljóð eða furðulega eigin hugaróra, en
40