Réttur


Réttur - 01.01.1968, Síða 60

Réttur - 01.01.1968, Síða 60
í viðkomandi landi leiða yfir það: sult, klæð- leysi, réttleysi, misþyrmingu o.s.frv. Verkamenn háþróaðra auðvaldslanda eru að miklu leyti lausir við þessar kvaðir sakir stéttabaráttu sinnar og háþróaðrar tækni landanna. Þeir eru ekki lengur menn, sem engu hafa að tapa nema fjötrunum, — þeir eiga margir íbúð, bíl og ýms þægindi nú- tímalífs og misþyrmingar á líkama þurfa þeir aðeins að óttast, þegar öldur ofstækis og fasisma ríða yfir lönd þeirra. En þeir eru eft- ir sem áður arðrænd stétt, undirorpin dutl- ungum atvinnurekenda og hagsveiflum efna- hagslífs, — rétt eins og borgararnir t.d. á 17. og 18. öld í Frakklandi voru undirorpnir dutlungum aðalsmanna, er gátu látið fangelsa burgeisana og pína, þótt ríkir væru. Og þótt vinnutími þessara verkamanna sé víða kom- inn niður í þrjátíu og fimm til fjörutíu og átta stundir á viku, þá er vinnan oft svo þrautskipulögð að hún rænir þrótti hans í svo ríkum mæli, að fertugir menn eru oft látnir fara og eiga erfitt um að fá vinnu á ný. T vinnutímanum eru þessir menn aðeins keypt afl, starfið þeim framandi og dautt, aðeins unnið vegna launanna. Og utan vinnutímans fá þeir að kenna á allri ringulreið auðvalds- skipulagsins: eins til tveggja klukkustunda ferð á vinnustað í stórborg, lífshætta á veg- unum eins og í stríði. (Bandaríkjamenn misstu á stríðsárunum fleira fólk í umferðarslysum en á vígvöllunum), sá kuldi og einangrunar- kennd, sem gagnsýrir lífið: firringin (sbr. grein Lofts Guttormssonar í „Rétti" fertug- asta og áttunda árg.), sem er afleiðingin af því að verkamaðurinn, iafnvel þótt vellaun- aður sé, er firtur vinnutæki sínu, — er sjálf- ur orðinn tæki í höndum annars að’la, not- aður til þess eins að framle'ða gróða, — sér sjálfur ekki tilgang með v’nnu sinni sem sjálfstæðu starfi, — með öðrum orðum: er lítillækkaður í að vera— máske vel alið — en þó vinnudýr frá sjónarmiði auðmanns- ins. Oll er þessi aðstaða verkamannsins félags- leg misþyrming á honum sem sjálfstæðri, frjálsri veru. Fyrr eða síðar mun hann því rísa upp gegn henni — og krefjast þess sjálf- ur sem þáttur í heild sinnar stéttar að stjórna þessum fyrirtækjum, ráða þessu þjóðfélagi sem frjáls maður, óháður öllum dutlungum auðmanna og afleiðingum af þjóðskipulagi þeirra: vöruframleiðslunni, gróðatilgangnum. Þótt aðeins sé látið nægja að telja þessa þrjá þætti raka, nægir það til þess að sýna að það eru til rök, sem geta knúð líka vel- launr.ðan verkalýð stóriðjulanda til valda- töku. En svo þessi rök verði knýjandi, þarf vissulega pólitískur þroski þessa verkalýðs að eflast stórum, vit hans og þekking á þjóðfé- lagsmálum að rísa hátt og stolt hans og með- vitund um hvað honum sé samhoðið sem frjálsri skapandi veru að rísa enn hærra. Auðmannastéttin treystir á að þessi breyt- ing gerist seint og öll áhrifatæki hennar þjóna þeim tilgangi. Hún hyggst geta beitt þeirri klofningstækni, er Jack London lýsti í „Járn- hælnum": Kaupa helming alþýðunnar með fríðindum, berja hinn helminginn niður með ofbeldi. Það er þetta sem henni ekki má takast. — Því eru andleg fjölmiðlunartæki í þágu sósíalismans alþýðunni jafn nauðsyn- leg í stóriðjulöndunum og hergögnin handa uppreisnarmönnum í hinum hungrandi hluta heims. Vellaunaður verkamaður háþróaðs auð- valdsskipulags á vissulega oft við hin sálar- legu vandamál „hins feita þjóns"*) að etja, að láta ekki velgengnina „smækka sig"**) •) Sbr. Halldór K. Laxness: ..Feitur þjónn er ekki mikill maður. Barður þræll er mikill maður, því í hans brjósti á frelsið heima". ••) Sbr. St. G. St.: ,,En lóta ekki baslið smækka sig". (Baslið gat smækkað rétt eins og velgengnin, — það gerði fátæklingana heldur ekki af sjálfu sér byltingar- sinnaða). 60

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.