Réttur


Réttur - 01.01.1979, Síða 15

Réttur - 01.01.1979, Síða 15
Minnstu, að myrkra malitin pver, pá myrkur dauðans skalt kanna; í yztu myrkrum og enginn sér aðgreining höfðingjanna.“ (8. Passíusálmur) Jesús frá Nasaret sem frelsari hinna snauðu og boðberi sameignar þeirra og samneyslu á gæðum þessa heims, sem harðsvíruð yfirstétt og forhertur klerk- dómur hennar neitar þeim um, - það er myndin, sem lifir í lnigum kúgaðra und- irstétta heimsins margar aldir - jafnvel allt til Jiessa dags. Hins vegar taka erind- rekar „myrkramaktarinnar" snemma til að reyna að umhverfa mynd lians í hug- um hinna fátæku,1 svipta þá voninni um sameignarsamfélag þeirra, sem uppfyllti allar þarfir þeirra, og flytja það til ann- ars heims. Þeir vilja fá þá til að svelta rólegir hérna megin, í auðmýkt og hlýðni við „valdstjórnendur“ - í trúnni á full- nægingu þarfanna hinumegin: Og þar átti ekki að væsa um þá, er svelt höfðu hérna megin: ,,Kláravin, feiti, mergur með mun par til rétta veitt“, sagði í fornum sálmi um dýrðina hinu megin. Og í íslenskri þýðingu á við- kvæði við frægan söng Joe Hills, sænsk- bandaríska skáld-söngvarans - var háðið um fyrirheitin orðað svo: „Bíttu gras, blessuð stund bráðum nálgast. Ó, sœl er pí?i bið, Þú fœrð föt, pú fœrð k jöt, pegar upp Ijúkast himinsins hlið.“ (Viðkvæðið á enskunni er svo miklu betra að ég læt það fylgja hér með: VIII. „Við vildum koma og kyssa spor þín, herra, en vorum reknir burtu eins og rakkar, til þess við yrðum ekki á vegi þínum. Við erum sorp, sem varð að hreinsa burtu. Sjá, höfðingjar, sem engum lutu áður, beygja sín kné og breiða klæði á veginn. Blóm þeirra falla að fótum ösnu þinnar. Þau klæði hafa ambáttirnar ofið og blómin hafa þreyttir þrælar ræktað." „Við eigum engin blóm og engin klæði og ekkert nema - þig. Velkominn, velkominn til Jerúsalemsborgar, Jesús frá Nazaret." í „Ný kvæði", Kvæðasafn II. 1930, bls. 155 etc. „You will eat by and by i?i the glorious land above the sky, work a?id pray, live o?i hay, you’ll get pie in the sky when you die.“ Það er gamalt og nýtt bragð yfirstétta að reyna að stela foringjum undirstétt- anna, - jafnvel þótt þær hafi drepið þá sjálfar, — og nota þá gegn alþýðunni, er hún rís upp. Það var Páll postuli, sem hóf Jiað verk, er höfðingjar J^essa heims síðar reyndu að fullkomna. „Sýn mér trú þína af verkunum,“ hafði verið regla hins frumkristna kommún- isma. - ,,Ef Jni bara trúir á mig, skaltu hólpinn verða annars heims,“ varð boð- skapur myrkramaktarinnar. 15

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.