Morgunblaðið - 27.08.2006, Page 13
ÍAV óskar eigendum
húsanna við Perlukór 3
til hamingju með
viðurkenninguna, en allar
íbúðirnar eru seldar.
Verðlaunaperlur
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200www.iav.is
H
V
ÍT
A
H
ÚS
IÐ
/
SÍ
A
Úr umsögn Umhverfisráðs Kópavogs:
„ASK arkitektar og ÍAV – Íslenskir aðalverktakar fá viðurkenningu Umhverfisráðs 2006 fyrir
hönnun klasahúsanna að Perlukór 3.
Klasahúsin eru vel staðsett, þau standa hátt og sjást víða að. Við hönnunina var miðað við að
húsin myndu ekki hverfa í fjöldann heldur skera sig úr.
Við hönnun Perlukórs 3 var ákveðið að gera veg hverrar íbúðar sem mestan og halda rýmd
á milli húsa. Þau tengjast með sameiginlegum útitröppum, mynda eina heild, en eru samt
stakstæð.
Mikill hæðamunur setur mark sitt á skipulagið. Til marks um það er komið fyrir leiksvæði á þaki
bílageymslu sem tengist garðsvæði sem myndar kjarna milli húsanna.
Húsin sem standa nyrst og hæst í lóðinni snúa að kirkjulóð og þar var ákveðið að vera með
millipall með útistigum sem liggja að efstu íbúðunum í landhæð til norðurs. Það dregur úr hæð
húsanna frá norðri og opnar gönguleiðir að kirkjulóð frá íbúðaklasanum. Húsin sitja þannig
inni í brekkunni og samlagast henni.
Húsin eru steinsteypt og einangruð að innan. Norðurhlutinn, sá sem situr inni í brekkunni,
er steinaður með dökkri steiningu og suðurhlutinn múraður með ljósum múr. Á milli þessara
tveggja húshluta eru inndregnir inngangar klæddir viðarklæðningu.
Í hverju húsi eru 3 íbúðir, ein um 150 m2 að stærð á neðri hæð og tvær 96 m2 íbúðir á efri hæð.
Samtals eru íbúðir í klasanum 15 talsins.
Landslag ehf. hannaði lóðina“
Verðlaun vegna Perlukórs 3
Umhverfisráð Kópavogs hefur veitt ÍAV og ASK arkitektum
viðurkenningu fyrir hönnun klasahúsanna að Perlukór 3.