Morgunblaðið - 20.01.2006, Side 65
Skriðuklaustri, Hólum, Þingvöllum,
Keldudal, Reykholti, Gásum, Kirkjubæj-
arklaustri og Skálholti. Auk þess eru
kumlastæði um land allt rannsökuð.
Þjóðminjasafn Íslands | Boðið upp á
fjölbreytta fræðslu og þjónustu fyrir
safngesti. Þar eru nýstárlegar og vand-
aðar sýningar auk safnbúðar og kaffi-
húss. Opið alla daga nema mánudaga kl.
11–17.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Hörður G. Ólafsson spil-
ar og syngur í kvöld.
Kringlukráin | Hljómsveitin Tilþrif spilar
í kvöld.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Sér-
sveitin leikur fyrir dansi í kvöld. Frítt inn
til miðnættis.
Mannfagnaður
Akógessalurinn | Þorrablót brottfluttra
íbúa Patreksfjðar og Rauðasandshrepps
verður haldið á bóndadaginn 20. janúar
í Akógessalnum, Sóltúni 3. Húsið opnað
kl. 19, borðhald hefst kl. 20. Nánari upp-
lýsingar og miðapantanir hjá Dóra Jóh. í
síma 661 8133 og Öddu í síma
422 7022.
Broadway | Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins
verður haldið í Broadway á Hótel Íslandi
27. janúar nk. Veislustjóri: Ólafur Helgi
Kjartansson. Bjarni Ara og Helgi Björns
skemmta. Ræðumaður: Elín Alma Art-
húrsdóttir, Saga Class leikur fyrir dansi.
Forsala aðgöngumiða verður á Broad-
way 21. jan. kl. 14–16.
Þingeyingar í Reykjavík | Þingeyingar í
Reykjavík halda þorrablót í Félagsheimili
Seltjarnarness 21. janúar. Húsið opnað
kl. 19 og skemmtunin hefst kl. 20.
Skráning og upplýsingar hjá Hildi í síma
691 6045 og Kristjönu í síma 844 4912.
Fyrirlestrar og fundir
Þjóðmenningarhúsið | 21. janúar kl. 14
verður fjallað um þá rithöfunda sem
urðu samferða Halldóri Laxness upp á
nóbelsverðlaunapall á sjötta áratug síð-
ustu aldar. Árni Bergmann rithöfundur
hefur tekið saman og Arnar Jónsson
leikari flytur með honum
Fréttir og tilkynningar
Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið er á móti
matvælum, fatnaði og leikföngum alla
miðvikudaga kl. 13–17. Úthlutun matvæla
er alla miðvikudaga kl. 15–17 í Eskihlíð
2–4 v/Miklatorg. Þeir sem vilja styðja
starfið fjárhagslega geta lagt inn á
reikning 101-26-66090 kt. 660903-
2590.
Frístundir og námskeið
Alþjóðahúsið | Námskeið í arabísku
hefst 23. janúar og lýkur 27. febrúar.
Kennt verður á mánudögum kl. 16.30–18,
í Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18. Kennari
er Amal Tamimi. Takmarkaður fjöldi.
Skráning á amal@ahus.is eða í síma
530 9308. Verð: 25.000 kr.
Maður lifandi | Námskeið í hláturjóga
með styrkjandi ívafi verður 21. janúar kl.
11.30–13. Námskeiðið hentar öllum.
Kennari er Ásta Valdimarsdóttir hlát-
urjógaleiðbeinandi. Upplýsingar og
skráning í síma 899 0223 eða á
asta.valdimarsdottir@c2i.net.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 65
DAGBÓK
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30. Ath. Bingó fellur niður í dag
vegna þorrablóts.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, frjálst að spila í sal.
Dalbraut 18 - 20 | Minnum sér-
staklega á Tungubrjóta alla mánu-
daga kl. 13.30, félagsvist alla þriðju-
daga kl. 14, söng alla fimmtudaga kl.
14. Skráning er hafin á myndlist-
arnámskeið sem hefst. 31. jan kl. 9–
12. Þorrablótið er 3. feb. Dagskráin
send heim sé þess óskað.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, kl. 13–
16. Námskeið I í postulínsmálun, Sig-
urbjörg Sigurjónsdóttir leiðbeinir.
Kaffiveitingar að hætti FEBÁ. Auður
og Lindi annast akstur, sími
565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gjábakka. Brids í Gjábakka í
dag kl. 13.15.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Fræðslufundur í Ásgarði Stangarhyl
4, í dag kl. 15. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir upplýsir á fundinum, hver er
stefna Samfylkingarinnar í málefnum
aldraðra. Fyrirhugað er að námskeið í
framsögn og upplestri hefjist 7. febr-
úar, leiðbeinandi Bjarni Ingvarsson.
Skráning og uppl. í síma 588 2111.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Vefnaður kl. 9, leikfimi kl. 10.45.
Gleðigjafarnir syngja kl. 14–15 27. jan
og 10. og 24. febr. Bingó kl. 14 20.
jan., 3. og 17. febr.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Op-
ið í Garðabergi kl. 12.30–16.30. Fé-
lagsvist í Garðabergi kl. 13 á vegum
FEBG og FAG. Slökunarjóga og teygj-
ur kl. 12. Bútasaumur kl. 13.30 í
Kirkjuhvoli.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a. bókband. Kl.
10.30 létt ganga um nágrennið. Frá
hádegi spilasalur opinn, vist, brids,
skák. Miðvikud. 25. jan.er farið á list-
sýningar í Gerðarsafni í Kópavogi,
lagt af stað kl. 13.30, skráning hafin.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
aðstoð við böðun, smíðastofan opin.
Þorramatur í hádeginu og kl. 14 verð-
ur lesið upp úr þjóðsögunum. Kaffi-
veitingar kl. 15. Allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 Kaffi, spjall,
dagblöðin. Almenn handavinna. Út-
skurður. Baðþjónusta, fótaaðgerð
(annan hvern föstudag). Hárgreiðsla.
Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14.45 bóka-
bíll. Kl. 15 kaffi. Kl. 14 bingó.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Leikfimi kl. 11.30. Tréskurður kl. 13.
Brids kl. 13. Boccia kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu kl. 9–12, postu-
línsmálning. Böðun fyrir hádegi.
Hæðargarður 31 | Minnum á nám-
skeið í ljóðagerð sem hefst mán. 23.
jan. kl. 16. Framsagnarhópur þriðju-
daga/opinn tími og miðvikudags/
framhaldshópur kl. 10–12. Tölvu-
námskeið kl. 13 laugard. Þorrablótið
er 27. jan. Sendum dagskrána í pósti
eða netbréfi sé þess óskað.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlistar
námskeið, kl. 10 ganga, kl. 9 opin hár-
greiðslustofa, sími 588 1288, kl. 14
leikfimi, kl. 9 smíði.
SÁÁ félagsstarf | Fluguhnýting-
arnáskeið verður haldið í Síðumúla
3–5 föstudag, laugardag og sunnu-
dag og hefst kl. 17. Verð kr. 4000.-
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30 árdeg-
isverður. Kl. 13.30 sungið við flygilinn
við undirleik Þorleifs. Kl. 14.30–16
dansað við lagaval Þorleifs Ein-
arssonar harmonikkuleikara. Vöfflur
með rjóma í kaffitímanum.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9. Leirmótun kl 9. Hárgreiðsla kl. 9.
Morgunstund kl. 9.30, fótaaðgerð-
arstofa kl. 9.30, leikfimi kl. 10. Bingó
kl. 13.30, allir velkomnir.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10–12. Kaffi og létt spjall.
Hallgrímskirkja | Starf með öldr-
uðum þriðjudaga og föstudaga kl. 11–
14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Kirkjuskólinn í Mýrdal | Munið sam-
veruna í Víkurskóla laugardag kl.
11.15–12. Söngur og sögur. Gleði og
gaman. Hittumst hress og kát.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Fyrirbæn og einnig tekið við bæn-
arefnum. Kaffisopi í safnaðarheim-
ilinu á eftir. Sr. Gunnar Björnsson.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Úr bréfi LeopoldsMozarts, föðurWolfgangs, til Lor-
enzar Hagenauers í Salz-
burg. Leopold var á tón-
leikaferð með
undrabarnið sitt, sex ára
gamalt, og stóru systurina
Nannerl, ellefu ára, en
hún var líka undrabarn.
Vínarborg, 16. október 1762
…Við komum til Ibbs
um hádegi á þriðjudag.
Wolfgang litli lék svo vel á
orgelið að grámunkarnir
hættu snæðingi og hóp-
uðust um hann til að
hlusta á orgelleikinn og
féllu í stafi af undrun…
…Við eigum það Wolf-
gang að þakka að við kom-
umst hjá því að greiða
vegtollinn. Hann sýndi
verðinum klaverið sitt og
lék fyrir hann menúetta á
litlu fiðluna sína…
…Óðara en það fréttist
að við værum stödd í Vín-
arborg, barst okkur boð
um að koma til hall-
arinnar… Hér er ekki
tími til að geta annars en
þess að hátignirnar tóku
okkur svo forkunnar vel
og náðarsamlega að menn
munu halda það skrök-
sögu, þegar ég segi frá
því. En svona var það.
Wolfgang litli þaut í fang-
ið á keisarafrúnni, vafði
örmunum um háls henni
og kyssti hana. Í stuttu
máli, við dvöldum við hirð-
ina í þrjár klukkustund-
ir…
Í gær færði féhirðir
keisarans okkur tvennan
fatnað frá keisarafrúnni;
handa snáðanum og telp-
unni. Þegar boðið kemur,
verða þau að koma til hall-
arinnar og mun féhirð-
irinn þá sækja þau…
19. október 1762
…Langar yður að vita
hvernig fötin hans Wolf-
gangs eru? Þau eru úr fín-
asta klæði, fjólubláu.
Vestið er úr silki í sama lit
– jakki og vesti hvort
tveggja bryddað breiðum,
gylltum borðum…
Íslensk þýðing:
Árni Kristjánsson
Þinn
einlægur
Amadé
Wolfgang
Amadeus Mozart
27. janúar 1756
5. desember 1791
MOZART MOLAR
Nýjasta hefti Ritsins, tímaritsHugvísindastofnunar Há-skóla Íslands, er komið út.
Ritið samanstendur af greinum
fræðimanna úr ólíkum geirum sem
fjalla um tiltekið viðfangsefni sem
því er valið hverju sinni. Þannig
voru viðfangsefnin í síðustu tveimur
Ritum til dæmis „Falsanir“ og „Orð
og mynd“, og nú er þema þess „Út-
lönd“, þar sem tekist er á við sam-
band menningarheima á ýmsan
máta, ímyndir og sjálfsmyndir
þjóða.
Sem dæmi um greinar í Ritinu aðþessu sinni má nefna grein
Kristínar Loftsdóttur mannfræðings
sem fjallar um ímynd Afríku á Ís-
landi á 19. öld og hvernig sú ímynd
kallast á við ímynd hins sjálfstæða
eyríkis, Íslands, sem þá var í fæð-
ingu. Einnig má nefna greinina „Ís-
lenska og enska. Vísir að greiningu
á málvistkerfi“ eftir Kristján Árna-
son þar sem hann leggur út af ný-
legri könnun á viðhorfum Íslendinga
til ensku og spyr hvort staða íslensk-
unnar í menningu og sjálfsmynd
landsmanna sé að breytast. Margir
sérlega fróðlegir punktar koma
fram í þeirri grein. Einnig fjallar
Hólmfríður Garðarsdóttir í grein
sinni um staðlaðar kvenímyndir í
suður-amerískri bókmenntahefð og
vekur athygli á því hvernig þær
megi rekja til landvinninga- og
heimsvaldastefnu fyrri alda.
Þá eru í þessu hefti Ritsins birtir
bókarkaflar eftir tvo prófessora við
Harvard-háskóla, stjórnspekinginn
Seylu Benhabib og bókmenntafræð-
inginn Homi K. Bhabha, en í þeim er
meðal annars leitast við að svara því
hvernig bregðast eigi við þeim
árekstrum sem óhjákvæmilega
verða í samfélagi fólks sem kemur
úr ólíkum menningaraðstæðum – og
jafnframt spurt hvernig samfélagið
njóti góðs af blöndunni, hvernig hún
verði aflvaki nýrrar skapandi menn-
ingar.
Sem sagt; fjölbreyttar greinar
sem snúa að sama máli.
Að mínu viti er þetta afar þarftviðfangsefni hjá Ritinu. Hug-
takið „útlönd“ og þar af leiðandi
einnig „útlenskur“ eru hugtök sem
þarfnast nánari skoðunar í hinu fjöl-
menningarlega samfélagi sem Ís-
land er orðið; óhjákvæmileg og já-
kvæð þróun.
Gott dæmi um það eru ýmsir
menningarviðburðir sem verða í
boði um helgina. Hægt væri að byrja
daginn á morgun á því að skoða og
kynnast íslenskum þjóðbúningum í
opnu húsi hjá Heimilisiðnaðarfélagi
Íslands, en skella sér að því loknu í
Háskólabíó á japanska fjöl-
skylduhátíð og drekka te, syngja ka-
raoke og gera origami. Þá væri
hægt að skella sér á afar vinsælt
tangóball að argentískum hætti í
Þjóðleikhúskjallaranum um kvöldið
og fram á nótt, en forsvarsmenn
kvöldins í Tangófélaginu telja að Ís-
land sé að komast á kortið sem al-
vöru tangóland. Og svo mætti enda
helgina á að sitja málþingið „Staða
málsins“, sem fjallar um íslenska
tungu, í Norræna húsinu á sunnu-
dag.
Hvað er nú íslenskt af þessum við-
burðum, og hvað er útlenskt? Maður
spyr sig. Það fer einfaldlega eftir því
hvaða merkingu hugtakið „út-
lenskt“ hefur. Og það er þörf að
ræða.
Útlenskt,
já takk
’Hugtakið „útlönd“ ogþar af leiðandi einnig
„útlenskur“ eru hugtök
sem þarfnast nánari
skoðunar í hinu
fjölmenningarlega
samfélagi sem
Ísland er orðið.‘
AF LISTUM
Inga María Leifsdóttir
Íslenskir þjóðbúningar.
ingamaria@mbl.is
PÉTUR Bjarnason myndhöggvari
opnaði fyrir skömmu sýningu á 20
höggmyndum steyptum í brons í
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar.
Pétur nam myndlist við skúlptúr-
deild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands og við Fachhochschule
Aachen í Þýskalndi og skúlptúr við
Nationaal Hoger Instituut voor
Schone Kunsten í Antwerpen, Belg-
íu og hefur tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum, hér á landi, í Bruss-
el, Antwerpen og New York.
Pétur hefur verið valinn til að
vinna að mörgum höggmyndum
sem reistar hafa verið víða. Svo
sem höggmyndina Farið á Ak-
ureyri,og höggmyndina Við Æg-
isdyr sem stendur við Ásgarð í
Garðabæ og vatnslistaverkið Upp-
spretta sem stendur við Vídal-
ínskirkju í Garðabæ. Tvær högg-
myndir gerði hann í tilefni 50 ára
stjórnmálasambands Íslands og
Bandaríkjanna, önnur var sett upp í
Reykjavík en hin í Miami á Flórída.
Vinnustofa Péturs er í Hafn-
arfirði en þar er hann með einu
málmsteypuna á landinu sem sér-
hæfir sig í steypu á listaverkum
með „lost-wax“ aðferð.
Safnið í Hafnarborg er opið alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 11:00
til 17:00 og sýningin stendur til 30.
janúar.
Sýning Péturs Bjarnasonar á Höggmyndum stendur yfir í Hafnarborg.
Höggmyndir í Hafnarborg