Morgunblaðið - 10.12.2006, Page 35
endum, sem þóttust vita betur. En
Ripley stóð við þá staðhæfingu og
jafnframt að 48 klukkustundir væru
í sólarhringnum, blóm æti mýs, fisk-
ur klifraði í trjám og að Napóleon
hefði farið yfir Rauða hafið, eins og
Móses, á þurru landi.
Ripley færði sig um set til New
York Post árið 1923 og fjórtán ára
ferill hans í útvarpi hófst árið 1930,
en ári áður gerði hann samning við
fjölmiðlarisann William Randolph
Hearst. Hearst fjármagnaði ferðalög
Ripleys um heiminn og varð bein út-
sendingin smám saman aðalsmerki
þáttanna, meðal annars neðansjávar,
úr lofti, úr hellum með snákagryfjum
og erlendis frá. Fyrsta Ripley-safnið
var opnað í Chicago árið 1933 og árið
1936 var Ripley valinn vinsælasti
maður Ameríku, vinsælli en forset-
inn.
Þegar seinna stríð braust út hætti
Ripley um tíma að ferðast út fyrir
landsteinana og stýrði útvarpsþátt-
unum „Seeing America First“. Og
árið 1949 kom loks að því að hann
fengi eigin sjónvarpsþátt. En það
varði ekki lengi, því í þrettánda
þætti hneig hann niður við tökur
vegna hjartabilunar og lést. Þegar
Ripleys var minnst í heimabænum
Santa Rosa í Kaliforníu var við hæfi
að kirkjan, þar sem athöfnin fór
fram, hafði verið smíðuð úr aðeins
einni risafuru.
Og það var eftir Ripley að hann
sneri út úr dauðanum sjálfum. Fyr-
irtækið sem ber hans nafn er við
hestaheilsu og rekur söfn um allan
heim, ekki aðeins í anda Ripleys,
heldur einnig draugahús, söfn helg-
uð Heimsmetabók Guinness og af-
þreyingargarða af ýmsu tagi. Nú er
unnið að kvikmynd um hann, sem
ber heitið „Ótrúlegt en satt!“ og leik-
ur Jim Carrey aðalhlutverkið. Gert
er ráð fyrir að hún verði frumsýnd
2009. Metsölubók með sama nafni
kom út árið 2004 og í íslenskri þýð-
ingu núna fyrir jólin á Íslandi og sett
hefur verið upp sýning á ýmsum
furðulegum hlutum hvaðanæva úr
heiminum í verslunum Hans Peter-
sen, meðal annars smækkuðu
mannshöfði, blaðurbeisli fyrir konur
og mannætugöfflum. Ripley er því
aftur mættur til Íslands, árið 2006,
tæpum 80 árum eftir fyrstu
Íslandsheimsóknina.Sápukúla Guðs Robert Ripley kallaði Geysi sápukúlu Guðs.
Stromplaust Ripley sagði að á Hótel Laugarvatni væru ekki reykháfar.
Skreiðarbrauð Konur á Íslandi
notuðu að sögn Ripleys mulda
skreið sem hveiti.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2006 35