Morgunblaðið - 20.01.2006, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 37
UMRÆÐAN
EITT stærsta verk-
efni komandi ára er að
bæta samgöngur á höf-
uðborgarsvæðinu. Eins
og staðan er í dag þá
fjölgar íbúunum á
þessu svæði og bílaflot-
inn eykst stöðugt. Það
kannast margir við
vandamálið að umferð-
in gangi hægt á ann-
atímum á leið til eða frá
vinnu eða þegar fólk á
erindi í bæinn á ann-
atíma. Það er ljóst að gera verður
stórt átak í því að bæta samgöng-
urnar og ýta af stað gerð flýtileiða.
Þetta verkefni er þess
eðlis að allar sveit-
arstjórnir á svæðinu
verða að sameinast um
málið. Það er mjög
mikilvægt að setja
þetta verkefni ofarlega
á forgangslistann.
Gera þarf greiðfærar
leiðir inn og út úr bæj-
unum, þannig að fólk
komist á sem
skemmstum tíma leið-
ar sinnar. Einnig þarf
að tengja bæina saman
þannig að fólk komist ferðar sinnar á
fljótan og öruggan hátt.
Það hefur verið góður skilningur á
því í Kópavogi að gera verði ráð fyrir
góðum umferðarmannvirkjum hér í
bænum, en það verður þá að vera
samstarfsvilji fyrir því hjá ná-
grannabæjarfélögunum að setja
þessi mál í forgang ef árangur á að
nást. Það þarf að vinna enn betur í
þessum málum og ýta þessu brýna
máli í framkvæmd. Fyrir þessu vil
ég beita mér.
Samgöngur á höfuð-
borgarsvæðinu
Eftir Gunnstein Sigurðsson
Gunnsteinn Sigurðsson
’… gera verður stórtátak í því að bæta sam-
göngurnar og ýta af
stað gerð flýtileiða. ‘
Höfundur er bæjarfulltrúi og sækist
eftir 2. sæti á lista sjálfstæðismanna í
Kópavogi.
Prófkjör Kópavogur
NÝLEGA var sagt frá því að Sí-
menntun – Háskólinn á Akureyri
mun í vetur bjóða upp á námskeið í
kínverskum fræðum í samstarfi við
HA og Háskóla Íslands, en síðan á
árinu 2003 hefur HÍ einnig boðið upp
á nám í japönsku og um
japanska menningu og
samfélag. Mér, sem
íbúa af asískum upp-
runa, búsettum hér-
lendis, finnst nauðsyn-
legt að flóra menningar
og tækifæra til mennt-
unar sé hér sem fjöl-
breyttust. Mér þykir
hins vegar sérstaklega
vænt um þegar við bæt-
ist námsefni frá álfunni
sem ég er fæddur í og
er mörgum Íslend-
ingum framandi, Asíu.
Fræðigreinin sem ber heitið ,,Jap-
anskt mál og menning“ er 30 eininga
nám, ætluð byrjendum og tekur eitt
ár. Það hófst sem þriggja ára til-
raunaverkefni HÍ í samvinnu við
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og
The Japan Foundation. Nemendur
öðlast grunnþekkingu á japanskri
tungu, sögu, menningu, viðskiptum,
tækniframförum, teiknimyndahefð
og fleira. Dr. Kaoru Umezawa sér-
kennari sér um japönskuna, en hún
hefur kennt hana undanfarin tíu ár í
London og Yukiko Koshizuka verður
henni til aðstoðar. Dr. Sverrir Jak-
obsson sagnfræðingur kennir einnig í
náminu. Að kennslunni um menning-
ar- og samfélagssvið koma fjölmargir
gestakennarar og fyrirlesarar í mis-
munandi greinum.
Námið við japönskuskorina hefur
gefist mjög vel en að meðaltali hafa
25 nemendur lokið námi
á hverju ári. Af þeim
hafa 6–8 á hverju ári
farið sem skiptinemar í
háskóla til Japans og
nokkrir hafa farið í
framhaldsnám í jap-
önsku eða öðrum náms-
greinum.
Árangur skorarinnar
er að mínu mati frábær
og það sem mestu skipt-
ir er að námið hefur náð
að blása á goðsagnir
eins og ,,japanska er svo
erfitt tungumál“ eða
,,japönsk menning er svo flókin og
torskilin að það er erfitt fyrir Vestur-
Evrópubúa að skilja hana“. Slíkar
goðsagnir og hugmyndir hindra fólk í
að kynnast nýjum menningar-
heimum, frá því að læra um þá og
reyna að skilja. En í gegnum námið í
HÍ vita nú margir Íslendingar að
sannleikurinn er þessi: ,,japanska er
frekar auðvelt tungumál að skilja og
tala!“
Hinn góði árangur sem náðst hefur
er þó ekki síst kennurum skor-
arinnar, með dr. Kaoru í broddi fylk-
ingar og stuðningsaðilum námsins.
Enn fremur vil ég hrósa starfsfólki
Háskóla Íslands og ekki síst rektor,
Kristínu Ingólfsdóttur, fyrir einlægan
stuðning og vel unnin störf. Háskól-
inn skapar tækifæri til fjölbreyttari
alþjóðlegri samskipta og reynir sífellt
að bæta þjónustu fyrir nemendur en
HÍ styður m.a. móðurmálshópa inn-
flytjenda, sem eru nú á tíu tungu-
málum frá mismunandi löndum.
Að lokum langar mig til þess að
kynna örstutt japanska hátíðardag-
inn. Hann verður haldinn hinn 21. jan-
úar kl. 14.00–17.00 í aðalbyggingu HÍ.
Þar munu nemendur í japönskuskor-
inni standa að skemmtilegri og fróð-
legri sýningu ásamt japönskum sjálf-
boðaliðum. Ég hvet alla þá sem hafa
áhuga á japanskri menningu eða eiga
í viðskiptum við Japan til þess að
mæta en líka þá sem ekkert þekkja til
japanskrar menningar, einfaldlega til
þess að fræðast, skynja og skemmta
sér!
Japanska fyrir alla í HÍ
Toshiki Toma fjallar um
nám í japanskri menningu ’Fræðigreinin sem berheitið ,,Japanskt mál og
menning“ er 30 eininga
nám, ætluð byrjendum
og tekur eitt ár. ‘
Toshiki Toma
Höfundur er stundakennari í
HÍ og prestur innflytjenda.
Ná›u flér í Lottómi›a á næsta
sölusta› e›a á lotto.is – flú gætir
unni› litlar 7 milljónir króna.
fia› getur allt gerst. ENN
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
0
5
0
MILLJÓNIR
VINNING
Í FYRSTA
lotto.is
Prófkjör Sjálfstæðismanna fer fram laugardaginn 21. janúar að Hlíðarsmára 19.
Reynsla og þekking
í málefnum íbúa
Kópavogs
Kjósum Sigurrós í þriðja sæti í prófkjörinu
21. janúar og tryggjum sterkan lista
Sjálfstæðismanna í kosningunum í vor.
3
. SÆTIÐ
IGURRÓS ÍS
Kosningaskrifstofa Sigurrósar
Þorgrímsdóttur er opin að Löngubrekku 3,
sími 554 3780, sigurros@kopavogur.is