Morgunblaðið - 20.01.2006, Side 68

Morgunblaðið - 20.01.2006, Side 68
68 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MEÐLIMIR Nilfisk hafa upplifað á eigin skinni það sem þúsundir ungra bílskúrsrokkara hafa aðeins getað látið sig dreyma um. Einn góðan veð- urdag löbbuðu átrúnaðargoðin óboðin inn á æf- ingu, í þessu til- felli Dave Grohl og félagar úr Foo Fighters, og heilsuðu ekki bara með virktum heldur tóku og í hljóðfærin og djömmuðu með strákunum. Í kjölfarið hitaði Nil- fisk upp fyrir Foo Fighters í Laugardalshöll en sveitin hafði að- eins verið starfandi í nokkra mán- uði og vart búin að púsla saman heilu lagi. Síðan eru liðin um tvö og hálft ár og Nilfisk-liðar eðlilega þreyttir á endalausu Foo Fighters-tali. Heimsóknin var tvíeggjað sverð að mati liðsmanna, athyglin vel þegin að sjálfsögðu en leiðinlegt að vera fremur þekktur fyrir að þekkja Dave Grohl en að geta búið til al- mennilega tónlist. Nilfisk hefur því verið dugleg við spilamennsku undanfarin misseri og þáttur í að tosa sig upp úr „Foo“-feninu er einnig þessi hljómdiskur sem út kom skömmu fyrir jól. Tónlistin hér er meira og minna „beint af augum“ bílskúrsrokk og ágæt fyrir sinn hatt. Platan ber mörg einkenni byrjendaverks um leið og nóg er af sprettum sem réttlæta áframhaldandi hjakk og vonandi fleiri plötur. Já, Nilfisk lofar bara góðu og þótt platan sé æði misjöfn er nægilega mikið af ungæðislegum og sjarmerandi krafti til að gera hana þess virði. Aldur liðsmanna (um 17, 18 ár á að giska) og ævilengd sveitarinnar gerir það að verkum að sterkt skín í áhrifavaldana; Strokes, Zeppelin, Foo Fighters, Nirvana, Green Day, Incubus, Franz Ferd- inand og svo má telja; allar þær sveitir sem ungir rokkþyrstir menn leita hvað mest í og er hald- ið sem fastast að þeim, hvort held- ur af ljósvökum, meðbræðrum eða eldri bræðrum. „On display“ er þannig fínasta grugg, melódískt og haganlega uppbyggt. En eins og svo oft er með sveitir sem eru að stíga fyrstu skrefin í lagasmíðum er á tímabili eins og lagið ætli aldrei að enda – og það þó að það sé ekki nema tæpar fjórar mínútur. Margt hérna minnir á Hüsker Dü eða Leatherface; einslags „emo“ með þungarokk sem stoðgrind (eins og heyra má í „Murtur“). Í því lagi má finna ágætis gítarsóló sem hefði engu að síður mátt sleppa að ósekju. Melódískt innsæi hvað lagasmíðar varðar er þá oftast harla gott og gítarleikarar sveit- arinnar sýna oft þónokkur tilþrif og allt í allt er sveitin nokkuð þétt. Söngur er þó nokkuð hikandi á köflum og þegar á líður verður platan fulleinsleit. Platan er því dálítið upp og nið- ur eins og lesa má, lag eins og hið Green Day-lega „It’s fine“ nær aldrei flugi á meðan „I’m In love with my in-laws“ er hiklaust hið besta á plötunni, dýpra og flókn- ara en annað hér og vísar hugs- anlega til næstu skrefa sveit- arinnar. Frumburður Nilfisk er brota- kenndur en lofandi og ef rétt er haldið á spöðum er sveitin vissu- lega til alls vís. Ryksugan á fullu TÓNLIST Íslenskar plötur Nilfisk skipa þeir Jóhann V. Vilbergs- son (Jói Vaff), söngvari og gítarleikari, Víðir Björnsson (Viddi) gítarleikari, Sveinn Á. Jónsson (Svenni) trommu- leikari og Sigurjón Dan Vilhjálmsson (Sjonni Dan) bassaleikari. Petzi gefur út. Aðrar upplýsingar er ekki að finna í umslaginu en vitað er að platan var tekin upp í Stúdíó Sýrlandi af Axel Árnasyni. Nilfisk – Don’t run after your own apples  Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.