Réttur


Réttur - 01.01.1968, Síða 4

Réttur - 01.01.1968, Síða 4
Lenín ályktaði: „Sé miðað við hóflega vexti, hljóta tekjurnar af þessu fjármagni að hafa numið 8—10 miljörðum franka á ári. Þetta eru traustar stoðir stórveldakúgunar og arðráns örfárra auðugra ríkja á flestum lönd- um og þjóðum heims — og traustur grund- vöilur undir afætulíf örfárra auðvaldsríkja." Þetta sama ár, 1910, réðu umrædd þrjú stórveldi, að viðbættum Bandaríkjum Norð- ur-Ameríku, yfir 80% af fjármálaauðmagni heimsins. „Næstmn allir hlutar veraldar eru með einhverjum hætti skuldunautar eða skatt- þegnar þessara landa — þessara alþjóða- bankastjóra — þessara fjögurra „máttarstoða" fjármálavaldsins í heiminum". (Lenín). Þessar ótvíræðu staðreyndir lögðu Lenín m.a. efnivið í kenningu hans um imperíal- ismann sem sérstakt þróunarstig auðvaldsins. Hann sótti þær milliliðalaust í hagskýrslur samtímans og fræðirit hagfræðinga sem ó- hjákvæmilega hlutu að greina meginþættina í efnahagsþróun auðvaldskerfisins á áramg- unum beggja vegna aldamótanna. A hinn bóginn túlkaði hann staðreyndir hagfræðinn- ar á sinn frumlega hátt: í Ijósi marxismans. Áður en skilizt verður við imperíalisma þessa tímabils, er vert að minna á, hve opin- skátt og umbúðalaust var rætt um eðli hans og hlutverk á æðsm stöðum áður en kreppa hans hófst með sigri Októberbyltingarinnar í Rússlandi. Skulu hér tilfærð tvö dæmi um bersögli leiðtoga hans fyrir 1914: Árið 1895 orðaði brezki nýlendumálsvar- inn Cecil Rhodes (sem Rhodesía heitir eftir) / heimsvaldahugmyndir sínar á þessa leið: „Eg var í gær í Eastend í Lundúnum (verka- mannahverfi) og kom þar á atvinnuleysingja- fund. Eg hlýddi á trylltar ræður sem voru samfellt óp um „brauð, brauð". Á leiðinni heim hugsaði ég um það sem ég hafði heyrt og varð sannfærðari en nokkru sinni um gildi heimsvaldastefnunnar .... Hugsjónin mikla er lausn vandamála þjóðfélagsins. Til þess að forða 40 miljónum íbúa konungsríkisins frá mannskæðri borgarastyrjöld, verðum vér, fylgismenn nýlendustefnunnar, að opna ný landsvæði er geta veitt viðtöku því fólki sem er ofaukið, og látið í té nýja markaði fyrir þær vörur sem unnar eru í verksmiðjum og námum. Undir heimsveldinu eigum vér okk- ar daglega brauð, það hef ég ávallt sagt. Ef þér viljið komast hjá borgarastyrjöld, verðið þér að gerast heimsvaldasinnar". (Ummæli tilfærð af Lenín). En Woodrow Wilson, er síðar varð forseti Bandaríkjanna, fórust svo orð árið 1907: „Verzlunin tekur ekki tillit til landamæra milli þjóða, og kaupsýslumaðurinn gerir til- kall til alls heimsins sem markaðar. Þess vegna verður fáni þessarar þjóðar að fylgja kaupsýslumanninum, og dyrnar að þeim þjóð- um sem eru lokaðar, verður að brjóta upp. Ivilnanir sem fésýslumenn hafa fengið verða ráðherrar ríkisins að vernda, jafnvel þótt það hafi í för með sér gróft brot á fullveldi þeirra þjóða er sýndu mótþróa."*) Fróðlegt er að bera þessi ummæli saman við þau sem daglega eru höfð eftir núverandi forystumönnum bandarísks kapítalisma, þeirra sem réttlæta útþenslu hans og arðráns- aðstöðu með neikvæbum rökum um nauðsyn þess að standa vörð gegn „ofbeldi kommún- ista" og vernda „hinn frjálsa heim" gegn yfir- gangi þeirra. Munurinn endurspeglar hvörf- in frá hinni góðu samvizku sigrandi imperíal- isma áranna fyrir 1914 til sektarvitundar þeirra sem tala nú á tímum fyrir munn bandarískrar yfirgangsstefnu. Hinir fyrri töldu ekki þörf á að dulbúa hinar hráu hags- munaástæður stefnunnar í glitklæði hug- myndafræðinnar; hinir síðari leita umfram allt hugmyndafræðilegrar réttlætingar sem *) Tilvitnað af William A. Williams: The Tragedy of American Diplomacy, bls. 66. 4

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.