Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 58

Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 58
58 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jóna JakobínaJónsdóttir fædd- ist á Litluströnd í Mývatnssveit 31. desember 1923. Hún lést á heimili sínu á Langholts- vegi 139 hinn 11. janúar síðastliðinn. Hún var einkabarn Jóns Sigurðssonar frá Geirastöðum, f. 9. júní 1893, d. 25. febrúar 1982, og Védísar Jónsdóttur frá Litluströnd, f. 12. janúar 1885, d. 7. júní 1963. Jóna giftist 12. janúar 1946 Stefáni Sigfússyni frá Vogum í Mývatnssveit, f. 17. ágúst 1917, d. 10. mars 1999. Foreldrar hans voru Sigfús Hallgrímsson bóndi og organleikari í Vogum og kona hans Sólveig Stefánsdóttir frá Öndólfsstöðum í Reykjadal. Jóna og Stefán eignuðust fimm börn sem eru: 1) Jón organleikari, f. 5. júlí 1946, kvæntur Ólöfu Kol- brúnu Harðardóttur óperusöng- konu, f. 20. febrúar 1949. 2) Stein- gerður Védís stuðningsfulltrúi, f. 20. apríl 1949, gift Halldóri Torfa- garðyrkjuverkfræðingur, f. 1. júní 1961. Dóttir Ólafs með Hildi Hall- dórsdóttur, f. 1. jan. 1965 er Tinna, f. 10. feb. 1986 og sonur Ólafs með Lindu Björk Þormóðs- dóttur, f. 21. júlí 1968, er Hugi, f. 17. nóv. 1995. 5) Sólveig Valgerð- ur, f. 3. júní 1965. Sambýlismaður Hákon Páll Gunnlaugsson húsa- smíðameistari, f. 10. maí 1972. Börn hennar eru: a) Jóna Björk, f. 21. júní 1983, faðir Indriði H. Helgason, f. 24. apríl 1959, b/c) tvíburasysturnar Sólveig Jóhanna og Soffía Kristín, f. 21. ág. 1989 og d) Kolbrún Védís, f. 11. september 2000, faðir þeirra er Jón Pétur Líndal, f. 6. mars 1964. Jóna stundaði nám við Kvenna- skólann að Laugum. Um tíma bjó hún í Reykjavík en flutti alkomin í Voga í Mývatnssveit árið 1947. Hún var húsmóðir alla tíð. Hún var mjög félagslynd og starfaði í kvenfélögunum í Mývatssveit og í málfreyjufélaginu Flugan. Hún tók þátt í starfi aldraðra af lífi og sál bæði í Mývatnssveit og í Lang- holtskirkju. Síðustu fimmtán árin dvaldi hún að mestu á heimili Jóns sonar síns og Ólafar Kolbrúnar á Langholtsvegi 139 yfir vetrar- mánuðina en í Vogum á sumrin. Útför Jónu fer fram frá Reykja- hlíðarkirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 14. Minningarathöfn var haldin í Langholtskirkju í gær. syni jarðfræðingi, f. 10. júní 1951. Börn þeirra eru: a) Hrafn- hildur, f. 26. sept. 1976, gift Magnúsi Ragnarssyni, f. 29. apríl 1975. Sonur þeirra er Ísak, f. 28. nóvember 2005. b) Hjalti, f. 15. maí 1980, í sambúð með Völu Þórólfsdóttur, f. 1. mars 1980. Son- ur þeirra er Jökull, f. 23. júní 2005. c) Daði, f. 25. apríl 1986. 3) Jakob starfsmaður við Kröflu- virkjun, f. 29. des. 1954, kvæntur Eddu Stefánsdóttur hárgreiðslu- konu, f. 4. maí 1956. Börn þeirra eru: a) Guðrún Elísabet, f. 3. júlí 1977. Sambýlismaður Sigurður Áki Sigurðsson, f. 2. janúar 1979 Börn hennar eru: Harpa María, f. 26. nóvember 1995, Andrea Ylfa, f. 21. september 1999, faðir þeirra er Jóhann Benedikt Eðvarðsson, f. 26. nóv. 1976 og Tinna Katrín Sig- urðardóttir, f. 13. október 2005. b) Stefán, f. 14. jan. 1980. Sambýlis- kona Hilda Kristjánsdóttir, f. 17. október 1977. 4) Ólafur Þröstur Elsku mamma mín. Takk fyrir að ala mig í þennan heim. Takk fyrir að leiða mig fyrstu sporin. Takk fyrir að kenna mér muninn á réttu og röngu. Takk fyrir að flengja mig þegar ég átti það skilið. Takk fyrir að baka bestu kleinur í heimi og leyfa okkur krökkunum að háma þær í okkur beint úr pott- inum með helling af mjólk. Takk fyrir að kenna mér með þinni framkomu að sjá alltaf fyrst það jákvæða í fari hvers manns, en fyrirgefa brestina. Takk fyrir að vera alltaf til stað- ar hvort sem ég fékk fleiður, sár eða fór svo illa á hausinn að ég þurfti hjálp við að standa upp. Takk fyrir að segja mér frá barnæsku þinni, öllum uppátækj- unum og prakkarastrikum. Takk fyrir að vera börnunum mínum svona góð og skemmtileg amma. Takk fyrir að kenna mér að gera sperðla, slátur og aðrar dýrindis krásir úr blessaðri sauðkindinni. Takk fyrir að koma með mér í keppni um það hvort okkar gæti hrotið hæst og lengst yfir sjón- varpinu, skála svo í rauðvínstári, faðmast og bjóða góða nótt. Nú ert þú sofnuð svefninum langa. Kvaddir með friðsælan og áhyggjulausan svip, ...sofandi. Ég er sáttur, …en samt er þetta svo sárt. En minningin um þig og pabba er fögur og full af gleðistundum. Hún mun lifa áfram og þegar sársaukinn dvín verður gott að dvelja við þær hvenær sem færi gefst. Takk! Megið þið hvíla í guðs friði í faðmi hvort annars. Ykkar sonur, Ólafur Þröstur. Það var að vorlagi fyrir rúmum 30 árum. Frískir vorvindar léku um sveitina og það var ekki laust við að örlítillar taugaspennu gætti hjá undirrituðum sem nú stóð frammi fyrir því að hitta tilvonandi tengdaforeldra sína, Jónu og Stef- án, í fyrsta sinn. Farið var upp í eldhús í Vogum. Þar var hlýtt, óendanlega hlýtt. Ekki vegna þess að húsið væri kynt meira en önnur hús, eða það betur einangrað. Heldur vegna þess að þar bjó fólk með stóran faðm og hlýtt hjarta. Eiginlega fannst manni að maður hefði alla tíð þekkt þetta fólk og að maður ætti þarna heima. Þannig var tekið á móti öllum sem komu í Voga til Jónu og Stef- áns. Það var ekki spurt um aldur, ættgöfgi eða skoðanir. Umsvifa- laust var öllum boðið inn og um- vafðir sömu hlýjunni. Og öll heims- ins vandamál voru leyst. Stundum var það nýbakað kaffibrauðið sem var lausnin, stundum faðmlagið eða koss á kinn. En mest um vert var að það var hlustað. Og ekkert leyndarmál, stórt né smátt var nokkru sinni látið uppi. Jóna hafði yndi af mannfagnaði. Þar naut hún sín vel og var hrókur alls fagnaðar. Mikið var spaugað og þá jafnan gert mest grín að sjálfum sér. Aldrei hallað réttu máli og aldrei lagt illt orð til nokk- urs manns. Málstaður lítilmagnans ávallt tekinn. Það var komið kvöld. Að venju hafði verið gestkvæmt og framund- an var erilssamur dagur í starfi aldraðra í Langholtskirkju. Það var slegið á létta strengi eins og jafnan áður og liðnir atburðir rifj- aðir upp. Morguninn eftir voru minning- arnar einar eftir. Þær eru hlýjar. Þær munu orna þeim sem kynntust Jónu um ókomin ár og veit yl og gleði í hug og hjarta. Guð blessi alla þá sem kynntust Jónu og geyma minninguna um hana í hjarta sér. Halldór Torfason. Nú ertu komin til afa, elsku amma mín. Ég er sorgmædd og sakna þín, meira en orð fá lýst. Ég var ekki tilbúin. Lífið verður svo tómlegt án þín, þú varst alltaf stór partur af lífi mínu. Þú verður það líka áfram. Ég á ógrynni af góðum og fal- legum minningum um þig amma mín. Svo á ég líka fullt af fyndnum minningum líka. Þú varst nefnilega dálítill prakkari í þér, fannst upp á alls konar sniðugu og sagðir líka margt skondið og skemmtilegt. Við frænkurnar höfum oft gantast með að gefa út bók með uppátækjum og orðsnilld ömmu Jónu, það yrði sko flott bók. Þú varst svo góð og skemmtileg, engri lík. Þvílík forréttindi að hafa haft þig svona lengi, svona hressa. Ég er þakklát fyrir svo margt. Þakklát fyrir að stóru stelpurnar mínar fengu að kynnast þér og njóta samvista við þig. Þakklát fyr- ir að þú gast hitt Tinnu Katrínu og verið í skírninni hennar. Þakklát fyrir allar samverustundir okkar og umfram allt þakklát fyrir allt sem þú varst mér. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Minningarnar mínar um þig mun ég geyma í hjartanu mínu alla ævi. Megi góður Guð varðveita þig, amma mín. Þín, Guðrún Elísabet. Sá dagur mun koma að ég á ekki aftur að vakna, aldrei framar að gleðjast, þrá eða sakna og sorg mín og angist og allt það sem ég hefi kviðið, í óminnisdvalanum týnist, því nú er það liðið. Og ósigrar mínir og örvænting hverfa með mér. En áfram um jörðina skínanadi dagsljóminn fer af blessaðri sólinni. Aðrir til annríkis vakna, unnast og gleðjast, missa, þjást og sakna. Og töp mín og glöp til gleymskunnar hverfa fljótt. Svo gjöfult er lífið og voldug hin eilífa nótt. (Jakobína Sigurðardóttir.) Kveðja Linda og Hugi. Elsku amma er farin, hvernig gat það gerst, hún var ein af þeim sem áttu aldrei að fara frá okkur. Við minnumst ömmu okkar, bæði sem bestu ömmu í heimi og góðs vinar því það var hægt að tala um allt við hana. Hún dæmdi engan, talaði aldrei illa um neinn og tók öllum vel. Það var svo gott að hafa ömmu þegar eitthvað bjátaði á, hún gat alltaf huggað mann og lát- ið manni líða betur. Hún var alltaf í því að hressa mann við og tók regluleg út úr sér tennurnar til að láta okkur fara að hlæja og sagði að þetta gerði hún bara fyrir okkur. Hún var líka mik- ill grallari, hún amma okkar, og það eru til endalausar sögur af prakkarastrikum hennar og hún átti það til að vera ansi orðheppin. Það var nú ekki sjaldan sem við hjálpuðum henni að baka kleinur þegar við vorum yngri og maturinn hennar ömmu var bestur og þar á meðal grasystingurinn og hafra- grauturinn. Það á eftir að verða skrítið að koma í sveitina þegar amma er far- in, hún beið alltaf í eldhúsglugg- anum eftir að við kæmum og fylgd- ist vel með. Þegar við komum sáum við hana í glugganum og hún kom svo hlaupandi út að taka á móti okkur með kossum og knúsum. Það á eftir að vera erfitt að koma í Voga og engin amma í glugganum. Við eigum eftir að sakna þín óendanlega mikið en við vitum að nú ertu komin til afa og nú verðið þið saman að passa okkur. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson.) Hvíldu í friði, elsku amma. Jóna Björk, Sólveig, Soffía og Kolbrún Védís. Elsku amma mín. Með söknuði og þakklæti í huga sest ég nú niður til að rita til þín minningarorð. Af mörgu er að taka en samt er svo erfitt að koma því í orð sem mig langar til að segja. Ég man duglegu ömmu sem vaknaði alltaf á undan öllum til að elda graut og taka til slátur og lýsi fyrir þá sem gistu í gömlu Vogum. Ég man skrýtnu ömmu sem hraut yfir sjónvarpinu þrátt fyrir að hún væri vakandi. Ég man forvitnu ömmu sem var í eldhúsglugganum að fylgjast með umferðinni fyrir utan. Ég man laumupúkann ömmu sem sendi einu sinni tvö barnabörn fleiri ferðir um búðina til að sækja hluti sem var ekki nauðsynlegt að kaupa inn svo hún gæti keypt sold- ið sem sumir máttu ekki sjá. Ég man fyndnu ömmu sem hermdi eftir körlunum í Vogum þegar hún sagði sögur af þeim. Ég man ömmu sem var stundum svo mikið að flýta sér að segja margar sögur í einu að orðin komu ekki í réttri röð upp úr henni. Ég man eftir uppátækjasömu ömmu sem stundum tók útúr sér tennurnar til að skemmta okkur barnabörnunum. Ég man eftir prakkaranum ömmu sem ryksugaði skottið á kettinum til að athuga viðbrögðin. Ég man eftir smitandi hlátri ömmu. Ég man ömmu sem skildi og fyr- irgaf uppátækjasemi í krökkum. Ég man ljúfu ömmu sem kom alltaf inn í herbergi þegar ég gisti í Vogum og hélt í hendina mína á meðan hún fór með bænir áður en hún bauð góða nótt. Ég man hlýju ömmu sem gat huggað lítinn myrkfælinn strák. En umfram allt, elsku amma mín, man ég geislandi bros þitt sem ávallt kemur til með að ylja okkur sem vorum svo heppin að fá að lifa með þér. Vertu sæl amma mín og takk fyrir allar stundirnar og allt sem þú hefur gefið mér. Kveðja, Stefán Jak. Elsku besta langamma. Þú varst svo góð og við söknum þín svo mikið. Við vitum að núna ertu hjá langafa Stefáni hjá Guði og að ykkur líður vel saman. Þú bakaðir svo góðar lummur og steiktir bestu kleinur í heimi. Það verður skrítið að koma í Voga og þú verður ekki þar til að spjalla við okkur og spila við okk- ur. Við munum þig með gleði og hlýju í hjörtum okkar þó að við séum sorgmæddar núna. Guð geymi þig, þínar langömm- ustelpur Harpa María og Andrea Ylfa. Það er erfitt að vera stödd í út- löndum þegar sorgarfregnir berast að heiman. Við Jóna mágkona mín vorum vissulega búnar að kveðjast og biðja Guð að gæta hvor ann- arrar en ekki fékk ég tilfinningu fyrir að það væri í síðasta sinn. Við Jóna vorum nánar vinkonur til margra áratuga og bar aldrei skugga þar á. Við vorum saman með heimilishald í fjögur ár og síð- an hlið við hlið í þrjú ár í viðbót í Vogum. Við skiptum með okkur verkum en strax kom í ljós að ég kunni lítið en Jóna allt. Þá skiptum við aftur og öðruvísi og þá gekk allt upp. Þegar ég flutti í Stuðla urðu mamma og pabbi að mestu í um- sjón Jónu. Þau voru þá orðin öldr- uð og lasburða. Það sögðu þau mér að á hverjum morgni hefði hún komið inn til þeirra, boðið glaðlega góðan dag og sest á rúmstokkinn og sagt nokkur hressileg morg- unorð sem hefðu styrkt þau og glatt og gefið þeim kraft til að tak- ast á við nýjan dag. Jóna tók Gunn- ar minn í fangið nýfæddan og vaggaði honum í ró. Hún reyndist honum alltaf sem önnur móðir og minntist hann þess með nafngjöf á elstu dóttur sinni. Þeir sem eru góðir og umhyggjusamir við börn og aldrað fólk eru góðar manneskj- ur og það var Jóna svo sannarlega. Jóna hafði að mörgu leyti mjög sérstaka kímnigáfu og var mikið fyrir sprell og smáhrekki en allt var það græskulaust. Þegar hvers- dagslífið var grátt og tilbreyting- arlítið átti Jóna það til að taka til sinna ráða. Hún setti af stað at- burðarás, sviðsetti gestakomur og fleira og gat alltaf fengið einhvern í lið með sér til að gera hlutina trú- verðuga, meira að segja mömmu. Niðurstaðan var alltaf hlátur og glaðværð. Þegar við á seinni árum vorum einar í húsunum okkar að vetrar- lagi fylgdist Jóna vel með mér. Hún aðgætti ljósin, hvort bíllinn væri heima og hringdi ef henni fannst eitthvað athugavert. Það var gott að vita af þessu. Elsku Jóna mín, ég heiti því að koma í vornæturkyrrðinni og krjúpa við beðinn þinn. Ég sendi innilegar samúðaróskir til allrar fjölskyldunnar frá Kanaríeyjum. Nína Sigfúsdóttir. Í huga mínum á ég gullakistu og í henni perluband sem á eru þræddar perlur minninga minna, hver og ein perla hefur sína eigin lögun og lit en allar eiga það sam- eiginlegt að þær minna mig á ein- hvern sem mér hefur þótt vænt um. Ein af þessum skínandi perl- um tilheyrir Jónu sem kvödd verð- ur í dag. Ungamamma sem breiddi vængi sína yfir mig þegar ég ung og ófrísk af mínu fyrsta barni ílengd- ist í Vogum hjá þeim Jónu og Stef- áni. Þau heiðurshjón urðu mér sem aðrir foreldrar sem þá og síðar var gott að leita í faðminn á, fyrir það gat ég aldrei fullþakkað, en sem smá þakklætisvott nefndi ég þó frumburðinn í höfuðið á móður- bróður mínum. Það er gott að geta brosað í gegnum tárin en það get ég þegar ég hugsa til þessarar vinkonu minnar, hún var svo heppin að hafa þær frænkur kímni og glaðværð sem samferðakonur sínar á lífsleið- inni. Nú sem eftirleiðis verður því hægt að tölta í minningarsjóðinn og rifja upp gullkornin og ambög- urnar sem frá henni komu og brosa. Þagna sumars lögin ljúfu litum skiptir jörðin fríð. Það sem var á vori fegurst visnar oft í fyrstu hríð. Minning um þann mæta gróður mun þó vara alla tíð. Viltu mínar þakkir þiggja þakkir fyrir liðin ár. Ástríkið og umhyggjuna er þú vina þerraðir tár. Autt er sætið, sólin horfin sjónir blindna hryggðar-tár. Muna skulum alla ævi, ástargjafir bernsku frá. Þakka guði gæfudaga glaða, er móður dvöldum hjá. Ein er huggun okkur gefin aftur mætumst himnum á. (Höf. óþ.) Ég trúi að heimkoman hafi verið góð og sé fyrir mér Stefán taka á móti henni, snara henni á bakið til að létta henni sporin og halda létt- stígan af stað, og nú þarf hann ekk- ert að setjast niður og hvíla sig við mótorhúsið. Samúðarkveðjur sendum við fjölskyldan til allra ástvina Jónu. Með virðingu og þökk Sólveig Pétursdóttir. JÓNA JAKOBÍNA JÓNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.