Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 30
VIII
Á hinn bóginn varð baráttan gegn fasism-
anum fyrir og í seinni heimsstyrjöldinni til
þess að efla mjög framfarasinnuð öfl í Róm-
önsku Ameríku. I nokkrum ríkjum náði þessi
hreyfing verulegum árangri, náði jafnvel
völdum að stríði loknu eins og í Guatemala
og Venezuela. Bauðst nú hinum „góða ná-
granna" í norðri gullið tækifæri til þess að
sýna í verki einlægan vilja sinn til að „virða
rétt annarra." En tímarnir voru breyttir.
Franklin D. Roosevelt var fallinn í valinn,
stríðinu við fasismann var formlega lokið og
áður en varði stóð gjörvöll heimsbyggðin í
miðju gjörningaveðri Kalda stríðsins. And-
kommúnisminn varð æðsta boðorð banda-
rískrar utanríkisstefnu. Spánskreyrinn var
afmr á lofti. Jafnvel hófsamar borgaralegar
umbótabreytingar voru stimplaðar sem verk-
færi Heimskommúnismans af leyniþjónusm
Bandaríkjanna — CIA — sem nú gerðist æ
umsvifameiri, ekki sízt í Rómönsku Ameríku.
I Venezuela náði Lýðræðisfylking (Accion
Democrática) Rómulo Betancourts völdum í
október 1945 og í forsetakosningunum
tveimur árum síðar hlaut flokksbróðir hans
Rómulo Galegos kosningu. Varfærnisleg
umbótastefna þeirra félaga, Belancourts og
Gallegos, féll þó ekki í kramið hjá banda-
rísku auðhringunum, sem ásamt nokkrum
evrópskum auðfélögum eiga 90% af olíu-
lindum Iandsins, en olían nemur 95% af
heildarútflutningi þess.
Að undirlagi þeirra hrifsuðu nokkrir íhalds-
samir liðsforingjar völdin í nóvember 1948.
Þessu fylgdu fjöldahandtökur umbótasinna,
lögbann á kommúnistaflokkinn 1950, slit
stjórnmálasambands við Sovétríkin og valda-
rán einræðisherrans M. Pérez Jimenes 1952.
I Guatemala varð skáldið Juan José Aré-
valo forseti árið 1945 (reit m.a. hina eitruðu
ádeilu á Bandaríkin: Hákarlinn og sardín-
urnar). í embættistíð hans (1945—1950)
voru ýmsar verulegar þjóðfélagsumbæt-
ur framkvæmdar: sett lýðræðisleg stjórnar-
skrá, leyfð starfsemi verkalýðsfélaga, gerð á-
ætlun um alþýðufræðslu o. fl., þrátt fyrir
harða andstöðu stórjarðeigenda, kirkju og
bandarískra auðhringa. Eftirmaður Arévalos
Jacobo Arbenz Guzman, hélt umbótastarfi
hans áfram og hófst handa um uppskiptingu
jarðeigna meðal kotbænda. En nú framdi
Arbenz tvennt, sem samkvæmt helgisiðabók
CIA jafngilti dauðasynd: í fyrsta lagi smdd-
ist hann að nokkru leyti við kommúnista-
flokkinn, sem hafði verið stofnaður 1949; í
öðru lagi gerði hann Va hluta af landareign-
um United Fruit Co. upptæka. Washington
sendi flotaliðana 1954 og nótt fasismans
lagðist afmr yfir Guatemala. Leikbrúða
Washington, fasistinn Castillo Armas, nam
allar umbæmr áranna 1945—54 úr gildi.
Hann var myrtur 1958.
IX
Þegar John heitinn Kennedy tók við emb-
ætti Bandaríkjaforseta árið 1960 voru enn
runnir upp nýir tímar í alþjóðamálum. Stefna
Kalda stríðsins hafði beðið skipbrot, and-
kommúnisminn var á undanhaldi, Bandaríkin
urðu smátt og smátt að sætta sig við þá stað-
reynd að þau voru bara annað af tveim
stærsm stórveldum heimsins.
Hin breytm viðhorf höfðu einnig áhrif á
afstöðu Bandaríkjanna gagnvart Rómönsku
Ameríku — á ytra borði a.m.k. Reynt var að
blása aftur lífi í gömul slagorð eins og „gagn-
kvæm virðing", „jafnréttisgmndvöllur",
30