Morgunblaðið - 27.08.2006, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Benidorm í ágúst.
Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar
þú gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarauka á frábærum kjörum
á einum vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Benidorm
31. ágúst
frá kr. 29.990
Síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. að lágmarki 2
í herbergi/stúdíó/íbúð í viku, 31. ágúst.
TRÚLEGA verða þrestir, sem koma
við í höfuðborginni á leið sinni til
vetrarstöðva sinna í útlöndum, færri
í ár en undanfarin ár. Skýringin felst
í slæmri afkomu mófugla vegna
hrets sem gerði víða um land síðast-
liðið vor sem hjó skörð í marga
fuglastofna. Þrestir eru vanir að
koma við í borginni í stórum hópum
áður en þeir halda af landi brott og
gæða sér á berjum í görðum. Reyni-
berin eru í miklu uppáhaldi og
hreinsa þeir venjulega þá uppskeru
upp að hausti. Skógarþrestirnir eru
á förum frá landinu allt frá ágústlok-
um og fram í nóvember. Í september
og október fara þeir um í stórum
hópum og éta ber þar sem þeir kom-
ast í þau. Um það leyti mun koma í
ljós hvort hretið hefur haft afger-
andi áhrif á þessa fiðruðu gesti höf-
uðborgarinnar.
Þungt högg
Ólafur Karl Nielsen, fuglafræð-
ingur á Náttúrufræðistofnun Ís-
lands, segir að svokallaðir heima-
fuglar, þ.e. fuglar sem halda sig allt
sumarið í borginni og verpi þar, séu
líklega álíka margir og undanfarin
ár. „Aragrúi farfugla kemur svo í
borgina á haustin, mest þrestir sem
hafa orpið út á landi, og nýta sér hér
þá fæðuuppsprettu sem eru berin í
görðunum,“ segir Ólafur. „Það má
vel vera að sú umferð verði miklu
minni en verið hefur því þrösturinn
fór svo óskaplega illa út úr hretinu í
vor líkt og aðrir mófuglar. Mófuglar
drápust þúsundum ef ekki tugþús-
undum saman á Austurlandi, Norð-
urlandi og Norðvesturlandi í lok
maí. Þetta er eitthvert þyngsta högg
sem mófuglar hafa orðið fyrir í háa
herrans tíð.“
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Sólginn í berin Eftirlæti skógarþrastar eru reyniber og í ár virðist vera nóg um þau í görðum borgarinnar.
Munu færri þrestir
berjast um berin í borginni?
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
KARTÖFLUUPPSKERA víðast
hvar á landinu hefur verið þokkaleg
og mjög ræst úr undanfarnar vikur,
að því er fram kemur í samtölum við
þrjá kartöflubændur. Erlendar kart-
öflur eru víðast hvar búnar í versl-
unum og því nánast eingöngu íslensk-
ar kartöflur á boðstólum um þessar
mundir. Fyrstu kartöflurnar komu á
markað um 20. júlí og uppskeran um
þessar mundir fer beint á markað en
þeir bændur sem talað var við stefna
á að fara fljótlega að safna kartöflum í
hús fyrir veturinn.
Breyst á tveimur vikum
Sigurbjartur Pálsson, bóndi í
Skarði í Þykkvabæ, segir að sú góða
tíð sem verið hafi að undanförnu hafi
bjargað sumrinu.
„Fyrir tveimur vikum hefði ég
sennilega sagt að það yrði mjög lítil
uppskera en þetta lítur betur út núna
enda hefur verið óhemjugóð tíð að
undanförnu,“ segir Sigurbjartur og
telur stefna í ágætis sumar í það heila.
„Við skulum segja að þetta verði
þokkalegt í það heila.“
Sigurbjartur segir erfitt að segja til
um hve mikil uppskeran verði en
stefnt sé á 3–500 tonn. Góður hiti hafi
verið síðustu daga, allt að 12 gráðum á
nóttunni og allt að 20 gráðum á dag-
inn. Aðspurður um verð á kartöflum
segir hann það ásættanlegt en hafi
verið hærra þegar fyrstu kartöflurn-
ar komu á markað. 60–100 krónur séu
greiddar fyrir kílóið af kartöflum en
hann segir að bændur óttist að því
verði þrýst eitthvað niður.
Góð tíð á Seljavöllum
Helgi Egilsson, bóndi á Seljavöll-
um, segir að gengið hafi vel í heild og
uppskeran verið góð. Hann hafi byrj-
að um 20. júlí að taka upp kartöflur og
verið að síðan. Tíðin hafi verið góð, að
vísu hafi ekki verið mikil sól en hæfi-
leg væta. Helgi stefnir á að taka upp
um 400 tonn af kartöflum í ár.
„Þetta eru fallegar og heilbrigðar
kartöflur,“ segir Helgi og bætir við að
framundir miðjan september verði
tekið upp. „Nú er bara að fá góða
daga til þess að taka upp,“ segir hann.
Ágætis meðalár
Bergvin Jóhannsson, bóndi á Ás-
hóli í Eyjafjarðarsveit, segir að það
stefni í ágætis meðalár í uppskeru.
„Það hefur verið góð tíð að und-
anförnu eftir kuldann í vor og snjó-
komu. Það varð mildara í júní og svo
hefur tíðin haldist nokkuð stöðug.“
Fyrstu kartöflurnar á Áshóli voru
teknar upp um 10. ágúst í ár og verið
sé að taka upp kartöflur núna sem fari
beint á markað. Bergvin stefnir á að
taka upp um 300 tonn en af því magni
verði að jafnaði um 30% rýrnun.
Bergvin segist þó ósáttur við verðið
og kjör kartöflubænda á þessu svæði.
Þeir fái einungis um 30 kr. fyrir kílóið
af kartöflum í sinn hlut, dreifingarfyr-
irtækið 30 krónur og svo fari til versl-
unarinnar og skattsins um 100 krónur
af kílóverðinu, sem Bergvin segir
vera um 150–160 krónur út úr búð.
„Kartöflubændum hér á svæðinu
hefur fækkað verulega undanfarin ár
og af þeim sem eru eftir hérna eru
ýmsir sem eru að hugleiða að hætta,“
segir Bergvin og nefnir lágt verð og
lélega afkomu sem helstu ástæður lít-
illar nýliðunar í stéttinni.
Þokkaleg kartöfluuppskera hefur verið víðast hvar um landið í sumar
Góð tíð að undanförnu hefur
bjargað sumrinu í Þykkvabæ
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
MAGNÚS Á Ágústsson, garð-
yrkjuráðunautur hjá Bænda-
samtökum Íslands, segir að kart-
öflubændum hafi farið fækkandi
síðastliðin ár.
„Þetta hefur gerst hægt og ró-
lega og margir sem hafa haft
kartöflurækt sem aukabúgrein
hafa hætt því.“ Hann segir þró-
unina einkum birtast í því að þeg-
ar eldri kartöflubændur hætti taki
yngri kynslóðir ekki við, lítil nýlið-
un verði í greininni. Nokkuð sé
líka um að menn, sem kalla megi á
besta aldri, hætti ræktun og snúi
sér að öðru. Hann áætlar að um 60
aðilar séu í kartöflurækt en þar af
séu 20 sem kallast megi stórir
framleiðendur. Magnús segir suma
bændur hafa
stækkað við sig
en almennt séð
sjái menn lítil
sóknarfæri í
greininni. „Þetta
hefur ekki gerst
snögglega, ég myndi segja að þró-
unin hafi verið svona allavega síð-
astliðin áratug,“ segir Magnús.
Hann segir lágt skilaverð til
bænda helstu ástæðuna en það
hafi verið lækkandi. „Á sama tíma
hafa gæði kartaflna verið stöðugt
að aukast. Bændur fá minna fyrir
betri kartöflur núorðið.“ Með
bættri meðhöndlun, minni áburð-
argjöf og betri geymsluaðferðum
hafi gæðin aukist stórlega.
Bændur fá minna
fyrir betri kartöflur »
Nýjar íslenskar kartöflur komu
í verslanir um 20. júlí.
»Bóndi kveðst fá 30 kr. í sinnhlut af kílói, dreifingarfyr-
irtækið 30 kr. og búðin og skatt-
urinn fái um 100 kr.
»Lágu afurðaverði og lélegri af-komu er kennt um litla nýliðun
kartöflubænda.
Í HNOTSKURN
ÞORGERÐUR
Katrín Gunnars-
dóttir mennta-
málaráðherra hef-
ur undirritað
árangursstjórn-
unarsamning
menntamálaráðu-
neytis við Rann-
sóknarmiðstöð Ís-
lands (RANNÍS).
Hlutverk
RANNÍS er að veita faglega aðstoð
og þjónustu við undirbúning og fram-
kvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs
um vísindi, tækni og nýsköpun. Sam-
kvæmt tilkynningu frá menntamála-
ráðuneytinu er tilgangur árangurs-
stjórnunarsamninga að festa í sessi
samskiptaferli milli ráðuneytis og við-
komandi stofnunar, auk þess að draga
fram áherslur í stefnu og áætlunum.
Fela þeir í sér gagnkvæmar skyldur
samningsaðila vegna verkefna sem
falin eru stofnunum. Í samningunum
eru ákvæði er lúta að starfsmanna-
stefnu, jafnréttismálum, aðgengi að
stofnunum og upplýsingamálum. Þeir
breyta ekki ábyrgð ráðherra gagn-
vart Alþingi á starfsemi stofnananna
eða þeim stjórnsýsluskyldum sem
þeim eru ætlaðar lögum samkvæmt.
Samningur menntamála-
ráðuneytisins og RANNÍS
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
VEGABRÉF
Abrahams
Shwaiki, íslensks
ríkisborgara sem
stöðvaður var við
komuna til Tel
Aviv í Ísrael ný-
lega og snúið aft-
ur heim til Ís-
lands, var ekki
ógilt. „Vegabréfið hans var ekki
ógilt en það var búið að stimpla
komustimpil á það og hann síðan
ógiltur með öðrum stimpli,“ segir
Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri
utanríkisráðuneytisins. Abraham
fékk vegabréfið aftur þegar hann
kom til London og segir Pétur að
það sé í fullu gildi.
Vegabréf Abra-
hams í fullu gildi
ÖKUMAÐUR, sem grunaður er um
ölvun við akstur, ók bifreið sinni ut-
an í tengivagn flutningabíls þegar
bílarnir mættust á Strandaheiði
laust eftir miðnætti í fyrrinótt, að
sögn lögreglunnar í Keflavík. Eftir
áreksturinn hafnaði fólksbíllinn á
hvolfi utan vegar.
Ökumaðurinn, hollenskur karl-
maður á miðjum aldri, og kona sem
var farþegi í bílnum voru flutt á
sjúkrahús í Keflavík en meiðsli
þeirra reyndust ekki mikil.
Ölvaður maður ók
utan í tengivagn
ÖKUMAÐUR sem grunaður er um
ölvun velti bifreið snemma í gær-
morgun á Miðhúsabraut á Ak-
ureyri. Um kl. 18 í gær var ökumað-
ur handtekinn eftir að hafa keyrt á
tvo kyrrstæða bíla. Hann reyndist
ölvaður.
Bílvelta á
Akureyri