Morgunblaðið - 27.08.2006, Page 72
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 239. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: auglysingar@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691122
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðaustan 3-8
m/s, en hvessir
heldur vest-
anlands síðdegis. Rigning
norðan- og austanlands, en
bjart víðast syðra. » 12
Heitast Kaldast
16°C 10°C
FLUTNINGASKIPIÐ Aalsmeergracht rak í
fyrrinótt yfir Reyðarfjörð og þegar skipið var
komið að Grímu, sem er nes við sunnanverðan
fjörðinn, var nógu grunnt til að ankeri næðu
festum. Þar gátu skipverjar unnið að viðgerð á
lenska flutningaskip, sagði Rúnar í samtali við
Morgunblaðið á laugardagsmorgun. Skipið er
átta þúsund tonn, samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni, en ekki 14 þúsund eins
og sagði í Morgunblaðinu í gær.
vélum skipsins sem biluðu á föstudagskvöld.
Að sögn Rúnars Sigurjónssonar hafnar-
stjóra fylgdi björgunarskip frá Landsbjörg
skipinu til vonar og vara. Veður var hins vegar
svo gott að engin þörf var á að aðstoða hið hol-
Ljósmynd/Helgi Garðarsson
Ankeri Aalsmeergracht náðu festum við Grímu
ÁSÓKN í jarðir hefur vaxið
mjög síðustu misserin með til-
heyrandi hækkun á jarðaverði
og í kjölfarið umræðum um
hvort og þá hvar eigi að draga
mörkin við jarðaeign einstakra
aðila.
Á lista yfir fyrirtæki, sem eru
skráð í leigu á landi og landrétt-
indum, eru 259 aðilar. Flest eru
sveitarfélögin sem þær eru í.
Allir viðmælendur Morgun-
blaðsins fögnuðu hækkun jarða-
verðs sem gerði bændum kleift
að selja jarðir sínar við góðu
verði og hætta í búskap með
reisn, en á móti veltu menn
vöngum yfir áhrifum þess á ný-
liðun í bændastétt og því að
samþjöppun á jarðaeign fylgdi
að hluti jarðanna væri skipulega
settur í eyði.
veiðifélög og rekstrarfélög tengd
veiðum, en það félag sem nú á
flestar jarðir er Lífsval ehf. með
tæpa fjóra tugi.
Algengt jarðarverð hefur tí-
faldast á tuttugu árum; úr 5–10
milljónum króna í 50–100 millj-
ónir, en mesta hækkunin hefur
orðið á tveimur til þremur síð-
ustu árum.
Bændasamtök Íslands ætla að
láta gera úttekt á eignarhaldi á
jörðum og meta áhrif þróunar-
innar á ábúð og nýtingu jarða og
Stærsti jarðaeigandinn
er með 30–40 jarðir
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
Öfugþróun … | 10
»Samkvæmt samantekt Fast-eignamats ríkisins fjölgaði
þeim sem áttu þrjár eða fleiri
jarðir úr 334 í 437 á árunum
2003–2005.
»Á árinu 2003 voru skráð 1.040afsöl og kaupsamningar
vegna jarðakaupa, 1.330 árið eft-
ir, þegar ný jarðalög tóku gildi,
1.254 í fyrra og 688 eru komin á
þessu ári.
Í HNOTSKURN
BERJASPRETTA er með besta móti á
Austfjörðum í ár og eru heilu brekkurnar
svartar af bláberjum og krækiberjum,
segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og
berjaáhugamaður. Berin eru hins vegar
seinna á ferðinni en venjulega á Suður-,
Vestur- og Norðausturlandi.
„Sprettan er afspyrnugóð á Aust-
fjörðum, menn muna vart eftir annarri
eins berjasprettu og er á Seyðisfirði og
víða á Austfjörðum. Það eru líka góð ber í
Þingeyjarsýslu, en sprettan á Norðurlandi
vestra er heldur í seinna lagi þótt það sé
ekki alveg séð fyrir endann á því, það get-
ur líka ræst úr þar,“ segir Sveinn.
Spurður hvers vegna sprettan sé svo
góð sem raun ber vitni á Austurlandi seg-
ir Sveinn gott veðurfar meginskýringuna.
„Það er búið að vera hlýtt og gott sumar.“
Sveinn segir sér hafa brugðið mjög
hrútaberin, og er útlit fyrir góða hrúta-
berjatíð fyrir austan líka, segir Sveinn.
Einnig ætti fólk í berjamó að hafa augun
opin fyrir jarðarberjum, sem finna má
villt ótrúlega víða um landið.
þegar hann
heyrði veðurfræð-
ing ræða um
fyrsta næt-
urfrostið í veð-
urfréttatíma í vik-
unni. Það var
reyndar á hálend-
inu, og því enn
tími til stefnu til að tína ber í sultu, saft,
eða út á skyrið.
„Næturfrost þýða heldur ekki endilega
endalok berjatínslu, sumir segja það bara
ágætt fyrir krækiberin að lenda í frosti í
eina eða tvær nætur, þá verði þau bara
sætari í saftina. En manni líst samt ekki á
blikuna þegar maður fer að heyra af næt-
urfrosti, og reynir þá að drífa í að bjarga
verðmætunum,“ segir Sveinn.
Undir það síðasta í berjatíðinni koma
Muna vart aðra eins berjasprettu
ÍSLENSKT mál tekur stöðugum breytingum og
því er erfitt að greina hvaða orð eru nýyrði og
hver ekki. Þetta hefur Dóra Hafsteinsdóttir, rit-
stjóri nýrrar stafsetningarorðabókar sem kemur
út nú á þriðjudaginn, rekið sig á. Mörg orð sem áð-
ur hafi verið talin dönsk séu t.a.m. talin fullgild ís-
lensk orð í dag og því sé ekki nema von að erfitt sé
að meta hvaða tökuorð skuli koma fram í orðabók-
um.
Segist Dóra hafa fetað ákveðinn milliveg í þess-
um efnum. Sjitt sé til dæmis upphrópun og dæmi
um slangur og sé því ekki í nýju stafsetning-
arorðabókinni en aftur á móti sé orðið sjokk í
henni. Reynt er að staðla stafsetningu tökuorð-
anna þótt Dóra segi að sumum geti brugðið í brún
að sjá þau.
Í bókinni eru 65 þúsund orð í ýmsum föllum, töl-
um og myndum auk kafla um ritreglur í íslenskri
stafsetningu. | 56
Áður dönsk, en nú
fullgild íslensk orð
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson ræðir í við-
tali í sérblaði, sem fylgir Morgunblaðinu í dag,
átökin um meirihlutann í Straumi-Burðarási
og segir að djúpstæður ágreiningur hafi endað
með trúnaðarbresti.
Björgólfur Thor segir í viðtalinu að aðdrag-
andinn að hluthafafundinum 19. júlí hafi verið
undarlegur.
„Ég vildi herða á öllu, þannig að reksturinn
væri alveg tryggur,“ segir hann. „Þá fékk ég
þau viðbrögð frá öðrum stjórnarmönnum að
það væri einkennilegt að kalla saman stjórn-
arfund með svo skömmum fyrirvara. Það
fannst mér furðulegt. Kornið sem fyllti mælinn
var síðan að í aðdraganda stjórnarfundar
stendur Þórður Már [Jóhannesson, þáverandi
forstjóri Straums] fyrir viðskiptum í skjóli
myrkurs með bréf félagsins í sjálfu sér, sem
augljóslega voru til þess fallin að hygla sinni
klíku. Óþægilegar spurningar vöknuðu um
hvort hagsmunir almennra hluthafa hafi þar
verið fyrir brjósti bornir. Ég frétti þetta um
morguninn, fór stuttu seinna inn á stjórn-
arfund vitandi þetta og sagði: Nú er mælirinn
fullur. Algjör trúnaðarbrestur hefur orðið á
milli forstjóra og stjórnarformanns. Þetta
gengur ekki lengur.“
Mælirinn fullur
♦♦♦
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti í
gærmorgun slasaðan sjómann um borð í lítinn
íslenskan togara úti fyrir Ingólfshöfða. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni
féll maðurinn ofan í lest skipsins.
Í fyrstu voru kannaðir möguleikar á að senda
bát eftir manninum en fallið var frá því og
skömmu fyrir klukkan sex var ákveðið að óska
eftir þyrlunni. Hún fór í loftið klukkan 6:47 og
lenti við slysadeild Landspítalans í Fossvogi
tæplega þremur tímum síðar. Að sögn læknis á
slysadeild reyndust áverkarnir ekki alvarlegir
og var reiknað með að sjómaðurinn gæti farið
heim von bráðar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla sótti slas-
aðan sjómann
»Hitastigið skiptir miklu máli fyrirsprettu bláberja og aðalbláberja og þá
er jafnvel talað um hitann á vorin, eins og í
maí og júní, segir Sveinn Rúnar Hauksson.
»Snjóalög geta líka haft sitt að segja.Lyngið er vel varið undir snjónum, sem
hlífir því við kuldaköstum sem skella á
fram eftir vori. Oft koma góð bláber undan
snjó sem verið hefur langt frameftir en þó
má hann ekki vera of lengi, þá verður sum-
arið of stutt fyrir góða sprettu.
Í HNOTSKURN