Morgunblaðið - 10.12.2006, Síða 1
Moskvu. AFP. | Fjörutíu og fimm konur biðu
bana í Moskvu aðfaranótt laugardags þegar
þær lokuðust inni á sjúkrahúsi í miklum
bruna. Talið er að kveikt hafi verið í sjúkra-
húsinu og hafa saksóknarar hafið glæpa-
rannsókn vegna meintrar vanrækslu við
brunavarnir í byggingunni.
Slökkviliðsstjórinn Júrí Nenasjev sagðist
„90 prósent“ viss um að brennuvargur hefði
verið á ferð, en um var að ræða einhvern
mannskæðasta eldsvoða í borginni í áratugi.
Sögðu sjónarvottar einn neyðarútgang-
inn hafa verið lokaðan og að málmgrindur í
gluggum hefðu valdið því að konurnar lok-
uðust inni.
Grunur um
íkveikju í
Moskvu
Reuters
Harmur Maður huggar syrgjandi konu
fyrir utan sjúkrahúsið í Moskvu í gær.
STOFNAÐ 1913 336. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SVARTIR KASSAR
HERRA KOLBERT HEFUR HAFT MIKIL
ÁHRIF Á LÍF HÖFUNDAR SÍNS >> 29
14
dagar
til jóla
NÚ ER stendur aðventan sem hæst og börn og
fullorðnir keppast við að undirbúa jólin. Heim-
ili, skólar, verslanir, opinberar stofnanir og
þannig mætti áfram telja eru skreytt og allur
bragur mannlífsins breytir um svip þegar
skammdegið stendur sem hæst hér á norð-
urhjara heims. Tónleikar, helgileikir, jólaböll
og aðventukvöld eru þáttur í þessum und-
irbúningi. Eftirvæntingin vex dag frá degi hjá
börnunum og þeir fullorðnu reyna að rifja upp
þann anda jólanna sem þeir upplifðu í æsku.
Það getur verið erfitt að greina kjarnann frá
hisminu, en það er mikilvægt að boðskapur
jólanna gleymist ekki í erli daganna og fólk
gefi sér stund til að hugleiða hann. Til þess
gafst tækifæri á aðventukvöldi í Rimaskóla á
fimmtudagskvöldið þar sem þessi mynd er
tekin af börnunum í 4. A að flytja helgileik.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólin nálgast Börnin í 4. A í Rimaskóla léku helgileik undir stjórn Ingu Maríu Friðriksdóttur á aðventukvöldi í skólanum í vikunni.
Aðventukvöld í Rimaskóla
Peking. AP. | Hóp-
ur kínverskra at-
vinnurekenda
sem framleiða
vörur fyrir
bandarísku smá-
sölukeðjuna Wal-
Mart greiðir ekki
lágmarkslaun, út-
vegar starfsfólki
sínu ekki heilsutryggingar og býður
því upp á ömurlegar vinnuaðstæður.
Þessu er haldið fram í skýrslu sam-
takanna China Labor Watch í Hong
Kong sem gæta réttinda verkafólks.
Kemur þar fram að könnun á
meðal 169 starfsmanna 15 framleið-
enda fyrir Wal-Mart-keðjuna hafi
leitt í ljós að sumir greiði allt niður í
um 18 krónur á tímann, tæpan helm-
ing lágmarkslauna, krefji starfs-
menn um að vinna yfirvinnu og
dragi frá klukkustund af tímakaup-
inu í refsingarskyni fyrir að mæta
einni mínútu of seint. Þá er dæmi
tekið af fyrirtæki sem býður 2.000
starfsmönnum sínum upp á aðeins
eitt salerni.
Eitt salerni
fyrir 2.000
starfsmenn
RUSLPÓSTUR er nú um og yfir 90% af
öllum póstsendingum á Netinu, en ekki er
langt síðan hlutfallið var 60%, að sögn
Björns Davíðssonar, þróunarstjóra net-
þjónustufyrirtækisins Snerpu. „Svo standa
öflugir aðilar af og til að miklum rusl-
póstsherferðum og þá getur magnið
skyndilega margfaldast,“ segir Björn. „Ég
get nefnt sem dæmi að fyrir skömmu sex-
tugfaldaðist magn ruslpósts á einum degi.
Slíkar árásir valda netþjónustum miklum
vanda og geta t.d. tafið tölvupóst um
nokkrar klukkustundir.“
Gates reyndist ekki sannspár
Oft hefur verið lagt upp með að hemja
flóð rusltölvupósts, en það hefur gengið
erfiðlega. Fyrir þremur árum sagði Bill
Gates, stjórnarformaður Microsoft, að árið
2006 yrði rusltölvupóstur úr sögunni.
Hann hafði heldur betur rangt fyrir sér.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
setti nýverið ofan í við aðildarríki ESB
fyrir að hafa ekki fylgt eftir banni við
ruslpósti og sagði að 80% pósts í dæmi-
gerðu netpósthólfi í Evrópu væru rusl-
póstur. | 18
Ruslpóstur um
90% af öllum
pósti á Netinu
Í ruslpóstsherferðum hefur
magnið sextugfaldast
Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur
rsv@mbl.is
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
STURLA Böðvarsson sam-
gönguráðherra segir Sundagöng
að sjálfsögðu mjög góðan kost og
telur eðlilegt að Vegagerðin og
borgaryfirvöld hafi komið sér
saman um að leggja jarðgöngin í
umhverfismat. Nauðsynlegt sé
að bera saman Sundagöngin við
aðra kosti.
Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær hefur samráðs-
hópur um Sundabraut náð sam-
komulagi um að láta fara fram
umhverfismat á því að leggja
fyrsta áfanga Sundabrautar í
jarðgöngum úr Laugarnesi og
yfir í Gufunes. Göngin hafa verið
nefnd Sundagöng.
Ráðherra var inntur álits á
þessum
áformum um
Sundagöng í
upphafi þing-
fundar á Al-
þingi í gær.
Hann sagði í
samtali við
Morgunblaðið
að honum lit-
ist mjög vel á
göngin. „Þetta
er kostur sem var á sínum tíma
settur til hliðar og ekki metinn í
umhverfismatinu þegar innri
leiðin, sem þá var talað um, var
skoðuð.“ Í Morgunblaðinu í gær
kom fram að yrðu göngin 4,4
kílómetrar að lengd, myndu þau
kosta um 16 milljarða, eða fjór-
um milljörðum meira en veg-
tenging.
„Jarðgöng eru auðvitað mjög
góð lausn vegna þess að þau
færa frá mikil gatnamót og áhrif
frá umferðinni. Á hinn bóginn
ber að líta á að afkastagetan
verður ekki eins mikil og á vegi
ofanjarðar. En þetta eru allt
atriði sem þarf að meta og finna
út hvað sé viðunandi. Mér finnst
allt benda til þess, eins og þess-
ar tengingar eru hugsaðar í
Gufunesi og Laugarnesi, að
þetta komi býsna vel út. Fátt
bendir til annars en að þetta
geti gengið. Við þurfum hins
vegar að fá mat á áhrifum þessa
á umhverfið. En það er óhjá-
kvæmilegt að skoða þennan
kost.“ Þingmenn fögnuðu því í
umræðum á Alþingi í gær að
samkomulag hefði náðst um að
setja göngin í umhverfismat.
Þingmenn fagna ákvörðun um umhverfismat ganganna
Sturla
Böðvarsson
Ráðherra tekur
vel í Sundagöng