Morgunblaðið - 27.08.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.08.2006, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MATSNEFND um vatnsréttindi landeigenda að Jökulsá á Dal fórí vikunni í vettvangsferð á Fljótsdals- héraði. Í kjölfarið fer fram frekari gagnaöflun og ekki er búist við úr- skurði frá nefndinni fyrr en eftir ein- hverja mánuði. Friðbjörn Gunnarsson, lögmaður hjá Regula lögmannsstofu, sem unn- ið hefur fyrir landeigendur, sagði í samtali við Morgunblaðið að nefndin hefði skoðað vatnasvið þeirra áa sem væri verið að virkja með Kára- hnjúkavirkjun. „Jökulsá á Dal og hennar fjórar upptakakvíslir eru til skoðunar, ásamt Jökulsá á Fljótsdal, Kelduá og allar þær smáár sem á að virkja. Í matsnefndinni sitja fimm menn; lögmenn, verkfræðingar og hagfræðingar,“ segir Friðbjörn. Í kjölfar vettvangsferðarinnar verður farið í gagnaöflun. „Ég á ekki von á að málið verði tekið til úr- skurðar fyrr en seint í vetur. Ennþá er gagnaöflun í gangi og ekki séð fyrir endann á henni. Úrskurður verður vonandi kveðinn upp í vetur en þetta er opið í báða enda. Menn eru að vinna þetta sem best svo að sátt verði um málin.“ Landeigendur fara fram á 60 til 96 milljarða bætur vegna vatnsréttinda fyrir Kárahnjúkavirkjun. Lands- virkjun metur þessar bætur á 375 milljónir króna hið hæsta Forsendur útreikninga hafi breyst í kjölfar nýrra raforkulaga og þess að stofnkostnaður virkjunar- innar sé lægri en áætlun Lands- virkjunar gerði ráð fyrir, m.a. vegna hagstæðs gengis á undanförnum misserum. Landsvirkjun telur kröf- ur landeigenda óraunhæfar með öllu og byggir það mat á eldri fordæm- um, almennum lagasjónarmiðum og sérsjónarmiðum varðandi virkj- unina. Kröfur frá landeigendum við Lagarfljót kæmu ekki á óvart Friðbjörn segir að sér sé ekki kunnugt um að kröfur séu komnar fram á hendur Landsvirkjun frá landeigendum við Lagarfljót. „Það kæmi þó ekki á óvart að slíkar kröf- ur yrðu lagðar fram og lytu þá eink- um að eyðingu og eyðileggingu lands við hækkun vatnsborðs, þ.e.a.s. tún geta blotnað og þess háttar. Svo er ósvarað þeirri spurningu hvað verður um það vatn sem mun aukalega koma í Lagarfljót með til- færslu Jöklu og verður virkjanlegt, hvort sem það verður við Lagarfoss eða annars staðar, þ.e. hver eigi þau réttindi. Ég álít þó að það verði látið liggja á milli hluta í þessari lotu, enda er það einsdæmi og ekki verið leyst úr slíku ágreiningsmáli á byggðu bóli svo mér sé kunnugt um,“ segir Friðbjörn. Matsnefnd um vatnsréttindi skoðaði vatnasvið Jöklu Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is HILDUR Dungal, forstjóri Útlend- ingastofnunar, segir að stofnunin hafi ekki fengið inn á borð til sín mál þeirra erlendu kvenna sem verið hafa til umræðu að undanförnu að því leyti að upplýsingar um heimilisofbeldi hafi legið fyrir. Slíkar upplýsingar þurfi að liggja fyrir til að stofnunin átti sig á því hvernig málið sé vaxið, því komi upplýsingarnar ekki fram séu slík mál afgreidd samkvæmt lög- um. Hún segir það hins vegar geta komið til greina að konum, sem orðið hafi fyrir heimilisofbeldi og skilið við maka sinn af þeim sökum, verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum, eins og Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, lagði til í Morg- unblaðinu í fyrradag. Gissur taldi lík- legt að konurnar fengju atvinnuleyfi í kjölfarið, en Vinnumálastofnun sér um útgáfu atvinnuleyfa. „Það er eitt sem hefur slegið mig dálítið varðandi þessa umfjöllun alla að þessi mál hafa ekki komið inn á okkar borð. Það stendur ekki yfir brottvísunarferli af okkar hálfu varð- andi þessi mál. Við þurfum auðvitað að vita af svona málum til þess að geta tekið á þeim,“ segir Hildur og bætir við að fólk geti alltaf sótt um slík leyfi og borið við alls konar að- stæðum, sem séu rannsakaðar. „Grípa mætti til þessarar tegundar leyfis. Þarna er sveigjanleikinn í lög- unum. Það hefur verið mín skoðun að í stað þess að fara þá leið að setja sér- tæk undanþáguleyfi í lögin að nýta frekar þann sveigjanleika sem er í lögunum, t.d. varðandi þessi mann- úðarsjónarmið,“ segir Hildur og bendir á að við slíkar undanþágur mætti fella undir fleira en einungis heimilisofbeldi. Hildur segir að stofnunin taki slík mál ekki upp að eigin frumkvæði og hún tekur fram að ekki sé hægt að fullyrða fyrirfram að undanþágurnar eigi við í tilviki kvennanna. 3–4 leyfi verið veitt á árinu Dvalarleyfi á grundvelli mannúðar- sjónarmiða eru veitt nokkrum sinn- um á ári en Hildur segir það sjald- gæft að slík leyfi séu veitt. Alls hafa þrjú til fjögur slík leyfi verið veitt á árinu og hjá Útlend- ingastofnun eru nú nokkrar umsókn- ir um slík leyfi til meðferðar. Hildur segir að yfirleitt séu slík leyfi veitt í kjölfar umsókna um hælisleit sem ekki hafi verið talin uppfylla skilyrði og þá veitt í staðinn dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Atli Gíslason, varaþingmaður VG, flutti á vorþingi 2004 frumvarp sem fól í sér að sett yrði inn í lög um út- lendinga og lög um atvinnuréttindi útlendinga undanþáguákvæði þegar rekja má ástæður skilnaðar til ofbeld- is gagnvart erlenda makanum. Það myndi þýða að þegar dvalar- eða at- vinnuleyfi hafa verið gefin út á þeirri forsendu að viðkomandi sé í hjóna- bandi, féllu þau leyfi ekki fortakslaust úr gildi heldur yrði hvert tilvik metið. Vill frekar almenn ákvæði Þegar Hildur er innt eftir við- brögðum við tillögunum segist hún ekki telja eðlilegt að láta undanþágu- ákvæðin ná til ákveðinna hópa, held- ur sé betra að þau séu almenn. „Ég er hlynntari því að undan- þáguákvæði séu almenn til að und- anskilja ekki ákveðna hópa,“ segir hún og bendir á að það geti boðið hættunni heim um að aðrir hópar falli ekki undir slík ákvæði. „Séu ákvæðin almenn, fæst meiri sveigjanleiki í lögin og hvert tilvik er metið út frá einstaklingsgrundvelli.“ Segir dvalarleyfi af mannúðarástæðum koma til greina Sveigjanleiki er í lögunum Eftir Árna Helgasson arnihe@mbl.is Hildur Dungal Undanþágur mætti fella undir fleira en heimilisofbeldi. »Upplýsingar um heimilisofbeldiþurfa að liggja fyrir til að Út- lendingastofnun geti áttað sig á hvernig mál eru vaxin. »Dvalarleyfi á grundvelli mann-úðarástæðna eru veitt nokkrum sinnum á ári, en þó er sjaldgæft að slík leyfi séu veitt, þrjú til fjögur á þessu ári. » Séu ákvæðin almenn fæst meirisveigjanleiki í lögin og hvert til- vik er metið út frá einstaklings- grundvelli.“ Í HNOTSKURN List getur verið hættuspil þegar hún stuðar fólk. Þetta vita grafítílistamenn og því þræða þeir jafnan skuggana og stunda list sína í dimmum skotum í skjóli nætur. Það kom því flatt upp á ljósmyndara Morgunblaðsins þegar hann kom auga á þessa listamenn í porti vestur í bæ við iðju sína í dagsbirtunni. Þótt hann hafi brugðist hratt við voru listamennirnir sneggri og huldu andlit sín áður en hann náði smella af. Morgunblaðið/RAX Skuggalist í dimmu skoti FJÖGUR þúsund miðar verða seld- ir til íslensks almennings á leik ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu við Dani sem fram fer á Laug- ardalsvellinum hinn 6. september. Miðarnir eru nær uppseldir og ljóst er að eft- irspurnin er meiri en fram- boð. Geir Þor- steinsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, segir að skýringin liggi í því að hluti miða fari til danska knattspyrnu- sambandsins, hluti til styrkt- araðila KSÍ og svo var hluti seldur beint til fyr- irtækja. „Það eru um 9.600 miðar á þennan leik. Auk þeirra 4.000 sem við höfum selt á netinu til almenn- ings munu væntanlega eitthvað um 900 ganga til danska knattspyrnu- sambandsins BBU og 2.000 til styrktaraðila KSÍ. Svo seldum við íslenskum fyrirtækjum, sem hafa haft samband við okkur, tæplega 2.000 miða,“ segir Geir. „Þetta eru smærri og stærri fyrirtæki sem eru að skipuleggja ýmsar uppá- komur í tengslum við leikinn og eiga það mörg sameiginlegt að vera í viðskiptasambandi við Dani,“ bætir hann við. Geir segir að viðureignin við Dani verði stórleikur og þegar svo sé háttað sé eftirspurn yfirleitt meiri en framboð. „Við hefðum léttilega getað selt 20.000 miða,“ segir hann og býst við svipaðri eft- irspurn þegar Íslendingar mæta Svíum á Laugardalsvelli í október. Stór hluti miða á Danaleikinn seld- ur fyrirtækjum Eiður Smári Guðjohnsen TILKYNNING barst um klukkan átta í gærmorgun um að mikinn reyk bæri frá gæsluvelli við Heiðaból í Keflavík. Þegar lög- regla og slökkvilið komu á stað- inn var töluverður eldur í húsinu og mikill reykur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni gekk slökkvistarf vel en um klukkustund tók að ráða niðurlögum eldsins. Tveir slökkviliðsbílar frá Brunavörnum Suðurnesja fóru á vettvang. Rannsókn á upphafi brunans stendur yfir en grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Húsið er mjög illa farið eft- ir brunann. Bruni á gæsluvelli í Keflavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.