Morgunblaðið - 27.08.2006, Qupperneq 68
68 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
H.J. MBL.
eee
S.U.S. XFM 91,9
YOU, ME AND DUPREE kl. 5:50 - 8 - 10:10
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 9 - 10:30 B.i. 12.ára.
SUPERMAN kl. 5:30 - 8:30 B.i. 10.ára.
THE BREAK UP kl. 5:30 Leyfð
5 CHILDREN AND IT kl. 2 - 4 Leyfð
LADY IN THE WATER kl. 8 - 10:20
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9
THE LONG WEEKEND kl. 6 B.I.14
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal kl. 2 - 4
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
eeee
S.U.S. XFM 91,9.
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
B.J. BLAÐIÐ
rúmlega
60.000
gestir
4 vikur
á toppnum
á Íslandi !
GRETTIR 2 kl. 2 - 4 - 6 Leyfð
SNAKES ON A PLANE kl. 8 - 10:10 B.i. 12
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR kl. 2
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 5
THE SENTINEL kl. 8 B.I.14
HALF LIGHT kl. 10:10 B.I.16
JAMIE FOXX COLIN FARRELL
SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
eee
LIB - TOPP5.IS
eee
HJ - MBL
með Owen Wilson (Wedding Crashers) sem fer á kostum,
ásamt Kate Hudson, Matt Dillon og Michael Douglas.
60.000
gestir
GEGGJUÐ
GRÍNMYND
Ein fyndnasta grínmynd ársins
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569
1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Víkverji skrapp tilLundúna um dag-
inn, í fyrsta skipti í
mörg ár.
Með í för var kær-
astinn, sem hafði aldrei
komið til borgarinnar
áður. Skipulagði Vík-
verji ferðina því vand-
lega svo kærastinn
fengi að sjá alla vinsæl-
ustu túristastaði.
Ferðin heppnaðist
vel og var hin
skemmtilegasta og
rómantískasta, fyrir
utan einn dagpart sem
Víkverji má til með að
segja lesendum frá.
Leiðin lá í vaxmyndasafn Ma-
dame Tussauds sem Víkverji heim-
sótti síðast 13 ára gamall og hafði þá
ósköp gaman af. Er skemmst frá því
að segja að Víkverji hefði betur lifað
með sælum æskuminningunum.
Biðröðin á safnið var geipilega
löng og hæg. Hefði Víkverji haft
nokkra leið til að vita í upphafi hvað
röðin var löng hefði hann hiklaust
hætt við safnferðina, en lengjan af
fólki hlykkjaðist um húsið, í bugður
og beygjur, bakvið horn og upp
hæðir, svo ómögulegt var að sjá
hversu ofboðslega margir voru á
undan.
Beið Víkverji ásamt
kærastanum í röska
klukkustund, í rétt-
stöðu eins og lífvörður
drottningar, því engin
voru sætin.
Loks fikraði Víkverji
sig að miðasölunni, og
kom þá fyrst í ljós
hversu fokdýrt var inn
á safnið. Var Víkverja
skapi næst að hætta
við allt saman, en
keypti að endingu miða
eftir að Víkverji og
kærastinn tóku loforð
hvor af öðrum um að
heimsækja þetta safn
aldrei aftur, nema þá til þess að af-
hjúpa styttur af þeim sjálfum.
Raunir Víkverja voru ekki á enda
þá, því aulahrollurinn hríslaðist um
hann alla leið í gegnum safnið. Það
er alveg óendanlega hallærislegt,
þegar á það er litið, að eltast við
vaxstyttur af misfrægu fólki, og
keppast við að láta taka af sér mynd
með uppáhaldsstjörnunum.
Víkverji var fljótari að virða fyrir
sér allan safnkostinn en hann var að
kaupa miðana og yfirgaf safnið
grautfúll og illa svikinn. Hvetur Vík-
verji lesendur til að láta vera að
heimsækja Madame Tussauds næst
þegar leiðin liggur til Lundúna.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Orð dagsins: Öll jörðin nýtur nú hvíldar og friðar,
fagnaðarópin kveða við. (Jes. 14, 7.)
Í dag er sunnudagur-
27. ágúst, 239. dagur
ársins 2006
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hver þekkir myndina og á hljómplötuna?
ÉG undirritaður óska eftir því að þeir sem þekkja þessa mynd láti mig vita í
síma 456 2186 eða 847 2542.
Einnig vantar mig þessa hljómplötu með Ragnari Bjarnasyni, ef einhver
ætti hana í fórum sínum. Þætti mér vænt um að fá hana á Tónlistarsafnið
mitt, Melódíur minninganna.
Jón Kr. Ólafsson, Reynimel, 465 Bíldudal.
80 ára afmæli.Föstudaginn
1. september nk.
verður áttræður
Sveinbjörn Ingi-
mundarson frá
Yzta-Bæli, Austur-
Eyjafjöllum. Laug-
ardaginn 2. sept-
ember kl. 17 býður hann og fjölskylda
hans öllum ættingjum og vinum til
veislu í Yzta-Bæli til að samgleðjast
honum á þessum tímamótum. Vonumst
til að sjá sem festa. Næg tjaldstæði í
túninu heima.
Brúðkaup |
Þau Vilhjálmur
Þór Vilhjálms-
son og Rann-
veig Klara
Matthíasdóttir
giftu sig í Dóm-
kirkjunni í
Reykjavík 1.
júlí síðastliðinn.
Það var Pálmi
Matthíasson
sem gaf þau saman. Þau eru til heimilis
í Hafnarfirði.
Brúðkaup |
Gefin voru sam-
an 3. júní sl. í
Árbæjarkirkju
af sr. Þór
Haukssyni þau
Helena Sif
Gísladóttir og
Jón Ragnar
Magnússon.
ÉG vil koma á framfæri viðskiptum
sem ég átti við 365 fjölmiðla. Var það
í sambandi við heimsmeistarakeppn-
ina en þá ætlaði ég að kaupa áskrift
að Sýn meðan á keppninni stæði.
Fékk ég upplýsingar um að 6 mán-
aða áskrift hentaði mér best og
skrifaði ég undir 6 mánaða samning.
Ég fékk upphæðina uppgefna sem
ég borgaði í júní og júlí. Í ágúst
hækkaði verðið um rúmar 2.000
krónur sem ég var ekki sátt við og
hringdi ég og kvartaði yfir því.
Rúmri viku seinna fékk ég þau svör
að upprunalegt verð sem mér var
gefið upp hafi ekki verið rétt. Mér
finnst að það sé ekki mitt mál heldur
þeirra mál og að það ætti að láta
samninginn standa. En þeir borguðu
mér bara ágústmánuð til baka og
slökktu á Sýn.
Þetta finnst mér ákaflega léleg
framkoma og ekki þeim til fram-
dráttar. Þeim væri nær að minnka
bruðlið í sambandi við NFS þar sem
endurteknar eru sömu fréttirnar
dag eftir dag og jafnvel á hálftíma
fresti.
Svo eru áskriftirnar svo háar þó
að styrktaraðilar greiði meira og
minna fyrir þættina sem þeir eru að
sýna.
Þetta er ég mjög ósátt við.
Ósáttur viðskiptavinur.
Oss í staðinn fyrir vor
ÉG vek athygli á því að Háskóli Ís-
lands virðist ekki lengur ráða við ís-
lenskt mál. Nýlega var birt auglýs-
ing í útvarpi á vegum skólans þar
sem talað var um oss í staðinn fyrir
vor. Á ekki Háskóli Íslands að kunna
skil á mismuninum á þessum orðum.
Segir ekki í textanum: Til vor komi
þitt ríki?
Pétur Pétursson, þulur.
Léleg viðskipti
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast
með 2ja daga fyrirvara virka daga og 3ja
daga fyrir sunnudag og mánudag. Sam-
þykki afmælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100 eða sent á net-
fangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er hægt
að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.