Réttur


Réttur - 01.01.1968, Side 37

Réttur - 01.01.1968, Side 37
Bandaríkjanna að heita má eftir morðið á Martin Lúther King, eru forboði þess eld- hafs, sem eitt sinn mun tortíma þessari yfir- stétt. Vietnam sýnir að vandamálin, sem taum- laus drottnunargirni amerískrar auðmanna- stéttar hefur skapað erlendis, getur hún ekki leyst. Algert skilningsleysi og ofstæki þessara auðþursa gagnvart vandamálum eigin þjóðar, sýnir að þau vill hún ekki leysa.. Árið 1943 var þessi spurning sett fram hér í „Rétti": „A veröldin máske eftir að npplifa það, að Ford og du Pont traðki álíka á andlegum arfi Jeffersons og Franklins, eins og Hitler á kenningum Lessings og Kants, — að þjóð- frelsi annarra þjóða verði trampað undir jám- hæli Morgans af herjum úr landi Washing- tons og amerísku þjóðfrelsisbyltingarinnar, eins og verkalýðshreyfing Evrópu var sundur- tcett af böðlunum úr landi Marx og Engels, — að svartir menn og gulir, máske þeir, sem ekki eru „innfceddir", og Gyðingar verði hundeltir og þrcelkaðir í föðurlandi Lincolns, eins og Gyðingar og ekki-Germanir á cettjörð Heine og Mendelsohns?" Við erum að lifa þetta nú. En að einu leyti er amerísk yfirstétt hættulegri en Hitler. Hún hefur atómsprengjur nægar til að þurrka út lífið á jörðinni. Það eru því síðustu forvöð að völdum hennar linni, áður en þetta heimsveldi á hel- vegi leiði heiminn með sér til heljar. Apríl 1968. E. O. Washington apríl ’68. 37 L

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.