Morgunblaðið - 27.08.2006, Qupperneq 22
skólasaga
Ólafur Guðmunds-
son er öllum hnút-
um kunnugur
í Kópavogs-
skóla » 32
kvikmyndir
Oliver Stone og Paul Green-
grass fjalla um atburðina
örlagadaginn 11. september
2001 í myndum sínum » 34
Ingibjörg og Felix
Felix Bergsson man að hann fór óskaplega í taugarnar á móður sinni, Ingi-
björgu S. Guðmundsdóttur, þegar hann gerðist sjálfhverfur unglingur. » 30
Langt er síðan mennhófu að rista brauð íþeim tilgangi að lengjaþann tíma sem hægt
væri að njóta þess. Á tímum
Rómarveldis var ekki óalgengt að
menn meðhöndluðu brauð á þenn-
an hátt enda er enska orðið yfir
brauðristun, „toast“ dregið af lat-
neska orðinu „tostum“ sem þýðir
að svíða eða brenna. Ýmsar aðferð-
ir voru notaðar til að rista brauð
fyrir tíma rafmagns. Ein var að
leggja það á heita arinhellu og önnur
að stinga gaffli í það og svíða það yfir
eldi. Aðrir notuðu sérstaka brauðstanda
sem festir voru við hlið eldstæðis eða arins og
hægt var að sveifla yfir eldinum.
Árið 1893 kom breska fyrirtækið Crompton og Co
hins vegar fram með fyrstu rafmagnsbrauðristina en
sextán ár liðu áður en samskonar uppfinning var sett
á markað í Bandaríkjunum. Þær vélar gátu einungis
ristað aðra hlið brauðsneiðarinnar í einu og nauðsyn-
legt var að vakta vélina og slökkva handvirkt á henni
þegar brauðristun var lokið. Ekki leið þó á löngu áð-
ur en nútímalegri brauðristar litu dagsins ljós. Árið
1919 fann Charles Strite upp brauðrist sem var þeim
eiginleika gædd að brauðið hoppaði upp úr henni
þegar ristuninni var lokið um leið og vélin slökkti á
sér.
Fyrir tíma rafmagnsins sló engin ein hönnun
brauðristunaramboða í gegn líkt og raunin var
með önnur heimilistæki á borð við teket-
ilinn og straujárnið. Kannski var
það þess vegna sem talsverður
tími leið áður en rafmagns-
brauðristin tók á sig það
form sem flestir þekkja
í dag. Lengi vel þóttu
brauðristar mikið
stáss og áttu sinn
heiðurssess á
þeim heimilum
þar sem þær fund-
ust. Upp úr 1930
fór þó að bera á
brauðristum af því
tagi sem átti eftir
að setja svip á
fjölda eldhúsa um
víða veröld.
Saga hlutanna | brauðristin
Áttu sinn
heiðurssess á
heimilunum
daglegtlíf
Guðbrandur Einarsson yfirleið-
sögumaður í Ytri-Rangá segir
laxinn í ánni taka fluguna eins
og sælgæti » 24
veiði
Brynhildi Bolladóttur nema í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
hefur alltaf þótt þýska heillandi
mál » 35
nemi
LOKA
DAGUR
|sunnudagur|27. 8. 2006| mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Feðgar Helgi Aðalsteinson og Óskar sonur hans á góðri stundu.
Allir sem ég talaði við héldu að tattú væribannað á Íslandi en ég sagði að það væriekki hægt að banna það sem aldrei hefði ver-ið leyft,“ segir Helgi Aðalsteinsson, fyrsti ís-
lenski tattúlistamaðurinn með leyfi frá landlækni upp á
vasann. Hann hefur tattúverað dreka, galdrastafi, haus-
kúpur og alls lags furðuleg tákn á margan landann –
nánast alls staðar, og einnig unnið um skeið á tattú-
stofu í Hollandi, sem forsprakki Vítisenglanna þar í
landi átti og rak. Á árum áður var Helgi háður fíkni-
efnum og fékkst við eitt og annað sem kom honum á
bak við lás og slá. Núna, þegar hann á ekki langt eftir
því krabbameinið er að draga hann til dauða, segir
hann frá skrautlegu lífi sínu og list. » 26
Myndir á
mannshúð
Morgunblaðið/ÞÖK