Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 64
heims er skilmerkilega rakinn af tveim
bandarískum blaðamönnum, T. Ross og D.
Wiese, í bókinni The invisible Government,
(Ríkisstjórnin ósýnilega), Bantham 1965.
A s.l. ári birti bandaríska fréttaritið Ramp-
arts upplýsingar um leynistarfsemi CIA sem
vöktu heimsathygli. Þar var m.a. sýnt fram
á að eliefu stúdentasambönd hafa þegið fjár-
framlög frá hinni bandarísku njósnastofnun.
Meðal þeirra er stærsta stúdentasamband
Bandaríkjanna, NSA, sem hefur allt frá 1952
fengið fjórðung útgjalda sinna greiddan úr
sjóðum CIA. Þar upplýstist ennfremur að
mörg alþjóðasambönd sem siglt hafa undir
flaggi pólitísks hlutleysis — ISC, vestræna
stúdentasambandið sem Stúdentaráð Há-
skóla íslands er aðili að; Alþjóðlega lög-
fræðinganefndin; WAY, heimssamband æsk-
unnar — hafa ýmist þegið fé beint úr hendi
CIA eða stofnana bandarískra sem eru henni
nátengdar.
Meðal erlendra stúdenta í Bandaríkjunum
hefur CIA rekið víðtæka njósnastarfsemi.
Stúdentum hafa verið boðnir allt að 10.000
dollarar árlega, ef þeir gæfu kost á samstarfi
við CIA, eftir að þeir hyrfu heim að námi
loknu.
Þá vitnaðist ennfremur að CIA hefur á sex
ára skeiði borið eina miljón dollara á sam-
tök bandarískra blaðamanna, American
Netvspaper Guild. Verkalýðsamtök hins vest-
ræna heims hafa heldur ekki farið varhluta
af fjárbruðli hinnar alstaðar nálægu njósna-
stofnunar.
Uppljóstranir Remparts leiddu þannig í
ljós að fáir þeirra sem gefið hafa sig að starf-
semi vestrænna „alþjóða"stofnana eftir stríð,
munu hafa konrzt hjá því að vera óafvitandi
handbendi þessarar ósýnilegu ríkisstjórnar
Bandaríkjanna.
L. G.
VÍÐA
LIGGJA
ÞRÆÐIR
Amerísk verldýðshreyfing hefur ekki farið
varhluta af umsvifum leyniþjónustunnar: CIA.
í fyrra, eftir að afhjúpuð höfðu verið afskipti
CIA af amerískum og alþjóðlegum stúdenta-
samtökum upplýsti Victor Reuther, forstöðu-
maður alþjóðadeildar UAW (Ameríska málm-
iðnaðarsambandið) að ástandið í þessum efn-
um (þ.e. afskipti CIA) væri mun alvarlegra
innan verklýðshreyfingarinnar. Hann sagði að
aðalmennirnir í alþjóðadeild AÁL—CIO, þeir
Jan Lovestone og Irvin Brown, hefðu bókstaf-
lega léð skrifstofuna til þjónustu fyrir CIA.
Fyrrverandi „þjónn" CIA, Thomas W. Brad-
en, reyndi í grein í „Saturday Evening Post" að
þagga niður í Reuther-bræðrnnum (Walter
Reuther, bróðir Victors er formaður Sambands
bílaiðnaðarmanna), með því að hann fullyrti að
þeir hefðu sjálfir átt hlutdeild í úthlutun CIA-
peninga. Walter Reuther gaf strax út yfirlýs-
ingu um, að þar hefði verið um algera undan-
tekningu að ræða. í eitt einasta skipti á árunum
upp úr 1950 hefði hann, mjög hikandi, fallizt á
að yfirfæra gegnum UAW 50.000 dollara til
vestur-þýzkra verklýðssamtaka. En hann kvaðst
strax hafa séð hversu fráleitt þetta var og því
hefði þetta verið hans fyrsta og síðasta þátttaka
í slíkri starfsemi. — En með þessu voru Reuth-
er-bræðurnir ekki kveðnir í kútinn. Nú fyrst
hófu þeir uppljóstranir að einhverju marki.
Þeir gám fyrst sýnt fram á að forystumenn í
AFL—CIO hefðu ekki aðeins staðið að hlut-
lausri niðurjöfnun CIA-peninga, heldur væru
þeir fiæktir í ýmis hin afturhaldssömustu sam-
tök í Bandaríkjunum. Jan Lovestone, starfsmað-
ur í alþjóðadeild AFL—CIO er t.d. fulltrúi í
bandarísku nefndinni, sem hefur það hlutverk
að koma x veg fyrir aðild Kína að Sameinuðu
64