Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 18
SKÆRU-
HERNAÐUR
Giap
18
Skæruhernaður hefur frá ómunatíð verið
varnar- og sóknar-aðferð bændaalþýðu gegn
voldugum óvini, sem ræðst inn í land hennar
eða gegn hervæddri yfirstétt eigin lands, er
ok hennar var orðið óbærilegt. Það var þá
siðferðisþróttur þeirrar alþýðu, sem var að
berjast fyrir frelsi sínu og lífi, sem bar ofur-
liði voldugt, vel hervætt málalið, sem enga
hugsjón átti að vopnum. Uppreisnarmenn
George Washingtons báru sigur af hólmi af
vel æfðu málaliði brezka heimsveldisins.
Spánskir bændur sigruðu í sífelldum skærum
sjálfan Napoleon, — innrásarher hans til
stuðnings leppstjórn Frakka varð sífellt fyrir
árásum af þessum ósýnilega fjandmanni og
glataði sjálfstrausti sínu. „Ljónið í dæmisög-
unni, sem mýflugan kvelur til bana, er góð
mynd af franska hernum,” segir Engels, hinn
mikli hernaðarsérfræðingur sósíalismans, um
spánska skæruhernaðinn 1807—12. — Og
fyrir rúmum hundrað árum dáðist öll alþýða
heims af einhverjum mesta skæruliðaforingja
heims, Garibaldi, sem stjórnaði af ótrúlegri
herkænsku frelsissveitum Itala.
Sumir héldu að tæknibyltingin í hernaði
hefði útrýmt skæruhernaðinum. En því fór
fjarri, þegar um frelsisbaráttu var að ræða.
Aratugirnir 1927—45 sýndu það bezt: Sov-
ézku skæruliðarnir vöktu aðdáun heimsins
með hetjudáðum sínum bak við víglínur naz-
ista, mótspyrnuhreyfingin í Evrópu sýndi að
meira að segja í borgum átti skæruhernaður-
inn hlutverki að gegna. Og austur í Kína stóð
bændaher undir kommúnistískri forystu í 20
ára skæruhernaði og borgarastyrjöld, er lauk
með sigrinum 1949- Skæruhernaðarhug-
myndir Engels voru nú þróaðar áfram m.a. af
Mao-Tse-Tung og síðar Che Guevara. Og nú
sér heimurinn allur hvernig hetjuþjóð Viet-
nam býður voldugasta stórveldi heimsins
byrginn með skæruhernaði sínum gegn full-
komnustu drápstækjum nútímans.