Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 19
VO NGUYEN GIAP
Vo Nguyan Giap heitir hann yfirmaður
hersins í Norður-Vietnam og aðalhugsuður
þjóðar sinnar í skæruhernaði og frelsisstríði.
Giap er fæddur í norðurhluta Vietnam
árið 1912, er nú 56 ára. Hann gekk á skóla
í hinni fornu höfuðborg Hue, tók lögfræði-
próf við háskólann í Hanoi. Síðan varð hann
sögukennari við Thang Long skólann í Han-
oi. Hann dáðist að Napoleon. Gíap gat geng-
ið upp að töflu og teiknað þar upp hverja
einustu orustu Napoleons", sagði einn af nem-
endum hans. — En þar með var og aðdáun
Gíap að Frökkum lokið. Hann var eldheitur
ættjarðarvinur. 14 ára gamall gekk hann í
leynifélag, er vann gegn frönskum yfirráðum,
síðar í hinn unga Kommúnistaflokk Víet-
nams. Árið 1939 bönnuðu Frakkar flokkinn
og Giap flýði ásamt fleiri kommúnistum til
Kína. Þar hitti hann Ho Chi Minh og varð
meðlimur Viet Minh. Hann tók að sér að
skipuleggja skæruhernaðinn og gera skæru-
liðið að her. Það var 1941 — og að því hefur
hann æ unnið síðan.
Giap hafði gifst 1938. Þau hjónin eign-
uðust dóttur. En Frakkar hnepm konu hans
í fangelsi og hún dó í þeirri dýflissu, meðan
Giap var í Kína.
✓
I frelsisstríðinu við Frakka sýndi Giap í
reyndinni yfirburði sjálfstæðishersins yfir
málalið nýlendukúgaranna. Hann spáði gangi
þess stríðs á þessa leið: „Hægt og hægt mun
óvinurinn hverfa frá sókn í vörn. Leifturstríð-
ið breytist í langvarandi stríð. Óvinurinn
lendir í eftirfarandi klípu: Hann verður að
halda stríðinu áfram til þess að reyna að
vinna það, en samtímis skortir hann allar sál-
fræðilegar og stjórnmálalegar forsendur fyrir
að heyja stríð, sem dregst æ meir."
Skilgreining Giap reyndist rétt. Stríðið
varð Frökkum óbærileg byrði efnahagslega
og stjórnmálalega. Árið 1954 höfðu þeir
misst 90.000 manns og útgjöldin voru orðin
1600 miljarðar franka, tvöfalt meiri en öll
Marshallhjálpin, sem Frakkar þá höfðu þegið
af Bandaríkjunum. Fall Dien Bien Phu batt
enda á stríðið. Þar misstu Frakkar 16000
manns og sjálfstraustið.
Það var Giap, sem var sigurvegarinn. Og
hann sagði eftir Dien Bien Phu: „Eini her-
skólinn, sem ég hef gengið í, er frumskógur-
inn."
Eru ekki sömu ófarirnar og Frakkar fóru
þá að endurtaka sig hjá arftökum þeirra í
nýlendukúgun, Bandaríkjunum? Herfræðing-
ar ameríska innrásarhersins sjá anda og
handaverk Giap í öllum aðgerðum Þjóðfrels-
ishersins og vörnum norðurhersins. Þeir dást
að Giap og líkja honum við Rommel.
Giap er varnarmálaráðherra Norður-Víet-
nam, yfirmaður hersins og varaforsætisráð-
herra. Hann er vinsælasti maður Víetnam
næst á eftir Ho Chi Minh. Hann er frá 1941
kennari og fyrirmynd þjóðfrelsishers víet-
nömsku hetjuþjóðarinnar. Það er andi hans
og herstjórnarlist sem kennir þeim hetjuher
að sigra sjálf Bandaríkin.
19