Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 57 MINNINGAR ✝ Pétur Sigurðs-son fæddist á Sólbakka í Höfnum 26. janúar 1946. Hann lést af slysför- um 13. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hans eru Unnur Pét- ursdóttir, f. 15. apríl 1921, og Sigurður Breiðfjörð Ólafsson, f. 27. júlí 1923, d. 23. febrúar 1985. Systk- ini Péturs eru Dagný Jóhannsdóttir (sam- mæðra), f. 21. febr- úar 1940, gift Óskari Hálfdánar- syni, Elísabet Sigurðardóttir, f. 12. júní 1948, gift Ómari Karlssyni, Ólafur Sigurðsson, f. 22. júlí 1951, kvæntur Gerði Sveinsdóttur, og Gróa Elma Sigurðardóttir, f. 19. desember 1953, gift Börje Karlson. Fyrri eiginkona Péturs er Krist- ín Jónsdóttir, þau skildu. Synir þeirra eru Jón Óskar Pétursson, f. 27. apríl 1962, hann á fjögur börn, og Vignir Pétursson, f. 13. maí 1964, kvænt- ur Öldu Þorsteins- dóttur, þau eiga tvö börn. Hinn 16. desem- ber 1987 kvæntist Pétur seinni konu sinni, Guðrúnu Magnúsdóttur, son- ur þeirra er Ólafur Pétur Pétursson, f. 20. mars 1978, sonur hans er Heiðar Máni. Börn Guðrúnar af fyrra hjóna- bandi eru Magnús Baldvinsson, f. 8. júní 1957, Sigríður Baldvinsdótt- ir, f. 16. nóvember 1960, Björg Baldvinsdóttir, f. 25. júlí 1962, gift Valmundi Valmundssyni, og Erla Baldvinsdóttir, f. 2. apríl 1965. Pétur verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elsku pabbi, okkur er orða vant. Þú fórst svo snöggt frá okkur, allt of fljótt. Við sitjum eftir og vitum ekki í hvorn fótinn við eigum að stíga, þetta er svo sárt. Minningarnar streyma, sorg og gleði rifjast upp, við reynum að bera okkur vel en hjartað grætur. Mér þykir svo vænt um þig, pabbi, og vildi ég að ég hefði sagt þér það oftar, en svona er lífið, það þýðir ekk- ert að horfa um öxl með eftirsjá held- ur reyna að horfa fram veginn og halda áfram. Ég veit að þú gerir það örugglega núna á nýjum stað og fylg- ist með öllum sem þér þótti vænt um. Þú varst listamaður af guðs náð og allt sem þú tókst þér fyrir hendur var listavel gert. Allar veislurnar sem þú hélst eða útbjóst fyrir aðra, þær voru flottar. Við sem ætluðum að gera eina saman núna í vor. Það verður víst ekkert af því, en veisla verður haldin og í þínum anda og ætli að þú verðir ekki að fylgjast með yfir öxlina á mér þegar ég verð að undirbúa hana. Öll listaverkin þín, þau eru ekki fá málverkin, gipsmyndirnar og garðurinn þinn þó að hann sé bara smá frímerki þá er alveg ótrúlegt hvað þú gast gert við hann með öllum styttunum, bóndabænum og tjörn- inni. Talandi um tjörnina, við sem ætluðum að útbúa einar í garðinum hjá mér í sameiningu í sumar með gosbrunni og tilheyrandi, ekki tókst okkur það heldur, en tjörnin verður gerð, það máttu vita, pabbi. Við vor- um kannski ekki mjög líkir en samt hef ég erft eitthvað eftir þig, allavega áhugann á matargerð, þú með þínar uppskriftir, svo leyndardómsfullur og sýndir engum. Snyrtimennskuna þína erfði ég ekki því það er erfitt að feta í þau spor. Manstu þegar við vor- um að mála saman í Skógarásnum. Þú málaðir öll loftin en ég veggina. Að verki loknu sást ekki dropi á þér en ég var allur útataður, þú hefðir getað málað í sparifötunum án þess að á þeim sæi en ég get ekki verið ná- lægt málingu án þess að maka mig allan út. Elsku pabbi, ég kveð þig með þess- um fátæklegu orðum og að lokum mér þykir vænt um þig. Hvíl í friði. Þinn sonur Vignir. Pétur Sigurðsson er fallinn frá langt um aldur fram. Ég kynntist Pétri fyrst þegar ég kynntist konu minni en þá höfðu Pétur og Guðrún tengdamóðir mín hafið búskap og þeim fæðst ljósgeislinn í lífi þeirra, Óli Pétur. Þegar ég kynntist Pétri betur sá ég að þar fór traustur mað- ur, þó stundum hafi nú hvesst á milli okkar en það var fljótt að gleymast og alltaf tókum við upp þráðinn aftur. Það má segja að nokkur undanfarin ár höfum við verið nokkuð góðir vinir og margar ráðleggingarnar hef ég þegið af honum þegar ég hef setið í kaffi í Geitlandinu. Það sem Pétur tók að sér á annað borð leysti hann með sóma og sinni alkunnu vandvirkni sem margir hafa rómað. Fyrir nokkrum árum tóku þau hjón upp á því að ferðast til útlanda og sökum flughræðslu tengda- mömmu fóru þau með skipi en Elsa systir Péturs og Ómar maður hennar sem er stýrimaður hjá Samskipum buðu þeim Evrópurúnt. Skipið kom við í Eyjum og hafði þar viðdvöl fram eftir degi og fórum við hjónin um borð og náðum í alla í kaffi. Mikil var spennan að komast út og þau urðu ekki fyrir vonbrigðum með ferðina og alla ferðasöguna fékk ég beint í æð með myndum þegar ég kom næst í bæinn. Þar með var ísinn brotinn og þau hjón fóru til Spánar í fyrra og nú með flugi og tengda- mamma var ekkert hrædd að eigin sögn. Uppi voru áætlanir um frekari ferðalög þeirra hjóna en örlögin tóku í tauma. Einu var Pétur búinn að lofa mér en það var að gera með mér gos- brunn í garðinn hjá mér næsta sum- ar, svipaðan þeim sem hann byggði í sínum garði. En nú verð ég að bægsl- ast í þessu sjálfur, en mig grunar þó að einhver komi með mér að verki og leggi mér lið. Elsku Gunna mín, Guð veri hjá þér í sorg þinni. Valmundur og Björg. Í minningu um afa Pétur. Alltaf var gaman að koma til afa og ömmu í eldúsumræður. Afi hafði svo skemmtilegar skoðanir á öllu sem var að gerast í umhverfi okkar. Gát- um við verið tímunum saman að rök- ræða og finna lausnir á vandamálum heimsins, ekki tókst okkur þá að gera heiminn eins og við vildum hafa hann. Þegar það kom að pólitík gát- um við þrasað alveg út í eitt því við höfðum ekki alltaf sömu skoðanir á þeim málum, og oftast stóð ég upp og sagði: Afi þú vinnur þetta, ræðum saman seinna og sjáum hvað er búið að gera í málunum þegar ég kem næst í heimsókn. Afi málaði mynd handa mér, og fékk ég að velja úr nokkrum myndum. Þegar ég valdi þá sagði afi ,, Ég vissi að þú myndir velja þessa“. Hann var mikill lista- maður og gleður mig mjög að hafa fengið mynd eftir hann og fleiri lista- verk. Ég minnist afa míns sem elsku- legs manns sem vildi gera allt fyrir alla, og var alltaf til í að hlusta þegar maður þurfti að létta á hjarta sínu. Takk fyrir tímann sem þú gafst mér elsku afi. Elsku amma Gunna, við höldum áfram að ræða um daginn og veginn, þó að það verði ekki eins án afa. Guð gefi þér styrk, elsku amma. Anna Brynja. Elsku afi. Ég sakna þín mjög mikið. Mér leið illa þegar ég frétti að þú hefðir lent í slysi og grét mikið. Mér fannst alltaf gaman að heimsækja þig og ömmu. Ég hugsa oft um allt það skemmti- lega sem við gerðum saman og við hittumst oft. Ég man þegar við fórum að veiða og bjuggum til litlu tjörnina og þú keyptir tvo fiska til að setja í hana. Einn fiskurinn dó eins og þú, en hinn var á lífi eins og ég. Við fór- um oft í sumarbústaðinn okkar og í útilegur. Við gerðum margt fleira skemmtilegt saman, bjuggum til styttur og hjálpuðumst að í garðin- um. Við amma fórum stundum með þér í strætó þegar þú varst að vinna. Þú varst alltaf góður við mig. Ég mun aldrei gleyma þér. Þinn Heiðar Máni. Elsku Pétur bróðir er dáinn. Andlát hans bar svo fljótt að, ég er ekki farin að gera mér grein fyrir því enn að hann sé ekki hér og að ég geti ekki hringt eða heimsótt hann. Við töluðum mikið saman enda mjög samrýnd systkini. Föstudagurinn þrettándi rann upp eins og allir aðrir dagar nema ég segi við sjálfa mig Ætli eitthvað hræðilegt gerist í dag, en hrindi þeirri hugsun jafn hratt frá mér enda ekki vön að hugsa svoleiðis. Einhverju fann ég fyrir, tengingin var svo sterk á milli okkar Péturs bróður, við töluðum nú oft um það. Tveimur tímum seinna fæ ég þær voðafréttir að hann sé dáinn. Ég var búin að heyra af strætis- vagnaslysinu en hugsaði, nei Pétur bróðir keyrir ekki þessa leið en hann var búinn á vakt og á leiðinni að skila vagninum. Ég þakka guði fyrir að það voru engir farþegar með honum og að ekki fleiri slösuðust því hann mátti ekkert aumt sjá. Hugur minn er á flugi, afhverju hann? Bróðir minn var afskaplega ljúfur og góð sál lífið var þó ekki alltaf dans á rósum hjá honum, en margar góðar stundir átti hann með henni Gunnu sinni og mikið var oft gaman hjá okkur, allar ferðirnar sem við fórum saman í. All- ar sumarbústaðarferðirnar, ógleym- anleg og frábær Evrópusigling með Arnarfellinu sem Ómar bauð þeim með okkur í sumarið 2003 og svo vikuferð til Spánar síðasta sumar í hús dætra minna. Þar var mikið skoðað, keyrt frá morgni til kvölds, Ómar við stýrið og Pétur bróðir í framsætinu stjórnandi öllum tökkum og fékk hann viður- nefnið maðurinn á bak við tjöldin og höfðum við öll mikið gaman af. Honum bróðir mínum fannst nú óþarfi að flatmaga á ströndinni, fannst nú skemmtilegra að keyra og skoða sig um og að fara niður á „Bennadorm“ og sjá alla listamenn- ina var nú toppurinn. Hann hafði líka á orði að hann væri örugglega búinn að sjá meira af Spáni þessa einu viku en margur annar sem hefði komið þangað tíu sinnum og eflaust er margt til í því. Elsku Pétur bróðir nú ert þú far- inn í ferðalagið langa og komið er að kveðjustund, síðastliðnir dagar hafa verið erfiðir fyrir okkur öll. Elsku mamma, Gunna, Óli Pétur og Heiðar Máni (afastrákur), megi góður guð gefa okkur styrk til að takast á við þessa miklu sorg. Elsku bróðir, ég mun aldrei gleyma þér og þú átt stóran stað í hjarta mínu. Ég veit að þú ert á góð- um stað núna og munt vaka yfir okk- ur þangað til að við hittumst á ný, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð geymi þig, þín Elsa systir, Elísabet. Hinn 13. janúar er ég var við vinnu mína í erlendri höfn barst mér um hádegisbil sú fregn að Pétur mágur minn hefði þá um morguninn látist af slysförum. Á slíkum stundum koma fram í hugann allskonar minningar og hug- urinn hvarflar til baka. Pétur var einn sá fyrsti af fjölskyldu konu minnar sem ég kynntist og strax í upphafi varð okkur vel til vina hann tók mér með mínum kostum og göll- um enda varð ég aldrei í fari hans var við að hann léti ekki alla njóta sann- mælis. Pétur var mikill húmoristi og var fljótur að finna spaugilegar hliðar á mörgu sem sagt var og gert. Pétur var listfengur mjög og prýddu heim- ili hans margir fallegir gripir sem hann hafði gert og eins hefur hann gefið fjölskyldu sinni marga slíka gripi. Pétur lærði kjötiðn og var að ég best veit eftirsóttur í því fagi og starfaði hann við það meðan heilsa hans leyfði þá var hann og listakokk- ur og eru margar veislurnar sem hann hefur um dagana útbúið og sum veisluborðin hafa verið algjört lista- verk. Lífið lék þó ekki alltaf við Pétur og hluta ævi sinnar átti hann í erfiðri glímu sem þegar við kynntumst hann hafði náð undirtökunum á og sigraði að lokum. Sérstakur þráður var milli konu minnar og Péturs sem varð til þess að hann umgengumst við mest af systkinum hennar og vorum við au- fúsugestir á heimili hans og Gunnu hvenær sem við litum inn og á þetta og við um alla hans fjölskyldu og vini. Pétur var bóngóður mjög og nut- um við hjónin hjálpsemi hans í hvert skipti sem við báðum um eitthvað handtak þá var það ekki nema sjálf- sagt ef því varð viðkomið en hægt var að leita til hans með nánast hvað sem var svo handlaginn var hann og flink- ur að ekkert stóð fyrir honum eftir kaffibolla og vangaveltur. Nánast á hverju ári fóru þau hjón í sumarhús víðvegar um landið og ávallt fylgdi þeim stór hópur fólks sem nutu gestrisni þeirra hjóna í hví- vetna. Furðaði ég mig á því við fyrstu kynni hve þolinmóð þau væru að vera í sumarfríi en þó alltaf með fullt af gestum en þetta var Pétri eðlislægt og þegar maður kynntist honum bet- ur fór maður að skilja hversu vel hon- um leið í návistum við sína nánustu. Eftirminnilegast er fyrir mig nú er að hafa getað ferðast með þeim hjón- um og stendur sigling er þau hjónin fóru með mér fyrir tveim árum þar hæst var gaman að sjá hversu vel Pétur naut sín við að fræðast um það sem ég gat miðlað honum um þá staði sem við sigldum til og hversu ötull hann var við að spyrja. Þá fórum við saman til Spánar á síðasta ári og áttum saman yndislega daga þar í sólinni og hitanum en þetta var í fyrsta sinn sem þau Pétur og Gunna komu til þessa lands og keyrðum við mikið um á þessum dög- um sem við áttum þar saman og sáum meira en margir gera í mörg- um ferðum. Þessar minningar standa uppúr nú þegar ég sest niður til að setja stafkrók á blað. Síðast hitti ég Pétur 4. janúar er við sátum fjölskylduboð hjá bróður hans, þar kvöddumst við og hann óskaði mér góðrar ferðar og sagði eins og vanalega, við sjáumst og er ég viss um að við eigum eftir að sjást, þó síðar verði. Síðustu ár ævi sinnar var Pétur starfsmaður Strætó b.s. og var við skyldustörf þegar kallið kom svo óvænt og ótímabært. Að lokum vil ég þakka Pétri sam- fylgdina og votta Gunnu og öllum hans ástvinum mína innilegustu sam- úð og bið algóðan guð að styrkja þau og styðja í þeirri miklu sorg sem ótímabundið fráfall Péturs er þeim öllum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Í huga mér mun ég ávallt geyma minninguna um góðan dreng og góð- an vin. Ómar Karlsson. Kveðja frá Strætó bs. Það var okkur sem stöndum að Strætó bs. mikil harmafregn þegar ljóst varð að Pétur Sigurðsson vagn- stjóri hafði látist í umferðarslysi. Okkur setti hljóð við fregnina um skyndilegt og hörmulegt fráfall góðs félaga og samstarfsmanns. Sú stað- reynd var okkur einnig mikið áfall að í fyrsta sinn í hartnær 75 ára sögu Strætó og forvera þess, Strætis- vagna Reykjavíkur, hefði starfsmað- ur fallið frá þar sem hann var að sinna starfi sínu sem vagnstjóri. Pétur kom til starfa hjá Strætó fyrir fimm árum og bauð strax af sér góðan þokka. Hann reyndist okkur góður og traustur samstarfsmaður og félagi og var því vel liðinn í okkar hópi. Pétur hafði jafnframt til að bera það sem prýðir bestu menn í því mik- ilvæga þjónustustarfi sem hann gegndi. Hann var lipur og kurteis við samstarfsmenn og farþega, vand- virkur í starfi sínu á alla lund og setti öryggi sitt og farþega sinna ofar öðru. Við kveðjum Pétur Sigurðsson nú hinsta sinni með virðingu og vináttu í huga. Hans er sárt saknað úr okkar röðum. Missir fjölskyldu hans, vina og annarra aðstandenda er mikill. Við færum þeim innilegar samúðar- kveðjur. Fyrir hönd stjórnar og starfsfólks Strætó bs., Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri. Pétur bróðir mömmu er dáinn, ég varð sem lömuð við þær fréttir. Síðustu dagar hafa verið erfiðir og á ég erfitt með að trúa að Pétur frændi hafi dáið í bílslysi, hann var varkárasti bílstjóri sem ég hef nokk- urn tíma þekkt. Því miður fæ ég þessu ekki breytt og innst inni vil ég trúa því að skemmtilegt verkefni hafi beðið hans hjá æðri máttavöldum. Söknuðurinn er sár en ljúfar og skemmtilegar minningar um Pétur á ég í hjarta mínu. Elsku Gunna og Óli Pétur, megi guð og góðir englar styðja okkur í sorginni. Anna Björg. Það er meir af vilja en mætti að ég skrifa þessi fátæklegu orð um hann Pétur Sigurðsson sem fór svo snöggt. Ég sit hér og hugsa um allar minn- ingarnar um þig, það kemur bæði hlátur og grátur upp í hugann. Ég hef nú þekkt þig í mörg ár og hefði ég ekki vlijað missa af því. Þú varst bæði góður og skemmtilegur og stutt í grínið. Þú fékkst mig oft til að brosa en núna í gegn um tárin, sem renna niður á þetta blað er ég skrifa. En svona er nú lífið, maður lærir að lifa með minningunni. Elsku Pétur, ég á eftir að sakna þín og get ég ekki lengur leitað ráða hjá þér í sambandi við mat, veislur eða bara allt. Þú varst þúsundþjala- smiður, allt lék í höndunum á þér. Mikið var ég glöð þegar þú komst til mín og gafst mér mynd, sem þú bjóst til úr gifsi og sagðir að ég yrði að eiga mynd eftir listamann og fórst að hlæja, og gerðir bara grín að þessu. Það kom fyrir að við hittumst, þú og Gunna, í veislum hjá sameiginleg- um frænkum okkar, það var svo gott að sjá hvað þið Gunna voruð alltaf ánægð og glöð saman, þá var nú mik- ið spjallað, hlegið og talað um gamla daga. Þér leið svo vel síðustu árin, því það gekk allt upp hjá þér og þú varst svo ákveðinn í að láta það gerast, og líka gerðist. Elsku Pétur, ég gæti skrifað meira og lofað þig, en það var ekki í þínum anda að hlusta á lofyrði um þig, svo núna hætti ég, það er komið að leið- arlokum. Ég vona að þú hafir það gott í nýj- um heimkynnum og þú kíkir svo á okkur öll svona við og við og heldur verndarhendi yfir okkur hér á jörðu. Ég votta eiginkonu, móður, börn- um og öðrum ættingjum mína dýpstu samúð í þessari miklu sorg. Drottinn Guð nú fylgi þér, nú ertu í fallegum englaher, minning er ætíð í hjarta mér með þökk fyrir allt sem liðið er. Guð blessi minningu Péturs Sig- urðssonar og þakka ég honum sam- fylgdina. Soffía R. Ragnarsdóttir. PÉTUR SIGURÐSSON Elsku Pétur afi. Mér fannst gaman að vera með þér í fríum og heim- sóknum. Þú varst frábær maður og mér þótti mikið vænt um þig. Ég mun sakna þín alltaf. Þitt afabarn Lea Mist. HINSTA KVEÐJA  Fleiri minningargreinar um Pétur Sigurðsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Kjartan Pálmarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.