Réttur - 01.01.1968, Síða 23
Óánægja Ibo-þjóðflokksins í austurhéruðum
landsins var virkjuð og þeir studdir með her-
gagnasendingum, unz lýst var yfir „sjálfstæði"
austurhéraðanna 31. maí s.l. Bandaríkin
styðja þessa uppreisnarmenn auðvitað ekki
opinberlega, en þau leyfa „einkaaðilum" að
flytja þe'm vopn með viðkomu einkum í Hol-
landi og Portúgal. Að sjálfsögðu gæti stjórn
Bandaríkjanna stöðvað þessar hergagnasend-
ingar, ef hún kærði sig um. En áhrifamiklir
aðilar í Bandaríkjunum hafa annað í huga.
Þar er m.a. gælt við þá hugmynd að láta
Sameinuðu þjóðirnar skerast í leikinn til að
tryggja skiptingu Nígeríu. Því var á s.l. ári
borin fram tillaga á Bandaríkjaþingi þess
efnis að skora á SÞ að taka í taumana til að
koma í veg fyrir „útrýmingu" Ibo-þjóðarinn-
ar. Það eru 8—9 miljónir manna.
Bandaríkin stefna greinilega að því að gera
Afríku að samskonar vettvangi fyrir sig og
Suður-Ameríka er nú. Sú þróun er sem betur
fer enn skammt á veg komin, en óhætt er að
segja, að Afríkuþjóðir eru í þessu tilliti í mik-
illi hættu staddar.
„Vestmenn"
„Því enginn má vita, hvað orðið er þá
af auðsins og guðanna friði,
er hundraðið fimta er sigið í sjá
og sól þess er runnin að viði.
Þó glatt sé nú leikið um gullkálfinn þann
sem göfgar hinn voldugi lýður,
þá liggur ef til vill þar höfuðlaus hann
og húngruðu gestanna bíður.
Og þá hefur máske hin máttuga hönd
um musterin eldlogum vafið,
og guðinum seinasta stjakað að strönd
og steypt niðr í annað hvort hafið."
Þorsteinn Erlingsson 1893.
Mammonsríki Ameríku
„Þakkið mein og megin raunir,
Mammons-ríki Ameríku!
Þakkið slyppir kaupin kröppu,
keppni er betri’ en stundarheppni.
Hvað er frelsi? — Hjóm og þvaður,
hjörinn þinn nema sigurinn vinni!
Þrcelajörð þér veröldin verður,
verk þín sjálfs nema geri þig frjálsan.
Fá mér tind af Garðarsgrundu —
guðastól á sjónar hóli!
Sjá, ég eygi alla vegu
ógnar-land, fœ glóð í anda!
Vei þér fjöldi villtrar aldar:
veldisorð hér liggur í storðu!
Sæk þú hart, en varkár vertu:
voðafull eru lönd úr gulli!"
Matthías Jochumsson.
„Bragar-bót".
23